02 október 2025

/

Föstudagspóstur 26. september 2025

Heil og sæl.

Föstudagspósturinn er loksins kominn aftur úr löngu sumarfríi en við vitum að hann er aufúsugestur á hverju heimili!

Eins og skógarbjörn sem vaknar eftir langa hvíld kann það að taka aðstandendur nokkur skipti að komast í gírinn – en við vitum að það taka auðvitað allir viljann fyrir verkið.

Að því sögðu skulum við renna yfir það helsta sem á daga okkar í utanríkisþjónustunni hefur drifið að undanförnu. Nóg hefur verið að gera, ekki síst á ráðherraskrifstofu en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra alla þessa viku sótt leiðtogaviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York.

Allsherjarþing SÞ – UNGA 80

Þriðjudaginn 22. september var allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sett í áttugasta skiptið en daginn áður hafði raunar farið fram sérstakur hátíðarviðburður í tilefni áttatíu ára afmælis Sameinuðu þjóðanna. Bæði utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sóttu afmælisviðburðinn og setningu allsherjarþingsins. Ráðherrarnir áttu einnig fund með Antionio Guterres þar sem ástandið á Gaza, árásarstríð Rússa og staða SÞ voru til umræðu

 

Pleasure to meet UNSG @antonioguterres again along with 🇮🇸 Prime Minister Kristrún Frostadóttir. Iceland is committed to support efforts to reinvigorate the United Nations, it is quite clear that the importance of the UN has not diminished. We must come together & do our part. pic.twitter.com/3xYKaf7H50

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) September 22, 2025

 

Ástandið í Palestínu bar sérlega hátt í leiðtogaviku allsherjarþingsins. Utanríkisáðherra tók þátt í umræðum um hörmungarnar í Palestínu, fundaði með framkvæmdastjóra UNRWA, og flutti áhrifamikla ræðu á sérstökum viðburði um ákall um aðgerðir í þágu palestínskra barna. Hægt er að sjá brot úr ræðunni HÉR.

Dagskrá ráðherra í vikunni bar keim af áherslum Íslands á að borin sé virðing fyrir alþjóðalögum, samstöðu í loftslags- og umhverfismálum, kynjajafnrétti og réttindi hinsegin fólks. Tæmandi yfirliti verður ekki komið fyrir hér en bent á X-síðu ráðherrans. Ráðherra átti nokkra mikilvæga tvíhliða fundi, s.s. með utanríkisráðherrum GrænlandsNýja-SjálandsKósóvóKýpurFæreyja og Marokkó, auk framkvæmdastjóra UN Women, og Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNFPA. Auk þess tók ráðherra þátt í ýmsum pallborðsumræðum t.a.m. um alþjóðalög á vegum David Lammy, varaforsætisráðherra Bretlands, og umræðum um kynjajafnrétti á vegum Reykjavík Global Forum.

Ráðherra ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær í fyrsta sinn í umræðum um gervigreind og þróun hennar í tengslum við öryggis- og varnarmál. Hægt er að nálgast ávarpið, sem hún flutti í nafni allra Norðurlandanna, HÉR.

Ísland styður við málefni hinsegin fólks:  á mánudaginn undirritaði ráðherra samning um áframhaldandi stuðning Íslands við samtökin Outright International sem sinna mikilvægum stuðningi við grasrótarsamtök hinsegin fólks. Um er að ræða 150 milljón króna framlag til 18 mánaða. Ráðherra flutti einnig ávarp á sérstökum fundi ríkjahóps um hinsegin réttindi hjá SÞ (LGBTI Core Group), en Ísland var meðal formlegra gestgjafa fundarins.

 

Immensely thankful and proud to confirm 🇮🇸 contribution to the important work of @OutrightIntl. In times of backlash and funding cuts, human rights, gender equality and the rights of LGBTI people remain core priorities in 🇮🇸 foreign policy and development cooperation. pic.twitter.com/0Zu56cmGlg

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) September 22, 2025

 

Ráðherra flytur sitt árlega ávarp á allsherjarþinginu á morgun þann 27. september 2025. Við segjum auðvitað frá því í næstu viku. En ofangreind upptalning sýnir auðvitað vel að utanríkisráðherra liggur ekki á liði sínu. Þvert á móti. Og eftir höfðinu dansa limirnir. Líkt og hún hafa sendiskrifstofurnar okkar verið sérlega viðburðaglaðar í vikunni.

Bretland

Íslenskir hönnuðir gerðu góða hluti á London Fashion Week fyrr í vikunni, en sendiráði Íslands í London var umbreytt í glæsilegan sýningarsal þar sem hönnuðurinn Sól Hansdóttir sýndi ný hönnunarverk sín. Sannkölluð high-fashion diplómasía!

 

Noregur

Sendiráðið okkar í Ósló stóð að tveimur flottum viðburðum á Oslo Innovation Week, sem átti sér stað dagana 20. – 24. október. Viðburðurinn „Bare si det: Innovation for a Multilingual Workforce“ fjallaði um það hvernig fyrirtæki geta beitt nýsköpun á sviði tungumálatækni til þess að styrkja tengsl milli starfsfólks á vinnustöðum. Seinni viðburðurinn „Next Generation Nordics: Making Nordic Collaboration Cool Again“ var haldinn í samstarfi við Íslandsstofu og önnur norræn sendiráð. Á viðburðinum var fjallað um verðmæti „norræna vörumerkisins“ og fengu frumkvöðlar og fulltrúar fyrirtækja tækifæri til þess að styrkja tengslanet sín.

 

Svíþjóð

Árlega bókamessan í Gautaborg opnaði í gær með pomp og prakt og stendur yfir fram á sunnudaginn 28. september, skipuleggjendur áætla að um 80þús bókaunnendur mæti á viðburðinn. Sendiráð Íslands í Svíþjóð er í óða önn að auglýsa íslenska rithöfunda og útgefendur sem taka þátt í bókamessunni með átakinu „Läs isländska böcker“. Yrsa Sigurðardóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Hrafnhildur Hagalín, Birnir Jón Sigurðsson og Hrafnhildur Hagalín eru meðal Íslendinga sem taka munu þátt í umræðum og öðrum dagskrárliðum bókamessunnar. Sjá: Island på Bokmässan 2025.

Í vikunni kom einnig nýstofnaður íslenskur kór saman í sendiráðsbústaðnum í Stokkhólmi og æfðu saman ljúfa tóna.

Danmörk

Í tilefni heimsóknar alþjóðanefndar Félags kvenna í atvinnurekstri á Íslandi til Danmerkur bauð Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í DK, til mótttöku í sendiráðsbústaðnum. Meðal gesta voru fulltrúar Félags kvenna í atvinnurekstri í Danmörku og KATLA Nordic.

 

Japan

Það er ýmislegt búið að eiga sér stað hjá fólkinu okkar í Tókíó. Fyrir rétt rúmlegri viku lauk atvinnuvegaráðherra heimsókn sinni til Japans þar sem hún m.a. heimsótti heimssýninguna í Osaka, Hiroshima og Tókíó. Á mánudaginn hitti sendiherra Íslands í Japan, Hreinn Pálsson, borgarstjóra Tama, en fyrr á árinu undirritaði borgarstjóri Reykjavíkur og borgastjóri Tama viljayfirlýsingu um aukið samstarf og nánari vinabönd milli borganna tveggja.

 

 

Kanada

Sendiherra Íslands í Kanada, Hlynur Guðjónsson, og sendiherrar annarra Norðurlanda tóku þátt í sameiginlegri norrænni heimsókn til Edmonton og Calgary til þess að styrkja tengsl milli Alberta fylkis og Norðurlandanna, en ferðin var að hluta til fjármögnuð af Norrænnu ráðherranefndinni. Sendiherrarnir m.a. funduðu með ríkisstjóra Alberta fylkis, heimsóttu háskólann í Calgary og fjölda annarra stofnana og fyrirtækja. Þar að auki tóku sendiherrarnir þátt í þremur mismunandi viðburðum á vegum Carbon Capture Canada, Canada West Foundation, og Banff Global Business Forum.

 

 

Indland

Einungis 5 dagar eru í það að fríverslunarsamningur EFTA og Indlands taki gildi. Benedikt Höskuldsson, sendiherra okkar í Indlandi, fjallaði um tækifæri til aukins samstarfs og fjárfestingar milli EFTA ríkjanna og Indlands í Instagram reels.

Á fimmtudaginn 25. september tók sendiráðið í Nýju Delí einnig þátt í skipulagningu morgunviðburðar ásamt Unicef og sendiráðum annarra Norðurlanda um mikilvægi aðgengilegs að hreinu vatni og sjálfbærrar vatnsnotkunar.

 

 

 

 

Pólland og Litháen

Níu fulltrúar utanríkismálanefndar Alþingis heimsóttu Litáen og Póllandi í vikunni, en fundað var í Vilníus og Varsjá. Harald Aspelund, sendiherra Íslands gagnvart Litáen, annaðist upplýsingaöflun fyrir hópinn og var honum innan handar í Vilníus og heimsótti m.a. litáíska þingið ásamt þingmannahópnum. Fulltrúar utanríkisrmálanefndar Alþingis áttu sömuleiðis fundi með sérstökum ráðghafa forseta Litáen, um þjóðaröryggi, og varautanríkisráðherra og varavarnarmálaráðherra.

Því næst hélt hópurinn til Varsjár þar sem sendiherra Íslands í Póllandi, Friðrik Jónsson, tók á móti þingmönnunum. Þar áttu utanríkismálanefndir þinganna í fyrsta sinn sameiginlegan fund og voru tvíhliða samskipti ríkjanna, pólska samfélagið á Íslandi og öryggismál í Evrópu meðal helstu umræðuefna. Þá átti nefndin fundi með fulltrúum pólskra hugveitna og fjölmiðla, auk þess sem nefndinni var boðið í pólska utanríkisráðuneytið þar sem Władysław Teofil Bartoszewski aðstoðarutanríkisráðherra var gestgjafi

 

 

Úganda

Sendiráðið okkar í Kampala fjallaði um heimsókn Pálínu Matthíasdóttur, deildarstjóra tvíhliðadeildar þróunarsamvinnuskrifstofu UTN, á Facebook-síðu sinni en hún var þangað komin til að kynna sér framgang UNICEF-verkefnis sem Ísland styður við í tveimur héruðum í vesturhluta Úganda. Um þúsund mæður á unglingsaldri og börn þeirra njóta góðs af stuðningi í gegnum verkefnið.

 

 

Grænland

Það er skammt stórra högga á milli hjá ræðismannsskrifstofunni okkar í Nuuk því að ekki fyrr var utanríkisráðherra farin, eftir heimsókn þangað nýverið, að aðalræðismaður vor, Þórður Bjarni Guðjónsson, var í fréttum Sýnar í gær vegna nýrra fánalaga í Grænlandi sem tóku gildi í síðasta mánuði, en Grænlendingar ákváðu að heiðra Íslendinga með því að gera þjóðhátíðardag okkar, 17. júní, að opinberum fánadegi þar í landi. Ekki nóg með það, þá er sérstaklega kveðið á um það í fánalögunum nýju að flagga megi íslenska fánanum.

 

 

Ekki verður lengra komist að þessu sinni en þeir sem liggja óbættir hjá garði komast að næst, eða kannski þarnæst!