Sveinsprófsnefnd í snyrtifræði 2023-2027

Sveinsprófsnefnd í snyrtifræði er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.

Nefndin er svo skipuð:

Aðalmenn:

  • Erla Björk Guðlaugsdóttir, án tilnefningar
  • Guðríður Lára Gunnarsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
  • Sunna Björk Karlsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina.

Varamenn:

  • Lára Björk Dagnýsdóttir, án tilnefningar
  • Linda Pálsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina
  • Karen Jóhannsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs snyrtigreina.

 Skipunartími er frá 15. febrúar 2023 til 14. febrúar 2027.