Sviðslistaráð er skipað skv. ákvæði 15. gr. laga nr. 165/2019.Ráðherra skipar þriggja manna sviðslistaráð til þriggja ára í senn. Fagfélög innan Sviðslistasambands Íslands tilnefna tvo fulltrúa í ráðið en ráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Óheimilt er að skipa sama aðalmann í sviðslistaráð lengur en tvö samfelld starfstímabil.
Sviðslistaráð er skipað frá 1. júlí 2023 til 30. júní 2026
Aðalmenn:
Hafliði Arngrímsson formaður, skipaður án tilnefningar,
Þóra Einarsdóttir, tilnefnd af SAFAS (fagfélaga innan Sviðslistasambands Íslands),
Pétur Ármannsson, tilnefndur af SAFAS.
Varamenn:
Aude Busson varaformaður, skipuð án tilnefningar,
Kaamos Metsikkö, tilnefnd af SAFAS,
Halldór Einarsson Laxness, tilnefndur af SAFAS.
Hlutverk ráðsins er að veita umsögn um þau mál sem ráðherra vísar til þess, gera tillögu til ráðherra um stefnu og helstu áherslur í starfi sviðslistasjóðs til þriggja ára í senn, gera tillögur til ráðherra um úthlutunarreglur sviðslistasjóð og úthluta árlega styrkjum úr sviðslistasjóði.