Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt

Skipuð 7. maí 2026.

Verkefnisstjórnin hefur það hlutverk að vinna að endurskoðun landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt í samræmi við lög um landgræðslu nr. 155/2018 og lög um skóga og skógrækt nr. 33/2019. Samkvæmt lögunum skal gefa út landsáætlun eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og til tíu ára í senn. Í lögunum er jafnframt kveðið á um efni og viðfangsefni stefnunnar, sbr. 6. gr. laga um landgræðslu og 4. gr. laga um skóga og skógrækt.

Fyrsta sameiginlega stefna og framtíðarsýn í málaflokknum var gefin út í ágúst 2022 undir heitinu Land og líf: Stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031. Samhliða stefnunni var gefin út fimm ára aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2022–2026. Nú er komið að endurskoðun stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar í samræmi við framangreind lagaákvæði.

Vinnan felst meðal annars í gerð stöðumats á framkvæmd gildandi stefnu þar sem metinn verður árangur, framgangur aðgerða og helstu áskoranir. Í framhaldinu verða unnin drög að endurskoðaðri stefnu og aðgerðaáætlun sem verða kynnt og send til umsagnar áður en endanleg áætlun verður lögð fram.

Áætlað er að stefnan og aðgerðaáætlunin verði gefin út eigi síðar en 1. mars 2027.

Í verkefnisstjórninni sitja:

Án tilnefningar
Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, formaður 
Brynhildur Bjarnadóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
Ingunn Agnes Kro, lögfræðingur
Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Salome Hallfreðsdóttir, fulltúi umhverfis-, orku- og loftslagsraðuneytis

Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri

Hrefna Jóhannesdóttir sviðsstjóri hjá Landi og skóg er starfsmaður verkefnisstjórnar.