Undanþágunefnd kennara 2024-2028

Hlutverk nefndarinnar er að taka til umfjöllunar umsóknir um undanþáguheimildir vegna lausráðninga starfsmanna til kennslustarfa og veita mennta- og barnamálaráðuneytinu tillögur að afgreiðslu mála, sbr. 19. gr. laga nr. 95/2019, um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.


Nefndin er þannig skipuð: 

Aðalmenn:

  • Björk Óttarsdóttir, formaður, án tilnefningar
  • Ingibjörg Karlsdóttir, skv. tilnefningu Kennarasambands Íslands 
  • Mjöll Matthíasdóttir, skv. tilnefningu Kennarasambands Íslands 
  • Kristján Ásmundsson, skv. tilnefningu Skólameistarafélags Íslands
  • Bjarni Ómar Haraldsson, skv. tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Rannveig Björk Þorkelsdóttir, skv. tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins 

Varamenn:

  • Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, varamaður, án tilnefningar
  • Guðjón Hreinn Hauksson, skv. tilnefningu Kennarasambands Íslands
  • Þorsteinn Sæberg Sigurðsson, skv. tilnefningu Kennarasambands Íslands
  • Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skv. tilnefningu Skólameistarafélags Íslands
  • Svala Kristín Hreinsdóttir, skv. tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Bergljót Þrastardóttir, skv. tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins 

Skipunartímabil nefndarinnar er frá 10. apríl 2024 til 9. apríl 2028.