Skipaður 28. ágúst 2025.
Stýrihópnum er falið eftirfarandi hlutverk:
a) Greina nánar þær sviðsmyndir sem settar eru fram í skýrslu Deloitte frá árinu 2024 um greiningu á mögulegri aðkomu einkaaðila að uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum í þágu náttúruverndar og ferðamennsku við Jökulsárlón og mögulegar útfærslur þeirra/-r sviðsmynda/-r sem stýrihópur telur helst koma til greina, m.a. hvað varðar skilmála útboðs, tekjumódel, rekstrarfyrirkomulag og fjárhagslegan fýsileika. Að lokinni greiningarvinnu leggi stýrihópurinn endanlega tillögu sína um val á sviðsmynd fyrir forsætisráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra til ákvörðunar.
b) Vera vettvangur samráðs ráðuneyta og Náttúruverndarstofnunar vegna úthlutunar heimilda til atvinnurekstrar við Jökulsárlón, s.s. vegna siglinga, m.a. á grundvelli laga um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
c) Hafa yfirumsjón með undirbúningi uppbyggingar við Jökulsárlón þegar ákvörðun skv. a-lið liggur fyrir og halda utan um verkefnið á undirbúningstíma og tryggja samráð og samstarf þvert á ráðuneyti og stofnanir.
Stýrihópurinn er þannig skipaður:
Án tilnefningar
Hafsteinn S. Hafsteinsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu Náttúruverndarstofnunar
Gísli Halldór Halldórsson
Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Hrafn Hlynsson
Samkvæmt tilnefningu forsætisráðuneytis
Regína Sigurðardóttir
Fulltrúar stýrihópsins skulu tryggja greitt upplýsingaflæði um stöðu verkefnisins og leggja tillögu sína að útfærslu útboðs og fjármögnunar til ákvörðunar hjá hlutaðeigandi ráðherrum auk þess að tryggja upplýsingaflæði, samskipti og samráð við hlutaðeigandi stofnun, aðrar stofnanir, sveitarfélög og aðra nauðsynlega hagsmunaaðila, auk þeirra undirhópa sem ákveðið verður að stofna til vegna einstakra verkþátta.
Jafnframt verður skipaður samstarfshópur Náttúruverndarstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til að styðja við starf stýrihópsins og vinna að nánari útfærslum.
Gerður verður samningur við sérstakan verkefnisstjóra með sérþekkingu á undirbúningi og stýringu sambærilegs útboðs og framkvæmda sem mun starfa með stýrihópnum og Náttúruverndarstofnun og aðstoða og ráðleggja við framkvæmd verkefnisins.