Tækniþróunarsjóður - stjórn 2025-2027

Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákveður áherslur sjóðsins samkvæmt skilgreindu hlutverki hans, sbr. 10. gr. laga nr. 75/2007 um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Stjórnin tekur ákvarðanir um fjárveitingar úr sjóðnum að fengnum umsögnum fagráða sem tækninefnd Vísinda- og tækniráðs skipar til tveggja ára í senn. Fagráðin eru ráðgefandi um fagleg málefni við úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði. Jafnframt eru fagráðin ráðgefandi fyrir Vísinda- og tækniráð og undirnefndir þess eftir því sem óskað er. Stjórnin er skipuð af menningar,- nýsköpunar og háskólaráðherra til 31. mai 2027. 

Aðalmenn

  • Guðrún Inga Ingólfsdóttir, formaður, tilnefnd af menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Anna Karlsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Gunnar Jóhannsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Lilja Kjalarsdóttir, tilnefnd af Samtökum iðnaðarins
  • Hjálmar Gíslason, tilnefndur af atvinnuvegaráðherra 
  • Kormákur Hlini Hermannsson, tilnefndur af vísinda- og nýsköpunarráði 

Varamenn

  • Sveinbjörn Finnsson, tilnefndur af menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra
  • Erlingur Brynjúlfsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Ásdís Virk Sigtryggsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Kolbrún Hrafnkelsdóttir, tilnefnd af Vísinda- og nýsköpunarráði
  • Jarþrúður Ásmundsdóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðherra
  • Lóa Bára Magnúsdóttir, tilnefnd af samtökum iðnaðarins