Skipaður 22. maí 2026 til þriggja ára.
Vinnuhópur 3 tekur saman stöðu þekkingar á möguleikum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og binda kolefni, aðgerðum stjórnvalda, samdráttarferlum í samhengi markmiða og greiningaraðferðum í því samhengi.
Fjallað verður um möguleika til samdráttar innan og þvert á mismunandi geira samfélagsins, svo sem orku, samgöngum, landbúnaði, iðnaði og landnotkun. Fjallað verður um föngun, hagnýtingu, geymslu og förgun kolefnis. Einnig verður horft þvert á kerfi – svo sem fæðukerfi og samfélög, til dæmis borgarsamfélög. Fjallað verður um hindranir fyrir því að draga úr losun eða auka bindingu og mögulegar stjórnvaldsaðgerðir, svo sem boð og bönn og hagræna hvata. Efnahagslegar og samfélagslegar afleiðingar mótvægisaðgerða verða rýndar með sérstakri áherslu á kostnað, ávinning, réttlæti og siðferði.
Gerð verður grein fyrir samlegð aðgerða með aðlögun og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Tekið verður mið af skýrslum vinnuhóps III hjá IPCC.
Brynhildur Davíðsdóttir, Háskóla Íslands, leiðtogi vinnuhóps
Hlynur Stefánsson, Háskólanum í Reykjavík
Áróra Árnadóttir, Húsnæðis-, mannvirkja, og skipulagsstofnun
Bryndís Marteinsdóttir, Landi og skóg
Sveinn Agnarsson, Háskóla Íslands
Sigrún Ólafsdóttir, Háskóla Íslands