Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Landspítali – mönnun og flæði, sem kynnt var fyrr á þessu ári, kemur fram að gera þurfi úrbætur á mönnun á Landspítala.
Ráðuneytið vill vinna að frekari greiningu og leiðum til úrbóta í vinnuhóp ráðuneytisins og Landspítala. Hópnum er ætlað að vinna aðgerðaráætlun sem verður skilað til ráðherra fyrir 1. febrúar 2026.
Vinnuhópinn skipa fyrir hönd ráðuneytisins;
Sigurður Kári Árnason
Guðmann Ólafsson
Fríða Björg Leifsdóttir
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Arnar Bergþórsson
Fyrir hönd Landspítala;
Runólfur Pálsson
Þórunn Oddný Steinsdóttir
Gunnar Beinteinsson