Sveinsprófsnefnd í hársnyrtiiðn er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
Aðalmenn:
- Aðalsteinn Sigurkarlsson,án tilnefningar,
- Sigurjón Óli Vignisson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
- Steinunn Ósk Brynjarsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
Varamenn:
- Guðjón Kristinn Helgason, án tilnefningar
- Hafdís Þorbjörnsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
- Harpa Þórsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
Skipunin gildir til 30. mars 2027.