17 október 2025
/
Föstudagspóstur 17. október 2025
Heil og sæl.
Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra en hún tók þátt í fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel í vikunni.
Ráðherra átti í dag þríhliða fund með starfssystrum sínum frá Færeyjum og Grænlandi, Sirið Stenberg og Vivian Motzfeldt, í tengslum við Hringborð norðurslóða sem haldið er um þessa helgi í Hörpu. Í dag átti ráðherra einnig tvíhliða fund með færeyska utanríkisráðherranum og í gær með utanríkisráðherra Finnlands, Elinu Valtonen, sem einnig er stödd hérlendis vegna Hringborðs norðurslóða.
Starfsólk sendiráðsins okkar í Peking hefur staðið í ströngu við að styðja við opinbera heimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til Kína, en heimsóknin hófst á sunnudaginn og lýkur í dag. Hér má sjá sendiherra Íslands gagnvart Kína, Þórir Ibsen, við komu forseta til landsins. Búist er við fleiri flottum myndum úr heimsókninni á næstu dögum - stay tuned!
Staða og horfur í alþjóðahagkerfinu, samstaða með Úkraínu og atvinnusköpun í þróunarríkjum voru meðal umræðuefna á ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington D.C. í vikunni.
Breakfast with amazing women leaders at the #WBMeetings. Women are born leaders, resilient, visionary, and courageous. Let’s make sure every setback fuels progress, not silence. #GenderEquality #WomenInLeadership pic.twitter.com/rIw0vebuJ9
— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) October 16, 2025
Ýmsilegt hefur gerst á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES undanfarnar vikur en tveir nýjir samningar hafa nýlega verið undirritaðir um nýtt framkvæmdatímabil sjóðsins fyrir árin 2021-2028, annars vegar við Lettland og Króatíu hins vegar. Hér fyrir neðan má sjá Helgu Hauksdóttur, sendiherra okkar í Vínarborg og sendiherra gagnvart Króatíu, ásamt Arne Sannes Bjornstad, sendiherra Noregs, og Natasa Mikus Zigman, ráðherra byggðaþróunar og Evrópusambandssjóða, að undirritun lokinni. Fyrr í sumar var undirritað svipað samkomulag við Slóvakíu.
Manréttinda- og lýðræðisráðstefna Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) átti sér stað í Varsjá í liðinni viku. Helga Hauksdóttir sendiherra og fastafulltrúi gagnvart ÖSE, flutti ávarp á opnunarfundi ráðstefnunnar og fjallaði m.a. um áhrif innrásar Rússlands í Úkraínu á mannréttindi, illa meðferð á úkraínskum stríðsföngum, og kallaði eftir því að Rússland skili úkraínskum börnum sem þeir hafa numið á brott.
Freetown
Ásdís Bjarnadóttir forstöðumaður sendiskrifstofunnar okkar í Freetown tók þátt í "National Girls Summit" fundinum og hélt þar tölu. Fundurinn var skipulagður af GADNet samtökunum sem berjast fyrir réttindum og hagsmunum kvenna og stúlkna.
"To the girls of Sierra Leone I say: Always remember that
— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) October 17, 2025
your dreams matter, that your voices are powerful and that your leadership will continue to shape the future of Sierra Leone and beyond."
- Ásdís Bjarnadóttir, Head of Mission@GadnetSl #EmpowerGirls pic.twitter.com/ysMk0Q7iIQ
Nýja Delí
Í vikunni hélt Benedikt Höskuldsson, sendiherra okkar á Indlandi, ræðu á viðburðinum „Entrepreneurship in the Climate Economy: Women Innovators Shaping a Low-Carbon Future".
Fastanefnd Íslands í Róm
Það er ýmislegt búið að eiga sér stað hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í Róm undanfarnar vikur. Fastanefnd okkar í Róm bauð til fyrsta samráðsfundar norrænna ríkja í húsakynnum fastanefndarinnar. Í kjölfar fundarins áttu fastafulltrúar Norðurlandanna fund með aðstoðarfjorstjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, Carl Skau, þar sem þau ræddu lækkandi framlög aðildarríkja til Matvælaáætlunarinnar. Áætlað er að umsvif stofnunarinnar í ár verði um helmingur þess sem þau voru árið 2022 og starfsfólki fækkað um fjórðung. Hér má sjá Guðmund Árnason fastafulltrúa og Berglindi Bragadóttur ásamt norrænum kollegum.
Berlín
Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, var gestgjafi í vinnuhádegisverði norrænna sendiherra með Karin Prien, ráðherra mennta-, fjölskyldu- og jafnréttismála í ríkisstjórn Þýskalands.
Íslenskar bókmenntir voru kynntar á árlegu og sívinsælu bókmenntahátíðinni í Frankfurt. Þar sameinuðu norræn bókmenntasamtök krafta sína og voru, í fyrsta sinn, með sameiginlegan norrænan bás. Sendiherra stóð þar eina vaktina og ræddi við gesti og gangandi um íslenskar bókmenntir. Fundað var einnig með íslenskum og þýskum bókaútgefendum, Miðstöð íslenskra bókmennta og forstjóra bókamessunnar í Leipzig.
Brussel
Ýmislegt hefur gengið á hjá sendiráðinu okkar í Brussel í vikunni. Sendiráðið hélt stóran viðburð í EFTA húsinu sem bar heitið „Our Climate Future" í samstarfi við Íslandsstofu og Grænvang með aðkomu Samorku. Sendiherra Íslands í Brussel, Stefán Haukur Jóhannesson, opnaði málþingið. Jóhann Páll Jóhansson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hélt erindi ásamt Dan Jørgensen, framkvæmdastjóra orku- og húsnæðismála ESB. Einnig var fólk í pallborði frá íslenska orkugeiranum, atvinnulífinu og vísinda- og háskólasamfélaginu ásamt fulltrúum framkvæmdarstjórnar ESB sem koma að aðgerðaráætlun ESB um jarðvarma.
Í vikunni fagnaði Samorka opnun skrifstofu sinnar í Brussel þar sem sendiherra hélt ávarp og lagði áherslu á hversu mikilvægt skref væri stigið með opnun skrifstofunnar í Brussel til þess að styðja við hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.
Sendiráðið tók einnig á móti heimsókn frá Samtökum iðnaðarins, en hópurinn fékk kynningu á starfsemi sendiráðsins og um hagsmunagæslu Íslands og EES samstarfið.
París
Sendiherra okkar í París, María Mjöll Jónsdóttir, tók þátt í sameiginlegum sendiherrafundi Norðurlanda og Benelúxlanda þar sem enginn annar er François Hollande, fyrrum Frakklandsforseti, var sérstakur gestur.
J’ai eu l’honneur d’échanger aujourd’hui avec François Hollande et mes collègues des pays nordiques et du Benelux sur la situation nationale, les affaires mondiales, le soutien à l’Ukraine et la démocratie, à l’invitation de @NorAmbFR . pic.twitter.com/XVAKfIZUrY
— Maria Jonsdottir (@mariamjolljons) October 15, 2025
Fulltrúar sendiráðsins kíktu einnig í kaffi til Bjargeyjar Ólafsdóttur, myndlistarkonu, sem dvelur í Kjarvalsstofu í Cité Internationale des Arts, stúdíóíbúð og vinnustofu í miðborg Parísar í umsjá Reykjavíkurborgar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Þar fengu fulltrúarnir okkar að skoða verk úr sýningu Bjargeyjar, Rófurass.
Lilongwe
Sendiráðið okkar stóð fyrir viðburði um valdeflingu kvenna sem starfa á sveitarstjórnarstiginu í Malaví.
Sendiráðið tók einnig þátt í vettvangsferð með UNICEF og skrifstofu sem sér um vatnsmál í Nkhotakota-héraði, en þar á Ísland þátt í þróunarsamvinnuverkefni sem ætlað er að bæta grunnþjónustu á svæðinu.
Tókýó
EXPO 2025 heimssýningunni í Osaka lauk á mánudag og nú getur sendiráðið andað ögn léttar, enda stórt verkefni fyrir sendiráðið á árinu, sem unnið var í þéttu samstarfi við Íslandsstofu. Forseti Íslands og atvinnuvegaráðherra sóttu sýninguna á árinu, líkt og áður hefur verið greint frá.
Varsjá
Í vikunni voru haldnir íslenskir tónleikar með stuðningi menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Þaðr spilaði hann Jón Ásgeirsson „Sjöstrengjaljóðið" og tók einnig pólskur kór „Heyr himnasmið". - Glæsilegt!
Meira verður það ekki í dag, góða helgi.