Menntarannsóknasjóður var stofnaður til að styðja við þær menntaumbætur sem endurspeglast í menntastefnu 2030 og er hlutverk sjóðsins að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna og auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og umbóta í skólastarfi. Mennta- og barnamálaráðherra veitir styrki úr Menntarannsóknasjóði til einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla og rannsóknastofnana árið 2025 á grundvelli 42. gr. laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.
Hlutverk úthlutunarnefndar er að meta umsóknir og gera tillögu til ráðherra um hvernig skuli ráðstafa fjárveitingu sjóðsins á árinu 2025 til styrkþega.
Nefndin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Björk Óttarsdóttir, án tilnefningar, formaður
- Jónína Hauksdóttir, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands
- Sigurgrímur Skúlason, samkvæmt tilnefningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
- Sigurður Arnar Sigurðsson, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Anna Kristín Sigurðardóttir, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins
Varamenn:
- Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, án tilnefningar, varaformaður
- Magnús Þór Jónsson, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands
- Sigrún Erna Kristinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
- Edda Björg Sigurðardóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Bragi Guðmundsson, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins