14 nóvember 2025
/
Föstudagspóstur 14. nóvember 2025
Heil og sæl.
Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra.
Heimsþing kvenleiðtoga (e. Reykjavík Global Forum) stóð yfir dagana 10. og 11. nóvember og tók utanríkisráðherra þátt í opnunarviðburði þess ásamt forseta Alþingis, Þórunni Sveinbjarnardóttur, og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stofnanda og stjórnarformanni Heimsþings kvenleiðtoga. Ráðherra flutti einnig opnunarávarp á alþjóðlegu málþingi í Háskóla Íslands í tilefni af aldarfjórðungsafmæli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 um konur, frið og öryggi.
A heartfelt thanks to 🇮🇸 for inviting @UN_Women’s @SofiaCalltorp to attend the HL Symposium marking the 25th Anniversary of the #WPSAgenda to explain the importance of the WPS Framework in our work. Thanks, 🇮🇸 and @thorgkatrin, for leading the way forward for all women and girls! pic.twitter.com/aHgpQjmn45
— UN Women Nordic (@unwomennordic) November 12, 2025
Í tengslum við heimsþingið fundaði ráðherra einnig með Mariana Betsa, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, þar sem þær ræddu mikilvægi áframhaldandi þvingunaraðgerða gagnvart Rússlandi og árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu.
During my visit to Reykjavík met with Iceland’s FM @thorgkatrin. Thanked 🇮🇸 for steadfast support to 🇺🇦’s resilience. Discussed Ukraine’s urgent energy needs amid destroyed infrastructure, the need to hold 🇷🇺 accountable for its aggression, and further strengthening sanctions. pic.twitter.com/yb0pPcgxyh
— Mariana Betsa (@Mariana_Betsa) November 11, 2025
Ráðherra átti fundaði einnig með dr. Isata Mahoi, jafnréttis- og barnamálaráðherra Síerra Leóne. Öflugt samstarf á sér stað milli ríkjanna, ekki síst á sviði jafnréttismála, en Ísland hefur markvisst stutt við þróunarsamvinnu í Síerra Leóne frá árinu 2018 og opnaði sendiráð í höfuðborginni Freetown á síðasta ári.
Met with Sierra Leone Minister of Gender & Children´s Affairs, Dr. Isata Mahoi. Grateful for partnership between our countries & our shared conviction that lasting solutions to today’s challenges lie in education, health & empowering women & girls to participate fully in society. pic.twitter.com/f3TB4Xho1Z
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) November 10, 2025
Utanríkisráðherra sótti haustfund varnarmálaráðherra Norðurlandanna (NORDEFCO) sem fór fram í Helsinki á miðvikudaginn, 12. nóvember 2025. Norrænt varnarsamstarf, þróun öryggismála í Evrópu og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru efst á baugi fundarins. Norrænu varnarmálaráðherrarnir funduðu einnig með kollegum sínum frá Eystrasaltsríkjunum. Utanríkisráðherra tók jafnframt þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins um norðurslóðir og viðbúnað í geimnum ásamt öðrum norrænum ráðherrum.
NATO, industry and innovators met at NATO’s first Arctic Space Forum in 🇫🇮 Helsinki to discuss Arctic space security
— NATO (@NATO) November 14, 2025
Learn more → https://t.co/sKvqgzo8Uj pic.twitter.com/8RdZvB4A6M
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Málefni Alþjóðasakamáladómstólsins voru í deiglunni á miðvikudag og flutti Anna Jóhannsdóttir fastafulltrúi ræðu fyrir hönd Norðurlandanna þegar ársskýrsla hans var kynnt. Áréttaði hún mikilvægi dómstólsins, sjálfstæði hans og óhlutdrægni, og eindreginn stuðning norrænu ríkjanna við dómstólinn og starf hans.
Fastanefndin okkar hefur tekið þátt í ýmsum samningaviðræðum í vikunni m.a. um árlega fiskveiðiályktun Sameinuðu þjóðanna ásamt viðræðna í aðalnefndum allsherjarþingsins á vettvangi þróunarmála og mannréttindamála sem standa yfir þar til í lok næstu viku. Ísland leiðir einnig samningaviðræður um árlega landgræðsluályktun ásamt Maldíveyjum. Áfram er mikið samráð og fundarhöld vegna niðurskurðar- og hagræðingarhugmynda í þeirri fjárhagskrísu sem Sameinuðu þjóðirnar glíma við, m.a. vegna skulda stórra aðildarríkja.
🇮🇸 delivered a N5 statement 🇩🇰 🇫🇮 🇳🇴 🇸🇪 at the GA 🇺🇳 meeting on the Report of the ICC. The Nordic countries remain unwavering in their support for the Court’s independence, impartiality and integrity - and for the global fight against impunity! https://t.co/YTJj93gZfo pic.twitter.com/a4MnigwiNZ
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) November 11, 2025
Genf
Fundarlota mannréttindaráðsins um jafningjarýni (e. Universal Periodic Review, UPR) lýkur í dag, en hún hófst í byrjun síðustu viku líkt og greint var frá í síðasta föstudagspósti. Í vikunni tók Ísland þátt í jafningjarýni gagnvart Marshall eyjum, Króatíu, Jamaíku og Líbíu.
New week, new reviews at #UPR50!
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) November 10, 2025
Iceland took part in today’s @UN_HRC reviews of Marshall Islands 🇲🇭 & Croatia 🇭🇷 where 🇮🇸 is also part of the troika supporting Croatia’s review.
Read the statements 👇🏼https://t.co/99BzGwNJki#IcelandHRC pic.twitter.com/2uYQTvKYtJ
Wrapping up @UN_HRC #UPR50!
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) November 11, 2025
Iceland 🇮🇸 joined the final review of Libya 🇱🇾. Statements 👉 https://t.co/5C7CjjM4BS
Wishing all countries success in implementing recommendations and advancing human rights for all!
💫 #IcelandHRC pic.twitter.com/VkRhDBDqP5
Ísland var meðflutningsaðili ályktunar mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var samhljóða á sérstökum aukafundi í dag um alvarlega stöðu mannréttinda í El Fasher og nágrenni í Súdan. Ályktunin fordæmir víðfeðm mannréttindabrot sem framin hafa verið í El Fasher.
Í sameiginlegri ræðu kölluðu Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin eftir tafarlausu vopnahléi og ítrekuðu að mikilvægt væri að tryggja ábyrgðarskyldu og virða hlutverk Alþjóðaglæpadómstólsins. Fyrr í vikunni átti Ísland hlut að sameiginlegri yfirlýsingu 28 ríkja og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem fordæmt er áframhaldandi g kerfisbundið ofbeldi gegn almennum borgurum í El Fasher.
Helsinki og Tallin
Sendiráðið okkar í Helsinki studdi við starfsheimsókn utanríkisráðherra í tengslum við haustfund varnarmálaráðherra Norðurlanda (NORDEFCO) í Helsinki á miðvikudaginn.
Hópur félaga úr Norræna félaginu í Lovisu, bæ í suður Finnlandi, heimsóttu sendiherra okkar, Harald Aspelund, á mánudaginn ásamt bæjarstjóra Lovisu, Tomas Björkroth. Sendiherra upplýsti hópinn um starfsemi sendiráðsins og um þau helstu málefni sem ber hæst á Íslandi.
Bóka- og listafélag starfsfólks finnska stjórnarráðsins sótti listasýninguna „Thresholds and Traces" eftir íslensku listakonuna, Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur, í listagalleríinu „Gallerie Käytävä" sem er staðsett í sendiráðsbústaðnum. Sýningarstjóri þess er Ásthildur Jónsdóttir.
Einnig er vert að nefna að sendiherra okkar í Finnlandi, sem einnig gegnir sendiherrastöðu gagnvart Eystrasaltsríkjunum, sótti Norrænan sendiherrafund í Tallin, Eistlandi, í síðustu viku þar sem varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, var heiðursgestur.
Peking
Sendiráð okkar í Peking, ásamt Íslandsstofu, aðstoðaði fimm íslensk fyrirtæki með þátttöku í CIIE (e. China International Import Expo) kaupstefnunni í Sjanghæ í síðust viku, en hún er ein sú stærsta í heiminum. Af því tilefni hélt Þórir Ibsen, sendiherra, erindi við opnun ráðstefnu tollaráðuneytis Kína sem tileinkuð var viðskiptum og samstarfi tollayfirvalda Norðurlandanna og Kína.
Sendiherra var einnig í viðtali við fjölmiðilinn CGTN í tengslum við kaupstefnuna þar sem hann ræddi viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á kínverska markaðnum.
Íslenski básinn á CIIE kaupstefnunni
Lilongwe
Það er af nógu að taka úr fréttum frá sendiráðinu okkar í Lilongwe í Malaví. Í lok síðustu viku fór starfsfólk sendiráðsins í vettvangsferð til að skoða nýjar byggingar við fæðingarspítalann í Makanjira og styttist í verklok þar. Einnig fór fram afhending á 25 sólarkerfum til Nkhotakota héraðsstjórnarinnar, en kerfin eru hluti af EnergIce samstarfsverkefninu sem tryggir áreiðanlega og sjálfbæra orku fyrir innviði sem tryggja grunnþjónustu fyrir íbúa héraðsins. Flest kerfanna fóru á héraðsspítalann en til viðbótar fór upp kerfi á fjórar heilsugæslur, átta grunnskóla og skrifstofur héraðsstjórnar.
Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, ásamt teymi sínu fundaði með Benson Malunga Phiri, sveitarstjórnar- og uppbyggingarmálaráðherra Malaví, í gær.
Nýja-Delí og Colombo
Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, afhenti forseta Sri Lanka, Anura Kumara Dissanayake, trúnaðarbréf sitt í Colombo í gær, en Benedikt gegnir einnig sendiherrastöðu gagnvart Sri Lanka.
Stokkhólmur
Sendiráðið okkar í Svíþjóð tók þátt í bókahátíðinni í Karlstad og auglýstu þar íslenskar bækur í samstarfi við verkefnið „Läs isländska böcker" sem sendiráðið heldur utan um í samstarfi við John Swedenmark, þýðanda. Yfir 200 fyrirtæki og samtök tóku þátt í bókahátíðinni og yfir 4,000 manns mættu.
Varsjá
Í tilefni dags íslenskrar tungu mun sendiráð Íslands í Varsjá vera með áhugaverðan viðburð í dag þar sem íslenskar/Norrænar fornaldarsögur verða í forgrunni. Nýlega hafa þrjár fornsögur verið þýddar yfir á pólsku af Háskólanum í Sílesíu, Knýtlingasaga, Yngvarssaga víðförla og Jómsvíkingasaga. Á viðburðinum verður rætt við þýðendur fornsagnanna og fjallað um pólskar rannsóknir á íslenskum bókmenntum, fornsögum og íslenskri tungu.
Kaupmannahöfn
Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, gerði grein fyrir forystu Íslands á sviði jafnréttismála og sagði jafnframt frá kvennafrídeginum 24. október 1975, á upplýsingafundi á vegum danska utanríkisráðuneytisins og UN Women þar sem fjallað var um nýutkomna árlega jafnréttisskýrslu Sameinuðu Þjóðanna „Progress on the Sustainable Development Goals: the Gender Snapshot 2025".
Berlín
Model NATO Germany ráðstefnan/námskeið á sér nú stað í Berlín, en um er að ræða fjögurra daga námskeið/ráðstefnu þar sem háskólanemar leika eftir starfsemi Atlantshafsbandalagsins undir handleiðslu sérfræðinga til þess að auka diplómatíska færni og skilning á starfsemi bandalagsins.
Nokkrir þátttakendur Model NATO Germany heimsóttu sendiráð Íslands í Berlín þar sem þau herma eftir störfum Íslands innan Atlantshafsbandalagsins. Í sendiráðinu hlutu þau kynningu á áherslum Íslands innan bandalagsins og ræddu stefnur Íslands í öryggis- og varnarmálum. Gaman er að segja frá því að „íslenska sendinefndin" samanstendur af tveimur Þjóðverjum, einum Búlgara og Bandaríkjamanni. - vonum að þau verði landi okkar og þjóð til prýðis á námskeiðinu!
Þess má geta að utanríkisráðuneytið kom að skipulagningu fyrstu Model NATO-ráðstefnunnar sem haldin var á Íslandi í september í samstarfi við Alþingi, Varðberg, Skjöld-YATA og breska sendiráðsins í Reykjavík.
Minningardagur um fallna hermenn (e. Remembrence Day)
Ár hvert í kring um vopnahlésdaginn 11. nóvember halda mörg ríki Samveldisins (e. Commonwealth) upp á minningardag um fallna hermenn, en þann 11. nóvember 1918 lauk fyrri heimsstyrjöld.
Sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, tók þátt í árlegri minningarathöfn á vegum breska sendiráðsins í Kaupmannahöfn og the Royal British Legion og lagði, ásamt sendiherrum annarra ríkja, blómsveig að minnisvarðanum um fallna hermenn.
Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í London, tók þátt í minningarathöfn og lagði blómsveig við minnismerki á Sloane Square.
Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Ottawa, tók þátt í minningarathöfn og blómsveig við minnisvarðann The Response / La Réponse.
Ottawa
Kanadíski þingmaðurinn Rob Oliphant og Alþjóðamálaskrifstofa Kanada (e. Global Affairs Canada) stóðu fyrir hádegisverði til þess að kveðja sendiherra okkar, Hlyn Guðjónsson, í síðustu viku en senn verða sendiherraskipti í Kanada.
Osló
Það var mikið húllumhæ í Osló í vikunni.
Sendiherra okkar í Noregi, Högni Kristjánsson, og Ásgerður Magnúsdóttir buðu til opnunarviðburðar í embættisbústaðnum á mánudaginn vegna sýningarinnar „Bergmál/Ekko" sem er hluti af listaverkefni „Ecophilosophic Dialogues". Listaverkið er samstarf sex listakvenna frá Íslandi og Noregi.
Ísland var gestgjafi í hádegisverði sendiherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Osló á þriðjudaginn þar sem Ine Eriksen Søreide, formaður utanríkis- og varnarmálanefndar Stórþingsins, var heiðursgestur.
Það sama kvöld buðu sendiherrahjónin til móttöku í embættisbústaðnum þar sem íslensku samtímaleikritahöfundarnir Tyrfingur Tyrfingsson og Hrafnhildur Hagalín lásu upp úr verkum sínum. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Íslandsstofu og Sviðslistamiðstöðina.
Tone Myklebost, þýðandi, var heiðruð í móttöku Högna og Ásgerðar fyrir mikilvægt starf hennar sem þýðandi íslenskra bókmennta á norsku, en fyrir starf sitt hlaut Tone Fálkaorðuna árið 2017. Auðurr Ava Ólafsdóttir, rithöfundur, var sérstakur gestur og hélt erindi um íslenska tungu, ritferil sinn og þýðingar Tone. Gaman er að geta að dætur Tone, tiril Myklebost og Lilja Ingólfsdóttir, lásu brot úr síðustu bók Auðar, Eden, í þýðingu Tone. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Miðstöð íslenskra bókmennta, Norska þýðendasambandið, Pax forlag, Forlaget Press og Aschehoug forlag.
Meira verður það ekki í bili,
bestu kveðjur, Uppló.