24 október 2025

/

Föstudagspóstur 24. október 2025

Heil og sæl.

Í dag minnumst við þess að 50 ár eru liðin frá sögulegum kvennafrídegi árið 1975, en þá lögðu 90% kvenna niður störf sín og með því skráðu þær sig á spjöld sögunnar og stigu stórt framfaraskref fyrir samfélag okkar. Mörkuðu líka leiðina fyrir okkur, með afgerandi hætti. Í tilefni dagsins var birt grein eftir utanríkisráðherra á Vísi og ný upplýsingasíða fyrir erlendan markað sem er ætlað að vera uppspretta upplýsinga framvegis. Sendiráðin okkar víða um heim hafa sinnt þessum tímamótum með ýmsum hætti þ.á m. með sýningum á heimildamyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" og upplýsingaherferðar á samfélagsmiðlum. 

Gleðilegan kvennafrídag

 

Fifty years ago today 90% of women in Iceland went on a strike to demand gender equality. Thus began a journey.

Learn more about Iceland´s Equality Story here: https://t.co/mbDPOsZkQn pic.twitter.com/vhOxZCjKpQ

— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) October 24, 2025

 

Við hefjum annars yfirferðina á dagskrá ráðherra, en dagana 19. og 20. október sótti Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, Ísland heim. Tilefni heimsóknarinnar var að undirrita tvíhliða viljayfirlýsingu um aukið samstarf í öryggis- og varnarmálum. Undirritun viljayfirlýsingarinnar markar tímamót í samstarfi milli Íslands og Þýskalands á þessu sviði, enda hið fyrsta sinnar tegundar. 

 

Pleased to sign a declaration of intent on bilateral defence cooperation with my German colleague Boris Pistorius in Reykjavik today. It will improve effectiveness & efficiency, strengthen interoperability & develop a shared understanding, in support of NATO deterrence & defence. pic.twitter.com/2VBcnKRqw0

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 19, 2025

 

"We are ready to assume greater responsibility for stability and security in the High North." During his first official visit to Iceland, 🇩🇪Defence Minister Pistorius, together with 🇮🇸 Foreign Minister Gunnarsdóttir, signed a letter of intent on closer military cooperation. 1/3 pic.twitter.com/T8ctZzmbyo

— Germany at NATO (@GermanyNATO) October 21, 2025

 

Utanríkisráðherra fundaði einnig með ítalska aðmírálnum og formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, Guiseppe Cavo Dragone, í lok síðustu viku en hann var á Íslandi til þess að ávarpa Hringborð norðurslóða og funda með íslenskum embættismönnum. 

 

Peking

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, gerði kvennafríinu og jafnréttismálum rækileg skil í samtölum sínum, viðtölum og ræðum í opinberri heimsókn hennar til Kína í síðustu viku. 

Forseti hélt ávarp á hátíðarfundi í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking og átti jafnframt fund með forseta Kína.

Forseti gerði jafnréttismálum og jarðvarma sérstök skil í samtali sem hún átti við Kelsey Cheng, fréttastjóra hjá Caixin Global, sem fram fór fyrir framan um 160 gesti í sendiráði Íslands í Peking

Forseti átti einnig fund með fulltrúum íslenskra fyrirtækja í Peking og í Shanghai, borgarstjóra Shanghai um viðskipti ríkjanna, og hélt opnunarávarp á ESG ráðstefnu forystufólks í viðskiptum. Einnig átti forseti samtal við nemendur í CEIBS viðskiptaháskólanum í Shanghai og hlýtti á tónleika City Chamber Orchestra of Hong Kong sem flutti íslenska samtímatónlist sem yfir 500 manns sóttu. 

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ásamt starfsfólki sendiráðs Íslands í Peking

Á myndinni má sjá forseta Íslands, Höllu Tómasdóttir, ásamt sendiherra Íslands í Peking, Þóri Ibsen, eiginkonu hans, Dominique Ambroise Ibsen, og starfsfólki sendiráðsins sem vitaskuld lyfti grettistaki til að heimsókn forseta gengi sem best.

Berlín

Sendiráðið okkar í Berlín stóð að bókaupplestri og spjalli við rithöfundinn Ragnar Helga Ólafsson á þriðjudaginn vegna útgáfu bókarinnar "Bókasafn föður míns" á þýsku. 

 

 

Ósló

Sendiráðið okkar í Ósló tók þátt í nýsköpunarhátíðinni „Oslo Innovation Week" og stóð fyrir tveimur vel sóttum viðburðum á hátíðinni.

Fyrri viðburðurinn var opnunarviðburður á norskri útgáfu á Bara Tala (Bare si det á norsku) sem haldinn var í sendiráðsbústað Íslands í Ósló í samstarfi við FOLKA, Diversify, TBWA og Bara Tala. 

Seinni viðburðurinn fór fram í samstarfi við norrænu sendiráðin í Noregi, Nordic Innovation og Íslandsstofu, undir yfirskriftinni „Next Generation Nordics: Making Nordic Collaboration Cool Again". Þar var lögð áhersla á mikilvægi norræns samstarfs og hvernig Norðurlönd geta styrkt stöðu sína sem sjálfbærasta svæði heims. Samræðum var stýrt af Þórði Reynissyni, sérfræðingi hjá Nordic Innovation. 

 

 

Ísland hjá Sameinuðu þjóðunum

Fyrr í vikunni gaf Alþjóðadómstóllinn í Haag ráðgefandi álit vegna neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna á Gaza. Utanríkisráðherra kallaði eftir því að Ísrael beri virðingu fyrir lögbundnum skyldum sínum sem hernámsríki til að gera Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum kleift að veita nauðsynlega aðstoð á hernámssvæðum.

 

The ICJ’s Advisory Opinion delivered today confirms that Israel has an unconditional duty to facilitate humanitarian relief for the people of Gaza, incl. through UNRWA. Iceland calls on Israel to comply with obligations outlined in the opinion as an occupying power and UN Member.

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 22, 2025

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra og deildarstjóri málefna Sameinuðu þjóðanna hjá utanríkisráðuneytinu, flutti ávarp fyrir hönd Íslands í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær þar sem afstaða íslenskra stjórnvalda var áréttuð með skýrum hætti.

#Iceland welcomes the much-needed ceasefire for the people of #Gaza and reiterates the need for immediate and unrestricted humanitarian access to ensure the full resumption of unhindered distribution of aid to the people in need, in line with IHL.
🔗https://t.co/qvlw9ieI85 #UNSC pic.twitter.com/BXjCLAqUmU

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 23, 2025

Samhæfingarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) beindi athyglinni að lífsbjargandi mannúðaraðstoð Íslands á Gaza á samfélagsmiðlum sínum í vikunni. 

Ensuring humanitarian aid reaches the most vulnerable people in Gaza is a key element of the ceasefire deal made last week. 🇮🇸 is a proud supporter of @unocha´s work in Gaza. 👇 https://t.co/ksrdQiYh7t

— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) October 17, 2025

Vínarborg

Í tilefni 50 ára afmæli kvennafrídagsins bauð sendiherra okkar í Vínarborg, Helga Hauksdóttir, kvensendiherrum þar í borg til hádegisverðar þar sem Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, var sérstakur gestur.

Sendiherra mun einnig taka þátt í tveimur pallborðsumræðum eftir sýningar á heimildamyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" í kvöld og á morgun ásamt Doris Schmidauer, forsetafrú Austurríkis, annars vegar og Petru Bayr, þingkonu í austurríska þinginu hins vegar.

Norrænu sendiráðin í Vín efndu í sameiningu til ráðstefnu um hringrásarhagkerfið dagana 20. og 21. október sl.  þar sem sendiherrar Norðurlanda og sérfræðingar í hringrásarhagkerfum ræddu mikilvægi sjálfbærni. 

 

 

Helsinki

Það var mikið um að vera hjá kollegum okkar í Helsinki í vikunni. Sendiherra okkar þar, Harald Aspelund, hlaut þann heiður að prufukeyra glænýtt björgunarskip sem Landsbjörg á Ísafirði fær afhent á næstunni. -Kafteinn Aspelund!

 

 

Á þriðjudaginn skipulögðu sendiherrahjónin tónleika í sendiráðsbústaðnum með íslenska bandinu Umbra vegna starfsheimsóknar Loga Más Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem tók þátt í opnunarviðburði New Nordics AI, nýrrar gervigreindarmiðstöðvar Norðurlanda og Eistrasaltsríkja. 

Í gærkvöld var fjölda manns einnig boðið í opnun tveggja listasýninga í sendiráðsbústaðnum eftir íslensku listakonurnar Eygló Harðadóttur og Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur 

Tónleikar í sendiráðsbústað Íslands í Helsinki

 

Kaupmannahöfn

Eftir menningarhátíðina í Helsinki geta listaunnendur síðan hoppað yfir til Kaupmannahafnar og kíkt á sýninguna Bendingar eftir Arnfinn Amazeen sem stendur yfir í anddyri sendiráðsins okkar í Köben. 

Lilongwe

Í vikunni sótti starfsfólk sendiráðsins okkar í Malaví ný þróunarsamvinnusvæði innan Nkhotakota-héraðs þar sem byggðar verða athvörf og þjónustumiðstöðvar fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis sem og viðbyggingar við grunnskóla. 

 

Varsjá

Friðrik Jónsson, sendiherra okkar í Varsjá, heimsótti leikskóla í Kielce þar sem leikskólabörn fengu að hlusta á kynningu um Ísland og íslenskar þjóðsögur sem og bókaupplestur um Gilitrutt. 

Í kvöld tekur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum borgarstjóri og utanríkisráðherra Íslands, þátt í pallborðsumræðum eftir sýningu sendiráðsins á heimildamyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" ásamt pólsku þingkonunni Anita Kucharska-Dziedzic og Natalia Pancewicz, skipuleggjanda fyrsta pólska kvennafrídagsins. 

 

 

París

Hátt í sextíu ríki sem leggja áherslu á jafnrétti í utanríkisstefnu sinni komu saman í París í vikunni þar sem frönsk stjórnvöld stóðu fyrir fjórðu alþjóðaráðstefnunni um jafnrétti og jafnréttismiðaða utanríkisstefnu. Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og vararáðuneytisstjóri, var fulltrúi Íslands og tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni. Í heimsókn sinni fundaði Bergdís einnig með David Bertolotti, aðstoðarráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Frakklands og ræddu þau m.a. um tvíhliða samstarf Íslands og Frakklands á sviði varnar- og öryggismála, alþjóða- og Evrópumála, stöðuna í Úkraínu, o.fl. 

Bergdís Ellertsdóttir vararáðuneytisstjóri í pallborðsumræðum í París.

Nýja Delí

Fréttablaðið The Hindu birti viðtal við Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, um nýjan fríverslunarsamning EFTA ríkjanna og Indlands. Fyrr í vikunni fögnuðu margir Indverjar Diwali hátíðinni og starfsfólk okkar tóku að sjálfsögðu þátt! Sendiráðið birti einnig tvö myndbönd þar sem sendiherra og staðgengill sendiherra fjalla um kvennafrídaginn. 

 

 

 

 

  Við segjum þetta gott í bili.