Sveinsprófsnefnd í pípulögnum 2023-2027

Sveinsprófsnefnd í pípulögnum er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.

 

Nefndin er svo skipuð:

 

Aðalmenn:

  • Rúnar Helgason, án tilnefningar
  • Andrés Hinriksson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina
  • Helgi Pálsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina

Varamenn:

  • Elías Örn Óskarsson, án tilnefningar
  • Stefán Þór Pálsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina
  • Elmar Björgvin Einarsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs bygginga- og mannvirkjagreina

 
Skipunartími nefndarinnar er frá 20. mars 2023 til 19. mars 2027.