Verkefnasjóður sjávarútvegsins - stjórn

Atvinnuvegaráðherra hefur skipað stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sem starfar samkvæmt 1. gr. l. nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum.

Í Verkefnasjóð sjávarútvegsins renna sektir vegna ólögmæts sjávarafla sbr. 1. gr. l. nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla og tekjur af afla seldum á uppboðsmörkuðum sbr. ákvæði til bráðabirgða XXIX l. nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða. Hlutverk Verkefnasjóðs sjávarútvegsins er að ráðstafa fé úr honum til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegs og eftirlits með fiskveiðum.

Reglur um stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og úthlutun úr sjóðnum.

Stjórnin er þannig skipuð:

  • Kolbeinn Árnason, formaður
  • Anna María Urbancic, aðalmaður
  • Óli Örn Eiríksson, aðalmaður