Skipað 31. janúar 2025.
Rekstrarsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar á ábyrgð þjóðgarðsvarðar og eru mörk rekstrarsvæða tilgreind í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008, með síðari breytingum.
Svæðisráðið er skipað til fjögurra ára í senn skv. 7. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð. Í svæðisráði skulu sitja sex fulltrúar: þrír fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem eru á viðkomandi rekstrarsvæði, einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á viðkomandi svæði, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum. Sömu aðilar tilnefna jafnmarga varamenn sem eru skipaðir með sama hætti. Svæðisráð kýs sér formann úr hópi sveitarstjórnarmanna og varaformann. Þjóðgarðsvörður situr fundi svæðisráðs.
Hlutverk svæðisráða Vatnajökulsþjóðgarðs skv. 8. gr. laganna er að vera þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði, að hafa yfirumsjón með gerð tillögu að verndaráætlun fyrir viðkomandi svæði, að samþykkja tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði innan þess fjárhagsramma sem því er ætlaður hverju sinni samkvæmt ákvörðun stjórnar og að gera tillögu að ráðningu þjóðgarðsvarða á viðkomandi rekstrarsvæði.
Samkvæmt tilnefningu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hjalti Þór Vignisson, formaður
Sindri Ragnarsson, varaformaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
Alexander Vigússon, varafulltrúi
Friðrik Jónas Friðriksson, varafulltrúi
Hilmar Þór Sigurjónsson, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu umhverfis- og náttúruverndarsamtaka
Steinunn Hödd Harðardóttir,
Svanhvít Helga Jóhannsdóttir, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu útivistarsamtaka
Guðrún Inga Bjarnadóttir
Sigríður Arna Arnþórsdóttir, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu
Tinna Rut Sigurðardóttir
Steindór Sigurjónsson, varafulltrúi