Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun 2023-2027

Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerðar nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.

 

Nefndin er svo skipuð:

Aðalmenn:

  • Ásgeir Norðdahl Ólafsson, án tilnefningar
  • Birgir Karlsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina
  • Loftur Þór Pétursson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina

Varamenn:

  • Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir, án tilnefningar
  • Ásgrímur Þór Ásgrímsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina
  • Berglind Hafsteinsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina

 

 Skipun nefndarinnar gildir frá 20. mars 2023 til 19. mars 2027.