03 október 2025

/

Föstudagspóstur 3. október 2025

Heil og sæl.

Við hefjum föstudagspóstinn á stórafmæliskveðju, en ráðherra fagnar 60 árum á morgun.

Hún lengi lifi! Húrra! Húrra! Húrra! 

Starfsfólk kom saman í stiganum milli þriðju og fjórðu hæðar og söng afmælissönginn, reyndar nokkuð áhyggjufull yfir burðargetu stigans. Nú vitum við það að stiginn þolir svona hópmyndatökur.

 Starfsfólk kom saman til að syngja afmælissönginn

 

Líkt og greint var frá í síðustu viku þá tók ráðherra þátt í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, en hún ávarpaði allsherjarþingið laugardaginn 27. september. Í ávarpi sínu kallaði ráðherra eftir því að þjóðir heimsins tækju höndum saman við að endurvekja þann anda og leiða til öndvegis þær hugsjónir sem leiddu til stofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir 80 árum. Ráðherra lagði áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum, mannréttindum og friðsamlegri úrlausn deilumála. Ráðherra beindi einnig athyglinni að hörmungunum á Gaza og í Úkraínu. 

 

Í gær var grein eftir ráðherra birt á Vísi, en í henni fjallar ráðherra um þátttöku sína í allsherjarþinginu og mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og þess alþjóðakerfis sem byggst hefur upp frá seinna stríði. 

Síerra Leóne

Nýr leikskóli var opnaður og heilsugæsla endurnýjuð í Síerra Leóne með stuðningi Íslands! Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, tók skóflustunguna að leikskólanum fyrir rúmu ári síðan og nú er fyrsti árgangur leikskólabarna mættur í skólann. Elín heimsótti einnig endurnýjuðu heilsugæsluna sem fékk nýjan læknabúnað afhendan til að bæta fæðingarþjónustu og mæðravernd.

 

 

Þýskaland

Það var margt um manninn á kynningarviðburði sendiráðsins okkar í Berlín, en yfir hundrað verðandi Íslandsvinir mættu á kynninguna "Magnificent Iceland - an expedition sea voyage".

 

Sendiherra okkar þar, Auðunn Atlason, bauð einnig fulltrúum þýskra stórfyrirtækja í hádegisverð og fékk Þóreyju V. Proppé, framkvæmdastjóra Öldu, hugbúnaðarfyrirtækis, til þess að breiða út boðskap jafnréttis, fjölbreytni og inngildingar í vinnustaðamenningu. 

Þar að auki kom sendiráðið einnig að skipulagningu viðburðar til að minnast ævistarfs Dr. Wolfgang Edelstein, fyrrum forstjóra Max-Planxk Institute og menntamálaráðgjafa. 70 manns mættu á viðburðinn. Arthúr Bollason, fjölmiðlamaður, flutti erindi og Dr. Berglind Rós Magnúsdóttir flutti fyrirlestur. 

Módel NATO

Hátt í hundrað ungmenni á aldrinum 18 til 25 ára tóku þátt í „módel-NATO ráðstefnu“ sem fór fram í Smiðju (Alþingi) þann 1. október. Á ráðstefnunni tókust ungmennin sameiginlega á við ímyndaðar öryggisáskoranir með það að markmiði að auka diplómatíska færni, styrkja samninga tækni, og kynna innra starf NATO. Viðburðurinn var á vegum utanríkisráðuneytisins, breska sendiráðsins og Alþingis, í samstarfi við Skjöld-YATA og Varðberg.

 

Danmörk

Það er búið að vera nóg um að vera í Danaveldi þessa vikuna vegna European Political Community (EPC) leiðtogafundarins í Kaupmannahöfn dagana 1. og 2. október. Forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sótti fundinn og stýrði m.a. hringborðsumræðu um efnahagsmál í Evrópu. Hér má sjá forsætisráðherra með Pétri Ásgeirssyni, sendiherra, en hún kíkti í kaffi í sendiráðið. 

 

 

 

Bretland

Sendiráð okkar í Bretlandi greindi frá því að fjórir íslenskir leiðbeinendur frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins taka nú þátt í þjálfun úkraínskra hermanna í fyrstu hjálp á vígvelli. Verkefnið er í samvinnu við Utanríkisráðuneytið og breska herinn, en þátttaka Íslands e rhluti af varnartengdum stuðningi Íslands við Úkraínu. Sturla Sigurjónsson, sendiherra, mætti á svæðið ásamt varamanni sendiherra, Ragnhildi Arnórsdóttur og fylgdust með æfingum. 

 

 

Íslenska heimildarmyndin "The Day Iceland Stood Still" eftir Pamelu Hogan var frumsýnd í Dublin í gær að tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins. Sendiherra sótti frumsýninguna, en hann tók þátt í pallborðsumræðum ásamt framleiðanda myndarinnar, Hrafnhildi Gunnarsdóttur. 

 

 

Indland

Fríverslunarsamningur milli Indlands og EFTA ríkjanna tók gildi í vikunni með tilheyrandi húllumhæi þann 1. október. Sendiherra Íslands á Indlandi, Benedikt Höskuldsson, og varamaður sendiherra, Tinna Sveinsdóttir, sóttu "India-EFTA Prosperity Summit", ásamt Ragnari Kristjánssyni, skrifstofustjóra viðskiptaskrifstofu, og íslenskri viðskiptasendinefnd.

 

 

Þar að auki birti sendiráðið þrjú flott myndbönd þar sem Benedikt, Tinna og Ragnar fjalla um nýja fríverslunarsamninginn og tækifærin sem í honum leynast. - Vel gert!

Kanada

Sendiráðið í Kanada er búið að vera flækjast um Québec með stórri sendinefnd skipaðri fulltrúum áliðnaðarins á Íslandi. Skipuleggjendur heimsóknarinnar voru íslenski Álklasinn og kanadíski "Ál-dalurinn" (Aluminium Valley Society). Einnig var fulltrúum íslensks atvinnulífs boðin þátttaka í ársfundi Fisheries Council of Canada. Sendiherra Íslands þar í landi, Hlynur Guðjónsson, tók þátt í panelumræðum. 

 

 

Noregur

Sendiherra okkar í Noregi, Högni Kristjánsson, tók þátt í hátíðarhöldum í Flekke á vesturströnd noregs í tilefni af 30 ára afmæli United World College menntaskólans í Noregi. Skólinn er samstarfsverkefni allra Norðurlanda og Rauða krossins auk annarra styrktaraðila. 

Sendiráðið, í samstarfi við Háskólans í Ósló, stóð einnig fyrir málstofu um Þorskastríðin þar sem enginn annar en Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti og prófessor í sagnfræði, hélt erindi um fullveldi, hafrétt og stórpólitík. Að viðburði loknum bauð sendiherra síðan í íslenskan plokkfisk og annað góðgæti. - Þjóðlegt og strangheiðarlegt. 

 

 

En France

Í Frakklandi tók Ólafur Sigurðsson, varafastafulltrúi, þátt í Íslandshátíð sem haldin var í Gravelines, norður Frakklandi. Gravelines hefur til margra ára verið vinabær Fáskrúðsfjarðar (og síðar Fjarðabyggðar) þar sem bæirnir tengjast nánum böndum vegna franskrar sjómennsku við strendur Austurlands. 

 

 

Snæfellsnes hlaut nýlega viðurkenningu Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO) sem fyrsti UNESCO vistvangurinn á Íslandi. Ísland er því nú hluti af alþjóðlegu neti vistvanga sem nær til 759 svæða í 136 löndum og þá má nú finna á öllum Norðurlöndunum. Verkefnið nýtir reynslu og þekkingu annarra vistvanga víða um heim þar sem sjálfbærni, nýsköpun og samfélagsuppbygging fara saman.

 

During the 5th World Congress of Biosphere Reserves in Hangzhou, Snæfellsnes was designated as #Iceland's 🇮🇸 first @UNESCO biosphere reserve! Snæfellsnes has a diverse landscape of lava fields, waterfalls and a glacier, rich wildlife & cultural heritage: https://t.co/gIglKnVvH5 pic.twitter.com/baKh7vk19A

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) October 3, 2025

Ísland gegnir formennsku Vinahóps jafnréttismála á vettvangi UNESCO ásamt Brasilíu og hélt hópurinn fyrsta fund vetrarins. Auðbjörg Halldórsdóttir fastafulltrúi var fundarstjóri ásamt fastafulltrúa Brasilíu og kynnti jafnréttisstýra UNESCO, Begona Lasagabaster, helstu verkefni stofnunarinnar í jafnréttismálum.

 

The UNESCO Group of Friends for Gender Equality, co-chaired by 🇮🇸 and 🇧🇷, met to discuss Global Priority Gender Equality. The meeting hosted the Dir. of UNESCO's Gender Equality Division, who led productive discussions on the GEMs ahead of the #222EXB. pic.twitter.com/jfxYFNlnY1

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) October 2, 2025

 

 

Svíþjóð

Líkt og greint var frá í síðustu viku, þá er átti Bókamessan í Gautaborg sér stað seinustu helgi þar sem fjöldi íslenskra rithöfunda og bókaútgefenda tóku þátt í ýmsum viðburðum. Meðal annars gátu gestir og gangandi gætt sér á íslenskri síld og lært um sögu síldarinnar

Senidráðið tók þátt í viðburði í tilefni Evrópska tungumáladagsins í Stokkhólm, en þar rabbaði starfsfólk við gesti um íslenska menningu og hina íslensku tungu. Meira en 600 manns mættu!

 

 

Pólland

Öryggisráðstefnan í Varsjá (Warsaw Security Forum) átti sér stað í vikunni. Sendiherra okkar í Póllandi, Friðrik Jónsson, sótti fundinn ásamt Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar Alþingis, og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, varaformanni nefndarinnar. Sendiherra sótti einnig opnun nýs æfingarsvæðis í Lipa, Póllandi,en æfingarsvæðið er hluti af NB8 samstarfi til stuðnings við Úkraínu. 

 

 

Færeyjar

Aðalræðisskrifstofan okkar í Færeyjum greindi frá heimsókn landsnefndar UNESCO til Færeyja fyrir skömmu. Landsnefndin tók þátt í norrænum fundi um málefni UNESCO og áherslur Norðurlanda. Aðalræðismaður okkar, Hannes Heimisson, tók á móti þeim í Þórshöfn. 

 

 

 

Fleira var það ekki þessa vikuna, góða helgi!

kveðja, 

Upplýsingadeild