07 febrúar 2025

/

Föstudagspóstur 7. febrúar 2025

Heil og sæl.

Við hefjum yfirferðina á störfum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra undanfarna daga. Hún tjáði sig um nýlega gildistöku ísraelskra laga sem fela í sér bann við starfsemi Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, sem hún segir miður. UNRWA gegni gífurlega mikilvægu hlutverki í aðstoð við Palestínumenn og engin stofnun geti fyllt skarð hennar.

Iceland deeply regrets the entry into force of Israeli laws on @UNRWA. The Agency has never been more needed. Its support is vital for the long awaited Gaza ceasefire, relief for Palestine refugees and stability in the region. UNRWA is irreplaceable.

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) February 1, 2025
Þá óskaði hún forvera sínum, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, til hamingju með nýtt hlutverk sem sérstakur sendifulltrúi aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins í málefnum úkraínskra barna.

Congratulations on your new role as @coe Special Envoy on the situation of children of Ukraine dear @thordiskolbrun! I wish you the best in this important role and look forward to our co-op. Your compassion, conviction & experience will contribute greatly to this important cause.

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) February 5, 2025
Ráðherra vottaði fórnarlömbum hinnar hræðilegu skotárásar í Örebro í Svíþjóð, og fjölskyldum þeirra, samúð sína. Flaggað var í hálfa stöng fyrir utan sendiráðið í Stokkhólmi og þá hefur forseti Íslands jafnframt sent Karli Gústaf 16. Svíakonungi og sænsku þjóðinni samúðarkveðju.

I am profoundly saddened by the tragic loss of life as a result of the Risbergska school shooting in Örebro. My thoughts are with the victims, their families and those affected by this devastating event.

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) February 4, 2025

Símtöl Þorgerðar Katrínar við kollega sína héldu áfram en hún heyrði meðal annars í Vivian Motzfeldt, sem fer meðal annars fyrir utanríkismálum Grænlands, í síðustu viku. Rauður þráður þess samtals var hið sterka samband Íslands og Grænlands.

Important conversation with @GreenlandMFA Vivian Motzfeldt today. Greenland and Iceland share a deep bond and a rich history, and I am excited to continue strengthening our collaboration 🇮🇸🇬🇱 pic.twitter.com/r6pv6WbuYy

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) January 31, 2025
Þá heyrði hún í Kestutis Budrys, utanríkisráðherra Litáen, í síðustu viku. Meðal umræðuefna voru tvíhliða samband Íslands og Litáen, samvinna ríkjanna í tengslum við samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) og málefni Úkraínu.

Great phone call with @BudrysKestutis on the strong 🇮🇸🇱🇹 bilateral ties, the ever-growing importance of Nordic-Baltic co-op, & opportunities for enhanced co-op in a European context. We also discussed our commitment and support towards the goal of a just and lasting peace in 🇺🇦. pic.twitter.com/hmelWm8WNl

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) January 31, 2025

Fjallað var um loftrýmisgæslu Finna á Íslandi en fjórar finnskar F/A 18 Hornet orrustuþotur gæta loftrýmis Íslands um þessar mundir, í fyrsta sinn síðan Finnland gekk í Atlantshafsbandalagið. Fimmtíu manna sveit úr finnska flughernum kom með þotunum.

  

Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri og Einar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í Genf, kynntu setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir starfsfólki utanríkisráðuneytisins, sendiskrifstofum Íslands og sendiskrifstofum ríkja með fyrirsvar gagnvart Íslandi í dag. Í kynningunum var farið yfir áherslur Íslands í setunni sem stendur yfir tímabilið 2025 til 2027 og umfjöllunarefni fyrstu fundalotu Íslands sem aðili að ráðinu að þessu sinni, en hún hefst 24. febrúar nk.

Today, PR Einar Gunnarsson presented Iceland's priorities during our HRC membership and #HRC58 to MFA staff and Embassies accredited to Iceland. Looking forward to constructive dialogue during the upcoming session. pic.twitter.com/4pZtDbCXSi

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) February 7, 2025
Athygli var vakin á alþjóðlegum degi gegn limlestingum á kynfærum kvenna. Ísland styður sérstakan sjóð Sameinuðu þjóðanna sem vinnur að því að útrýma þessum skaðlega sið á heimsvísu, og leggur baráttunni lið í tvíhliða samstarfi við UNFPA í Síerra Leóne.

 

Í dag er alþjóðlegur dagur gegn limlestingum á kynfærum kvenna. Ísland styður @GPtoEndFGM, sjóð Sameinuðu þjóðanna sem vinnur að því að útrýma þessum skaðlega sið á heimsvísu, og leggur baráttunni lið í tvíhliða samstarfi við @UNFPA í Síerra Leóne.#Unite2EndFGM 🤝 #EndFGM pic.twitter.com/LmzptUP1oU

— Utanríkisráðuneytið 🇮🇸 (@utanrikisthjon) February 6, 2025
Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Washington D.C., afhenti í vikunni orðsendingu um skipun sem áheyrnarfulltrúi Íslands hjá samtökum Ameríkuríkja. Luis Almagro, framkvæmdastjóri samtakanna tók við orðsendingunni og áttu þau stuttan fund í kjölfarið.

Ambassador 🇮🇸 @svanhildurholm presented her credentials as Permanent Observer Representative of Iceland to the Organization of American States to @Almagro_OEA2015 Secretary General of @OAS_official earlier this week. https://t.co/MLuf1q9E9A

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) February 5, 2025
Svanhildur átti að auki samtal um orkumál við Chris Barnard, forseta hugveitunnar American Conservation Coalition (ACC).

Good discussion on US energy policy with @chrisbarnard President of @ACC_National. Thank you for visiting us at the Embassy. pic.twitter.com/9LpO8Eomck

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) February 7, 2025

Arthúr Björgvin Bollason flutti í vikunni kynningu um bók sína um Ísland í sendiráðinu í Berlín fyrir fullum sal. Auðunn Atlason sendiherra bauð gesti velkomna og Arthúr las stutta kafla úr bók sinni, talaði um Ísland á mjög skemmtilegan og líflegan hátt og svaraði spurningum frá Tilman Spreckelsen fundarstjóra og gestum úr sal. Eftir á gátu gestir tryggt sér árituð eintök af bókinni.

  

Harald Aspelund, sendiherra í Helsinki, var í vinnuheimsókn í Lettlandi í vikunni og sótti þar meðal annars móttöku forseta landsins, Edgars Rinkēvičs.

  

Sendiráðið í Helsinki fagnaði 25 ára starfsafmæli Jyrki Peltonen í vikunni með köku og kaffi. Eru Jyrki sendar síðbúnar hamingjuóskir með þennan stóra áfanga í starfi!

Þá sótti Harald opnunarviðburð Finna vegna formennsku þeirra í Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) á þessu ári. Elina Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands, var meðal þeirra sem hélt erindi á viðburðinum.

  

Sendiráðið í Lilongwe tók á dögunum á móti Dr. Sveinbirni Gizurarsyni og fjölskyldu en hann rekur fyrirtæki sem hefur það meginmarkmið að hlúa að heilsu og lífi ungra barna í Malaví með framleiðslu á lífsnauðsynlegum og lífsbætandi lyfjum í formum sem henta fyrir börn yngri en fimm ára.

  

Þá tóku Davíð Bjarnason forstöðumaður og starfsfólk sendiráðsins í Lilongwe þátt í fundi í tengslum við framkvæmd verkefna í Nkhotakota-héraði.

  

Sturla Sigurjónsson, sendiherra í London, bauð viðskiptasendinefnd á vegum Bresk-íslenska viðskiptaráðsins velkomna í sendiráðsbústaðnum í vikunni. Sendinefndin tók meðal annars þátt í norrænu viðskiptaþingi sem norrænu viðskiptaráðin í London stóðu fyrir.

  

Þá tók Sturla á móti Melani Onn, þingmanni Grimsby, í vikunni. Þau ræddu sjávarútvegsmál, sölu íslenskra sjávarafurða í Bretlandi og reynslu Íslendinga af fullnýtingu sjávarfangs.

  

Okkar fólk í Ottawa, þar með talið Hlynur Guðjónsson sendiherra, sóttu vetrarhátíð sem embætti landstjóra Kanada stóð fyrir. Þar hafði sérstöku norrænu þorpi verið komið upp þar sem vakin var athygli á norrænni menningu og náttúru.

  

Högni Kristjánsson, sendiherra í Osló, var meðal viðstaddra þegar sendiherra Svíþjóðar í Noregi veitti hina konunglegu Norðurstjörnuorðu til Stian Jenssen sem gegndi embætti skrifstofustjóra á skrifstofu Jens Stoltenberg þegar hann gegndi embætti aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

  

Rithöfundurinn Einar Kárason hélt ferð sinni áfram um Svíþjóð og kom meðal annars fram á bókmenntaviðburðum í Stokkhólmi. Sagt var frá heimsókn Einars til Svíþjóðar í síðasta föstudagspósti.

  

Ernesto Lumenario, sem starfað hefur fyrir sendiráð okkar í Tókýó frá árinu 2001, var heiðraður með þriðja stigs heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar í móttöku í sendiráðinu. Þetta er viðurkenning fyrir ómetanlegt framlag hans og óbilandi trúmennsku í gegnum árin. Til hamingju, Ernesto!

  

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti ræðu fyrir hönd Norðurlandanna þar sem hún ítrekaði mikilvægi kynjajafnréttis og valdeflingar stúlkna á fundi á vettvangi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.

At the 1st Regular Session of the @UNICEF_Board, #Iceland on behalf of the Nordics emphasized that a continued focus on gender equality & girls empowerment is essential to the success of @UNICEF in working for the attainment of children’s rights 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪 https://t.co/vRWtBisNw5 pic.twitter.com/oWsTRBVl6n

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 5, 2025
Þá birti fastanefndin í New York yfirlýsingu sem Ísland tekur undir ásamt 78 ríkjum þar sem stuðningur við Alþjóðlega sakamáladómstólinn er ítrekaður sem og við alþjóðalög og mannréttindi.

Iceland 🇮🇸 is among 79 States Parties that have joined the following statement in support of the International Criminal Court. pic.twitter.com/OaHbtmj3Ex

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 7, 2025
Sendiráð okkar í Freetown og fulltrúar UNICEF á Íslandi tóku höndum saman og heimsóttu Loko og Moyamba í Síerra Leóne. Þar er meðal annars unnið að því að bæta hreinlæti og aðgang að hreinu vatni. Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiráðsins, og Pálína B. Matthíasdóttir, deildarstjóri á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, voru í ferðinni fyrir hönd ráðuneytisins.

The Embassy this week joined @UNICEFSL for successful field visits to Port Loko and Moyamba where Iceland is collaborating with UNICEF and the Government of Sierra Leone in providing improved access to safe & clean #WASH services in costal communities. pic.twitter.com/kiZcaP9hbv

— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) February 5, 2025

Fleira var það ekki þessa vikuna — góða helgi!

Kveðja,

Upplýsingadeild.