04 nóvember 2025
/
Föstudagspóstur 7. nóvember 2025
Heil og sæl.
Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra.
Ráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir þingsályktunartillögu um stefnu í varnar- og öryggismálum. Um er að ræða fyrstu formlegu stefnu í varnarmálum og byggist hún á tillögum samráðshóps þingmanna sem skipaður var í mars til að fjalla um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum.
Filippo Grandi, framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) kom í vinnuheimsókn til Íslands fyrr í vikunni og fundaði með ráðherra. Á fundi sínum ræddu þau um þær stóru áskoranir sem við blasa á heimsvísu í flóttamannamálum, samstarf Íslands og UNHCR og um málefni Sameinuðu þjóðanna.
Happy to welcome a true humanitarian to Reykjavík, UN High Commissioner for @Refugees @FilippoGrandi. We discussed the many challenges we face & how Iceland can do its part & how all of us need to address the sometimes ugly discourse surrounding people fleeing war & poverty. pic.twitter.com/Pu5knuUf2g
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) November 3, 2025
Ráðherra kíkti í heimsókn í Ljósið á þriðjudaginn og fékk kynningu á því frábæra starfi sem þar á sér stað.
Á miðvikudaginn hélt ráðherra opnunarræðu á viðburði GRÓ - þekkingarmiðstöðvar um þróunarsamvinnu í samvinnu við utanríkisráðuneytið og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Um er að ræða nýja viðburðaröð GRÓ um hlutverk og árangur þeirra fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ og utanríkisráðuneytisins. Á þessum fyrsta fundi var sjónum beint að Jarðhitaskólanum sem stofnaður var árið 1978 og hefur það markmið að efla þekkingu og nýtingu á jarðhita í samstarfslöndum sínum. Hinir skólarnir eru Jafnréttisskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn. Hátíðarsalur Háskóla Íslands var þétt setinn og tæplega 700 manns fylgdust með viðburðinum í gegnum streymi.
Varnarmálaráðherrafundur sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) átti sér stað í Bodø, Noregi dagana 4.-5. nóvember. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðherra. Á fundinum var rætt aukið varnarsamstarf, sameiginlegan varnarviðbúnað ríkjanna, stuðning við Úkraínu og áhersla lögð á samstarf og sameiginlegan viðbúnað á Norður-Atlantshafinu, norðurslóðum og Eystrasaltinu. Á fundinum var undirritað uppfært samkomulag um starf sameiginlegu viðbragðssveitarinnar sem endurspeglar breyttar forsendur í öryggismálum eftir inngöngu Svíþjóðar og Finnlands í Atlantshafsbandalagið.
UNESCO
Fjögurra ára setu Íslands í framkvæmdastjórn UNESCO (Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna) lauk í dag á 43. aðalráðstefnu hennar sem haldin er í Samarkand, Úsbekistan. Ísland bauð sig fram til framkvæmdarstjórnarinnar fyrir hönd Norðurlandanna árið 2021 en í dag hlaut Noregur kosningu í framkvæmdastjórn og tekur við sæti Norðurlandanna fyrir tímabilið 2025-2029.
Bergdís Ellertsdóttir, vararáðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fór fyrir sendinefnd Íslands á aðalráðstefnunni í Samarkand en aðrir fulltrúar komu frá íslensku UNESCO-nefndinni og fastanefnd Íslands í París.
Í stefnuræðu Íslands á ráðstefnunni lagði Bergdís áherslu á mannréttindi, jafnrétti kynjanna og réttindi hinsegin fólks í verkefnum stofnunarinnar. Hún fjallaði um mikilvægt starf stofnunarinnar bæði í Úkraínu og á Gaza og vakti einnig athygli á ábyrgð UNESCO á heimsmarkmiði fjögur um menntun og stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan.
At the 43rd #UNESCOGC, Dep. Perm. Secretary of State Bergdís Ellertsdóttir delivered #Iceland's 🇮🇸 statement highlighting gender equality, human rights, freedom of expression of journalists, artists & scientists and UNESCO's crucial role in these areas
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) November 4, 2025
🔗https://t.co/m8Mvyg2V4M pic.twitter.com/nGitUaq3Dj
Iceland 🇮🇸 remains gravely concerned about the scale of destruction of education institutions & the effect on educators & children in Gaza & the oPt. Continued support from UNESCO 🇺🇳 is essential in strengthening UNRWA’s educational programmes. #UNESCOGC
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) November 7, 2025
🔗https://t.co/QAHJ7lAbpG pic.twitter.com/rzDMo6zEhC
Constructive meeting between @Mariana_Betsa Deputy FM of Ukraine 🇺🇦 and Bergdís Ellertsdóttir Deputy Perm. Secretary of State of Iceland 🇮🇸 at the #UNESCOGC in Samarkand. Discussed bilateral cooperation including culture, UNESCO-related issues and her upcoming visit to Iceland 🤝 pic.twitter.com/LreQyTLiy6
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) November 6, 2025
Iceland's 🇮🇸 term on the Executive Board of UNESCO 🇺🇳 formally concluded today at the #UNESCOGC. It's been our great honor serving on the Board on behalf of the Nordics & we offer Norway🇳🇴our heartfelt congratulations on their election for 2025-2029!🎉https://t.co/oqnGyv3eV4 pic.twitter.com/IUnCNXTrfw
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) November 7, 2025
París
Nýsköpun og tækni á sviði grænna orkuskipta voru til umræðu á ráðstefnu sem sendiráð Norðurlandanna í París stóðu fyrir í dag. Meðal 150 þátttakenda á ráðstefnunni voru fulltrúar íslenskra fyrirtækja og Fransk-íslenska viðskiptaráðsins.
Viðburðurinn bar yfirskriftina „Nordic French Energy Day: Cooperation for a resilient and sustainable Europe 10 years after the Paris Agreement" og var haldinn í samstarfi við frönsku hugveituna Institut Montaigne.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum i New York
Hópur Alþingismanna heimsóttu Fastanefndina og Sameinuðu þjóðirnar i vikunni og fengu kynningu á störfum þeirra.
Always a pleasure to welcome parliamentarians from 🇮🇸 @Althingi.
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) November 5, 2025
This is a great opportunity to engage with our elected representatives on the work of the @UN and its agencies 🇺🇳 pic.twitter.com/PT8QhMdIBG
Nikulás Hannigan, sendiherra og varafastafulltrúi, flutti ávarp á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fyrir hönd Íslands og Norðurlanda i tenglsum við skýrslu forseta Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, en Ísland er fulltrúi þeirra í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2025-27. Í ávarpi sínu undirstrikaði Nikulás áherslur Íslands og Norðurlandanna í Mannréttindaráðinu. Einnig flutti hann stutt ávarp fyrir hönd Íslands, Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í nefndarumræðu við Mr. Graeme Reid, sérstakan fulltrúa Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi og fordómum í garð hinsegin fólks.
Nordics on #HRC:
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 31, 2025
▪️believe in both dialogue & calling out #humanrights violations & abuses;
▪️remain committed to constructive dialogue, emphasizing collaboration irrespective of background or circumstance;
▪️advocate for more efficient & effective POW.
📄https://t.co/tw6T3FymZl pic.twitter.com/RANzt8Rzp6
🌈#NB8 to @IESOGI:
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) November 3, 2025
We're deeply concerned by justification of discriminatory laws & other efforts aimed to restrict inclusive education under the guise of “protecting children.” Such backlash jeopardizes both right to education & safety of LGBTI+ persons in learning environments. pic.twitter.com/GToWELaGqF
Genf
Í þessari viku og þeirri næstu funda aðildarríki í Genf vegna fundarlotu mannréttindaráðsins um jafningjarýni (e. Universal Periodic Review, UPR). Rýnin felst í því að ráðið fer yfir stöðu mannréttinda í hverju aðildarríki fyrir sig á fimm ára fresti og kemur með tilmæli um úrbætur. Fastanefnd okkar í Genf kemur til með að "tvíta" daglega á X. Hægt er að sjá fleiri færslur á X-síðu fastanefndarinnar.
Einnig skipulagði sendiskrifstofan okkar samráðsfundi í vikunni um reglubundna ályktun um Íran og um mannréttindi hinsegin fólks.
The #UPR50 begins! Over the next two weeks, countries meet in Geneva for the @UN_HRC’s Universal Periodic Review - a process that helps strengthen human rights in every country.
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) November 3, 2025
We wish everyone a successful review💫
Learn more about the UPR👇https://t.co/5DDoqyVLCk
#UPR50 kicked off today, with the reviews of Belarus and Liberia. In the UPR-process, Iceland 🇮🇸 calls for the abolition of the death penalty and protection of women’s rights and the rights of persons of diverse SOGIESC. 🏳️🌈🏳️⚧️♀️
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) November 3, 2025
Statements: https://t.co/99BzGwOh9Q pic.twitter.com/FM2xHbT3Rv
Tókýó
Rannveig Marta Sarc, íslenskur og slóvenskur fiðluleikari, lauk Asíureisu sinni í Tókýó þar sem sendiráðið okkar í samstarfi við sendiráð Slóveníu hélt tónleika. Í síðustu viku var greint frá tónleikum Rannveigar í sendiráði Íslands í Peking.
Sendiherra okkar þar í Japan, Hreinn Pálsson, tók á móti hópi japanskra þingmanna sem tilheyra vináttufélagi Japans og Íslands. Meðal þeirra voru m.a. Shinako Tsuchiya, þingmaður sem var forseti vináttufélagsins í meira en 20 ár, og Yasushi Kaneko, nýr innviða- og ferðamálaráðherra Japans.
Berlín og Prag
Í Prag var undirritað samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Tékklands hins vegar við hátíðlega athöfn í Prag. Ágúst Már Ágústsson, varamaður sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi (með aðsetur í Þýskalandi) undirritaði samkomulagið fyrir Íslands hönd.
Fimmtudagurinn 6. nóvember var helgaður jafnréttismálum í Berlín en þá fóru fram þrír samtengdir viðburðir í Fellashus, sameiginlegri byggingu Norrænna sendiráða í Berlín. Heimildarmyndin um kvennafrídaginn var sýnd í annað sinn fyrir fullu húsi en gestir voru m.a. diplómatar úr þýska utanríkisráðuneytinu og erlendum sendiráðum í Berlín. Karin Prien, jafnréttismálaráðherra Þýskalands (og fjölskyldu-, mennta-, og málefna eldra fólks) var heiðursgestur og hélt opnunarávarp. Eftir myndina voru pallborðsumræður með þátttöku Auðar Eddu Jökulsdóttur, sérstaks fulltrúa UTN í jafnréttismálum, Moniku Strehlow, heiðursforseta samtaka kvenna í stjórnum fyrirtækja, og Margrétar Rósar Harðardóttur, stofnanda og eiganda ferðaþjónustufyrirtækisins Berlínanna. Ágúst Már Ágústsson, varamaður sendiherra stýrði umræðunum.
Fyrr um daginn skipulagði sendiráðið hringborðsumræður með þýskum og erlendum diplómötum þar sem rætt var um bakslagið í jafnréttismálum. Auður Edda Jökulsdóttir var þar aðalgestur og greindi frá utanríkisstefnu Íslands og stýrði umræðum.
Nýja-Delí
Sendiherrahjónin, Benedikt Höskuldsson og Hjördís Magnúsdóttir, skipulögðu bókaupplestur í sendiráðsbústaðnum á föstudaginn í síðustu viku með íslensku rithöfundunum, Jóni Kalmani Stefánssyni og Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Viðburðurinn var einnig bókaútgáfuhóf þar sem bók Jóns Kalmans Stefánssonar, Himnaríki og helvíti, verður nú aðgengileg á bengölsku.
Eftir bókaupplesturinn var pallborðsumræða undir stjórn Benedikts Hjartarsonar, prófessors. Pallborðsgestir voru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur, og Sunandan Roy Chowdhury, útgefandi og ritstjóri hjá Sampark útgáfufélagi.
Íslenska myndin „Ástin sem eftir er" (e. The Love that Remains) eftir Hlyn Pálmason var sýnd á Dharamshala alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í síðustu viku með stuðningi íslenska sendiráðsins.
London
Í vikunni fór fram stærsta ráðstefna um ferðamál, World Travel Market. Þar var Ísland með bás þar sem 25 íslensk fyrirtæki tóku þátt auk 5 markaðsstofa landshluta Íslands. Sendiherra okkar þar í landi, Sturla Sigurjónsson, heimsótti íslenska básinn ásamt Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Sendiráðið bauð einnig í móttöku í tengslum við listasýninguna „Póstkort frá Seyðisfirði" (e. Postcards from Seyðisfjörður) sem var endursýnd á „Worldbuilding“ Sluice Expo 2025 listahátíðinni. Listasýningin var fyrst sýnd á LungA, Seyðisfirði árið 2024.
Lilongwe
Starfsfólk sendiráðsins okkar í Malaví fór í vettvangsferð til Nkhatabay til þess að kynna sér þróunarsamvinnuverkefni sem hljóta stuðning íslenskra stjórnvalda. Forstöðumaður sendiskrifstofunnar okkar, Davíð Bjarnason, formlega opnaði nýja kvensjúkdóma- og fistilsdeild á Nkhotakota héraðssjúkrahúsinu.
Varsjá
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi, tók þátt í formlegri opnun nýrrar stoðtækjamiðstöðvar í Kænugarði í gær. Um er að ræða sérstakt endurhæfingarverkefni í Úkraínu sem miðar að því að útvega allt að eitt þúsund einstaklingum stoðtæki og aðgang að nauðsynlegri þjónustu. Stoðtækjamiðstöðin er samstarfsverkefni milli íslenskra stjórnvalda, Emblu Medical (móðurfélag Össurar) og samtakanna Future for Ukraine.
Róm
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um fæðuöryggi (e. Committee on World Food Security) hélt sinn árlega fund í Róm í lok október. Sérstakur erindreki Íslands í málefnum hafsins, Jón Erlingur Jónasson, sem er einnig í forsvari fyrir „Bláfæðubandalagið" (e. Blue Aquatic Food Coalition) sótti ársfundinn ásamt fastanefnd Íslands í Róm. Ísland flutti þar tvö ávörp um mikilvægi bláfæðu.
Kaupmannahöfn
Það var mikið húllumhæ á norðurslóðarhátíðinni Arktisk Festival sem haldin var í sendiráði Íslands og á Norðurbryggju seinustu helgi. Dagskráin var fjölbreytt og hátíðin fjölsótt. Íslenski söngvarinn Svavar Knútur hélt tónleika og boðið var upp á mörg áhugaverð erindi.
Helsinki
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, kíkti í heimsókn í sendiráð Íslands í Helsinki í gær á leið sinni um Finnland þar sem hún tók þátt í norrænum ráðherrafundi um húsnæðismál.
Sendiherra okkar í Finnlandi, Harald Aspelund, flutti ávarp á opnunarviðburði nýs samstarfsverkefnis á vegum Sviðslistamiðstöðvar Íslands í samstarfi við sendiráð Íslands í Osló, Helsinki og Berlín og Íslandsstofu. Á viðburðinum var sjónum beint að verkum íslenskra sviðshöfunda með það markmið að kynna íslenskar sviðslistir.
Meira verður það ekki í bili,
bestu kveðjur, Uppló.