Sveinsprófsnefnd í matreiðslu 2023-2027

Sveinsprófsnefnd í matreiðslu er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.

 

Nefndin er svo skipuð:

 

Aðalmenn:

  • Lárus Gunnar Jónasson, án tilnefningar
  • Friðgeir Ingi Eiríksson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
  • Bjarki Ingþór Hilmarsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina

Varamenn:

  • Iðunn Sigurðardóttir, án tilnefningar
  • Styrmir Karlsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
  • Ingi Þórarinn Friðriksson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina

 

Skipunartími nefndarinnar er frá 20. mars 2023 til 19. mars 2027.