31 október 2025

/

Föstudagspóstur 31. október 2025

Heil og sæl. 

Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra en hún sótti þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi sem átti sér stað dagana 28. til 30. október, þingið er einn af hápunktum norrænna stjórnmála ár hvert en fyrsta þingið var haldið árið 1953 í Kaupmannahöfn. 

Þar fundaði utanríkisráðherra með norrænum kollegum sínum, flutti greinagerð sína fyrir Norðurlandaráðsþingið og tók þátt í fjölda viðburða. Ráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþingsins ásamt Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, ásamt þingmönnum Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. 

Ráðherra tók þátt í fundi N5 ríkjanna (Ísland, Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland) og fundi ráðherranna með utanríkisráðherra Nýja-Sjálands en gefin var út sérstök sameiginleg yfirlýsing eftir fundinn. 

Einnig var ráðherra boðið í hádegisverðarboð Svíakonungs og á fund með forsætisnefnd Norðurlandaráðs. 

 

Delighted to be back in Stockholm for what will be an important 77th Session of the Nordic Council. In uncertain times, Nordic cooperation stands out – built on trust, friendship & shared values. Looking forward to valuable discussions with colleagues.

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 28, 2025

 

A pleasure to meet with my Nordic colleagues in Stockholm, joined by @NewZealandMFA Winston Peters. We discussed key global challenges, including Russia’s ongoing war of aggression against Ukraine and developments in the Indo-Pacific and Europe. Nordic unity remains strong. pic.twitter.com/jQdsa6n5GR

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 29, 2025

 

“At a time of intense geostrategic change, we wish to underline the alignment of our values, our commitment to international law and the careful management of geopolitical issues, as well as our firm commitment to sustainable economic development and partnerships.”

Joint… pic.twitter.com/dRFE6341AG

— Winston Peters (@NewZealandMFA) October 29, 2025

Stöldrum aðeins lengur við í Svíþjóð.

Stokkhólmur

Sendiráðið okkar í Stokkhólmi sýndi íslensku heimildamyndina "Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" í tengslum við 50 ára afmælis Kvennafrídagsins. Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Svíþjóð, og Ulrika Grandin, framkvæmdastjóri UN Women í Svíþjóð, fluttu opnunarávörp. 

Nuuk

Þórður Bjarni Guðjónsson, aðalræðismaður okkar í Nuuk, studdi við heimsókn forsætisráðherra Íslands til Grænlands í síðustu viku. Íslensk og grænlensk stjórnvöld staðfestu á ný vilja sinn til að efla og dýpka samstarf með endurnýjun samstarfsyfirlýsingar sem fyrst var undirrituð árið 2022. Eitt af meginatriðum heimsóknarinnar var að flýta undirbúningi við gerð viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands. 

Í nýju yfirlýsingunni leggja Ísland og Grænland áherslu á sjálfværa og uppbyggilega efnahasgþróun á Norðurslóðum. 

Hér fyrir neðan má sjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, ásamt Jens-Frederik Nielsen, formanni grænslensku landstjórnarinnar.

 

 

Peking

Sendiráð Íslands í Peking í samstarfi við Sendiráð Slóveníu blés til tónleika í vikunni þar sem Rannveig Marta Sarc, fiðluleikari, flutti dagskrá af íslenskum, kínverskum og slóvenskum perlum en Rannveig er af íslensku og slóvensku bergi brotin. Hinn vel þekkti píanóleikari, Claudia Yang, lék með. Tónleikarnir voru haldnir í húsakynnum íslenska sendiráðsins og voru vel sóttir. 

París

Fjölbreytt og skemmtileg vika er nú að baki hjá samstarfsfólki okkar í París. Í vikunni heimsótti hópur kennara Menntaskólans í Reykjavík embættisbústaðinn í París þar sem kennararnir hittu Maríu Mjöll Jónsdóttur, sendiherra, og hlutu kynningu frá starfsfólki OECD um PISA könnunina sem stofnunin heldur utan um. 

Sendiherra tók síðan þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu í Lissabon, Portúgal, um ný samvinnutækifæri í Portúgal með stuðningi Uppbyggingarsjóðs EES. Þar nýtti hún tækifærið til að afhenda ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Portúgals afrit trúnaðarbréfs og fundaði með fulltrúum ráðuneytisins. 

Friðarráðstefnan var haldin í áttunda sinn í París í vikunni. Ísland tók þátt í viðburði á vegum Frakklands og Ghana um hvernig megi greiða úr upplýsingaóreiðunni, styðja við sjálfstæða og vanda fjölmiðlun og verndun blaðamanna. Ísland skrifaði undir yfirlýsingu fundarins ásamt 28 öðrum ríkjum. 

 

 

 

 

Tókýó

Sendiráð Íslands í Tókýó stóð fyrir málþingi á föstudaginn í síðustu viku í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins í samstarfi við Nikkei Women Empowerment Project, Norrænu ráðherranefndina og Kinologue. Viðburðurinn bar heitið „Power of Equality: 50 years since women in Iceland went on Strike". Jón Gnarr, þingmaður og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, Hreinn Pálsson, sendiherra okkar í Japan, og Yoko Kamikawa, fyrrum utanríkisráðherra Japans, fluttu ávörp og tóku þátt í umræðum ásamt Agnesi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Asia.

Íslenska heimildamyndin „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" var einnig sýnd. 

 

Nýja Delí

Sendiráðið okkar á Indlandi skipulagði vinnustofu um jafnréttismál fyrir nemendur Mount Litera Zee skólans í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins. Sendiráðið sýndi einnig heimildamyndina „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist".

 

Varsjá

Verkefnið „Nordic Resilience Starts in Schools", sem er samstarfsverkefni í Gdansk á vegum sendiráða Íslands, Danmerkur, Finnlands og Noregs í Póllandi, hófst formlega í vikunni. Gestir opnunarviðburðarins komu víða að en fulltrúum pólskra samstarfsskóla og sveitarstjórna og norrænir sérfræðingar sóttu opnunarviðburðinn. 

Íslendingarnir Árni Magnússon, framkvæmdastjóri Iceland GeoSurvey, og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsteymis UNICEF, tóku þátt í umræðum viðburðarins. 

Líkt og greint var frá í síðasta föstudagspósti stóð sendiráðið einnig fyrir sýningu á íslensku heimildarmyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" en sjá má myndir hér fyrir neðan.

 

Helsinki

Sendiráðið okkar í Helsinki stóð einnig fyrir sýningu á heimildamyndinni og pallborðsumræðum í tengslum við 50 ára afmæli Kvennafrídagsins. Íslenska listakonan Sigrún Gyða Sveinsdóttir flutti verkið "My Life is an Opera", fjöllistaverk / gjörning sem einkennist af hreyfingum, klassískum söng o.fl. 

 

 

Kampala

Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðukona sendiskrifstofu okkar í Kampala, flutti ávarp fyrir Íslands hönd á fimmtu landsráðstefnu Úganda um mæðravernd (National Safe Motherhood Conference) sem átti sér stað á föstudaginn í síðustu viku. Í ávarpi sínu minnti Hildigunnur á að það væru ekki forréttindi heldur réttur hverrar konu að eignast börn við öruggar aðstæður og brýndi öll þau sem tóku þátt í ráðstefnunni að leggja sitt af mörkum til að engin kona dæi af barnsförum. Ísland stuðlar að mæðra- og ungbarnavernd í Úganda með ýmsum hætti þar á meðal í samstarfi við UNICEF.

 

Osló

Sendiráðið okkar í Osló sýndi einnig heimildarmyndina og stóð fyrir pallborðsumræðum í tenglsum við 50 ára afmæli Kvennafrídagsins. Þátttakendur pallborðsins voru Peggy Hessen Følsvik, fyrrum forseti Alþýðusambands Noregs, Lilja Ingólfsdóttir, kvikmyndagerðamaður, og Nimrah Ramzan, varaformaður norskra ungra jafnaðarmanna og Eirik Aimar Engebretsen, sérfræðingur hjá Bufdir (jafnréttisstofnun) stýrði umræðum. 

Sendiherra okkar í Noregi, Högni Kristjánsson, og Kathrine Haugland Martinsen framkvæmdastjóri Alþýðusambands Noregs voru kynnar kvöldsins.

 

Vín

Líkt og greint var frá í síðustu viku var íslenska heimildamyndin „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" sýnd tvö kvöld í röð í þýskri þýðingu þar sem sendiherra tók þátt í umræðum ásamt Doris Schmidauer, forsetafrú Austurríkis, annars vegar og Petru Bayr, þingkonu í austurríska þinginu hins vegar.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af viðburðunum. 

Kaupmannahöfn

Í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins bauð Pétur Ásgeirsson, sendiherra, félagskonum Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku til hátíðarviðburðar í sendiráðsbústaðnum þar sem Hvatningarverðlaun FKA-DK voru veitt í fjórða sinn. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár á þessum degi. Ynja Mist Aradóttir, stofnandi og eigandi bakarísins og kaffihússins „Bake My Day" hlaut verðlaunin í ár. 

Laugardaginn 25. október hélt heilbrigðisráðuneyti Íslands vel sótta kynningu í sendiráðsbústaðnum í samstarfi við sendiráðið. Kynningin var ætluð læknum og læknanemum búsettum í Danmörku til þess að gera grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á kjörum lækna á Íslandi. Sendiherra bauð gesti velkomna og gerði grein fyrir störfum sendiráðsins. 

 

 

Lilongwe

Sendiráð okkar í Lilongwe, Malaví, tók á móti starfsfólki Mannréttindaskrifstofu Malaví til þess að fara yfir samstarfsverkefni þeirra og Íslands undanfarin þrjú ár. 

 

 

 

 

Ottawa

Öldungardeildarþingmaðurinn Marilou McPhedran skipulagði hádegisverð í kveðjuskyni fyrir sendiherra okkar þar í landi, Hlyn Guðjónsson, og eiginkonu hans, Lulu Yee, auk nokkurra annarra þingmanna sem hafa unnið náið með sendiráði Íslands í Kanada. 

Forseti öldungardeildarinnar bauð Hlyn og Lulu velkomin í öldungadeildina og flutti þingmaðurinn Marilou McPhedran stutt ávarp þar sem hún beindi athyglinni að því að 150 ár séu liðin frá því að fyrstu komu íslenskra vesturfara til Kanada. Þingheimur þakkaði sendiherra fyrir störf sín. Hér er hægt að hlusta á ávarpið og kveðju þingheims (hefst 11:42).

 

 

Meira verður það ekki í bili,

bestu kveðjur, Uppló.