Verkefnastjórn um smíði nýs hafrannsóknaskips

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa verkefnastjórn sem tekur við umsjón verkefnisins af fyrri smíðanefnd og fylgi því eftir þar til skipið hefur verið afhent. Verkefnastjórn starfar í umboði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Verkefnastjórnin er þannig skipuð:
  • Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, formaður
  • Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
  • Agnar Bragi Bragason, lögfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.