Sveinsprófsnefnd í rafiðngreinum - veikstraumi 2023-2027

Sveinsprófsnefnd í rafiðngreinum - veikstraumi er skipuð samkvæmt 30.gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 598/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.

Nefndin er svo skipuð:

Aðalmenn:

  • Jökull Jóhannsson, án tilnefningar 
  • Guðrún Ýrr Tómasdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
  • Ásvaldur Kristjánsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina

Varamenn:

  • Gabríel Snær Jóhannesson,  án tilnefningar 
  • Anna Kristjana Helgadóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
  • Heimir Snær Gylfason, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina

Skipunartími nefndarinnar er frá 25. nóvember 2023 til 24. nóvember 2027.