Vinnuhópur um viðbótarverkefni í LIFE-Icewater

Skipaður 15. október 2025.

Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið er þátttakandi í LIFE-Icewater verkefni Umhverfis- og orkustofnunar, sem hófst í byrjun árs 2025 og miðar að innleiðingu vatnaáætlunar. Verkefnið tilgreinir nokkur viðbótarverkefni á árunum 2025-2030 þar sem sérstök áhersla er lögð á bætta meðferð á fráveituvatni frá sveitarfélögum og fyrirtækjum.

Í samræmi við verkefni 7.1 og 7.4 í LIFE-Icewater (vinnupakka 7) hefur ráðuneytið ákveðið að skipa vinnuhóp sem hefur það hlutverk að hafa eftirlit með þeim viðbótarverkefnum (e. complementary measures) sem sett hafa verið fram í LIFE-Icewater verkefninu sem miða að því að tryggja góða úrlausn og framgang þeirra á verkefnatíma Icewater. Auk þess skal vinnuhópurinn greina möguleika á frekari fjármögnun verkefna sem snúa að bættum vatnsgæðum og móta leiðir til framtíðarfjármögnunar úrbóta í fráveitu. Vinnuhópurinn verður jafnframt í samráði við samráðshóp um fráveitumál um hugsanleg úrbótaverkefni í fráveitumálum.

Vinnuhópnum er nánar tiltekið falið að:
• hafa eftirlit með skilgreindum viðbótarverkefnum í LIFE Icewater, halda reglulega fundi með samstarfsaðilum innan LIFE Icewater sem vinna að skilgreindum viðbótarverkefnum (e. complementary measures), fara yfir stöðu verkefna og aðstoða við að tryggja framgang þeirra,
• greina tækifæri til fjármögnunar fleiri viðbótarverkefna,
• gera lista yfir erlenda og innlenda styrki,
• tengja saman alla viðeigandi samstarfsaðila sem geta stutt við framkvæmdir verkefna sem tryggja góð vatnsgæði,
• kynna fyrir sveitarfélögum og stofnunum möguleika á að sækja um innlenda og erlendra styrki til að tryggja vernd vatns,
• móta tillögu að framtíðarstuðningskerfi fyrir uppbyggingu fráveitna sbr. task 7.4.

Vinnuhópurinn skal funda reglulega og skila ráðuneytinu vinnuáætlun við upphaf starfsins sem skal uppfærð árlega. Í áætluninni skal tilgreina hvernig vinnuhópurinn áformar að fylgja eftir úrbótaverkefnum og greina leiðir til fjármögnunar verkefna. Vinnuhópurinn skal a.m.k. einu sinni á ári skila ráðuneytinu og verkefnisstjórn LIFE-ICEWATER verkefnisins greinargerð um vinnu hópsins.


Án tilnefningar
Anna Margrét Kornelíusdóttir, formaður,

Samkvæmt tilnefningu atvinnuvegaráðuneytis
Rafn Helgason

Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnunar
Sæmundur Sveinsson

Samkvæmt tilnefingu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sigríður Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur

Samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
Reynir Sævarsson