21 nóvember 2025

/

Föstudagspóstur 21. nóvember 2025

Heil og sæl. 

Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra en hún sótti fund EES-ráðsins sem fór fram í Brussel í gær. Þar gagnrýndi ráðherra harðlega ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að beita Íslandi og hin EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins verndarráðstöfunum vegna innflutnings á járnblendi. Þar sem Ísland er í formennsku EES-samstarfsins stýrði ráðherra fundinum ásamt Evrópumálaráðherra Danmerkur, en Danir gegna formennsku innan ESB um þessar mundir. Af hálfu framkvæmdastjórnar ESB sat fundinn Valdis Dombrovskis, framkvæmdastjóri efnahagsmála ESB. Í kjölfar fundarins áttu þátttakendur sameiginlegan fréttamannafund þar sem þeir ítrekuðu mikilvægi EES-samstarfsins. 

Ráðherra fundaði einnig með þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EES þar sem farið var yfir stöðuna vegna verndarráðstafana ESB á járnblendi, fríverslunarsamninga og áskoranir í alþjóðaviðskiptum.

Samhliða fundi EES-ráðsins áttu Ísland, Liechtenstein, Noregur og ESB pólitískt samráð þar sem m.a. var rætt um árásarstríð Rússa gegn Úkraínu og stöðuna á Gaza í kjölfar vopnahlés. 

 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 

COP30 stendur enn yfir í Belém, Brasilíu og þar hafa fulltrúar utanríkisráðuneytisins tekið þátt í ýmsum viðburðum og samningaviðræðum síðustu tvær vikur, sérstaklega varðandi nýja aðgerðaráætlun um jafnréttismál

María Erla Marelsdóttir, sendiherra,  loftslags- og orkumála, flutti opnunarávarp á hliðarviðburði IRENA, alþjóðlegrar stofnunar um sjálfbæra orku, þar sem hún fjallaði um nýtingu jarðvarma. Einnig tók hún þátt í norrænni pallborðsumræðu um norrænar lausnir í sjálfbærum orkumálum og hvernig sjálfbærni gæti aukið seiglu í breytilegum heimi. Á fundi um fjármögnun loftslagsamála ítrekaði sendiherra stuðning íslenskra stjórnvalda við loftslagsaðgerðir þróunarríkja og mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í lofstlagsmálum. 

 

"At the heart of unlocking geothermal’s potential lies collaboration, btw government, industry, research & communities.” Iceland’s Climate Ambassador @mariaerlamar on behalf of 🇮🇸 Min. for Environment Energy &Climate @IRENA #COP30 side event on Geoth. Energy️#EnergyTransition pic.twitter.com/6yujtJOYeg

— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) November 13, 2025

 

Securing energy in a shifting world. What can the world learn from Nordic energy solutions? At #COP30, Iceland joined Nordic energy leaders to explore how renewables & efficiency build resilience in a changing world 🌍 pic.twitter.com/mCuLrBmcjm

— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) November 14, 2025

 

At #COP30 High-Level Dialogue on Climate Finance
🇮🇸 Iceland reaffirmed:
✅ Strong commitment to provide climate finance
✅ Balanced approach to mitigation & adaptation
✅ Priorities: renew. energy, ocean & freshwater, health, sustainable land use
✅ Strong multilateral coop. pic.twitter.com/d7iz9AL74d

— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) November 19, 2025

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi okkar hjá Sameinuðu þjóðunum, flutti norræna ræðu í öryggisráðinu við umræðu sem Sierra Leone, sem formennskuríki þennan mánuð, boðaði til. Í ávarpinu undirstrikuðu Norðurlönd að vopnuð átök séu enn helstu orsök alvarlegs matarskorts á heimsvísu, en mikil hungursneyð ríkir nú yfir í Súdan, á Gaza og víðar. Norðurlönd lögðu m.a. áherslu á mikilvægi þess að mannúðaraðstoð nyti öruggs og hindraðs aðgangs í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög.

 

At the #UNSC open debate on conflict-related food insecurity, Iceland on behalf of 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪 emphasized that the @UN & other humanitarian orgs must be fully enabled to deliver humanitarian aid, including food, to alleviate the suffering of civilians
📄 https://t.co/muMEulD6hT pic.twitter.com/0sjQT6flXk

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) November 17, 2025

 

Sömuleiðis flutti Anna ávarp fyrir hönd Íslands og hinna Norðurlandanna í allsherjarþingsumræðu um breytingar á öryggisráðinu sem lengi hefur verið til skoðunar innan Sameinuðu þjóðanna, en sérstök áhersla á það fór í gang m.a. með Framtíðarsáttmálanum sem samþykktur var af leiðtogum 2024. 

 

Iceland 🇮🇸 delivered a N5 🇩🇰 🇫🇮 🇳🇴 🇸🇪 statement at the GA 🇺🇳 on the equitable representation on and increase in the membership of the SC. The N5 advocate for a representative, effective, transparent and accountable @UN #unsecuritycouncil See: https://t.co/EkYnbV6cTO pic.twitter.com/kmpOmX2yKl

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) November 18, 2025

 

Washington D.C.

Það er ýmsilegt búið að eiga sér stað hjá sendiráðinu okkar í Washington undanfarnar tvær vikur. Sendiherra okkar þar í landi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, tók á móti fyrsta flugi Icelandair til Miami í síðustu viku ásamt forstjóra Icelandair. 

 

The strong 🇺🇸-🇮🇸 links just got stronger with 3️⃣ new weekly flights between Miami and Reykjavík.

This milestone was celebrated in #Miami recently, with MIA officials, @Icelandair President&CEO Bogason, 🇮🇸Amb. Valsdóttir & many more attending.

Photo©️https://t.co/MDq2VA7hBF pic.twitter.com/5dW0LiTxXU

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) November 10, 2025

 

Starfsfólk sendiráðsins okkar tók vel á móti hópi Alþingismanna sem voru í vinnuferð til Bandaríkjanna í síðustu viku.

 

We were pleased to welcome parliamentarians from @althingi to Washington, DC. The delegation met with @StateDept officals, @chelliepingree and @RepJeffries from #USCongress , Senate staff, @WorldBank, @IMFNews, and leading think tankers to deepen our dialogue and cooperation. pic.twitter.com/0BbZkhX2rW

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) November 13, 2025

 

Sendiherra var með ávarp við afhendingu Nýsköpunarverðlauna Íslands 2025 sem veitt voru  fyrr í mánuðinum. Í ávarpi sínu lagði hún áherslu á mikilvægi viðskiptatengsla Íslands og Bandaríkjanna og fjallaði um mikilvæg atriði sem íslensk fyrirtæki þyrftu að hafa í huga til þess að ryðja sér til rúms á Bandaríkjamarkaði. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine hlaut verðlaunin í ár. 

 

At the recent #Iceland #Innovation Congress in Reykjavík, Amb. @Svanhildurholm highlighted in a keynote the importance of the US as a trading partner and key considerations for 🇮🇸companies looking to enter the US market.

2025 🇮🇸innovation award winner: https://t.co/ZzjC7sOl4u pic.twitter.com/dT6B7XKWSM

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) November 18, 2025

 

Reglulegur samráðsfundur yfirmanna pólitískra málefna í utanríkisráðuneytum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja átti sér stað í Norfolk, Bandaríkjunum, í vikunni. Hermann Örn Ingólfsson, varaskrifstofustjóri, sótti fundinn ásamt Gunnlaugu Guðmundsdóttur, varamanni sendiherra.  

 

Political Directors from the Nordic & Baltic states met with @StateDept officials last week for regular political & security consultations (EPINE) followed by a program in Norfolk with @JFCNorfolk and @NATO_ACT. Important discussions with close allies. pic.twitter.com/HdyX24Ytme

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) November 19, 2025

 

Samstarf um nýtingu jarðvarma var efst á baugi í vinnuferð sendiherra til Texas og Nýju-Mexíkó í vikunni, en þar fundaði hún með þingmönnum og háttsettum embættismönnum ríkjanna tveggja. 

 

Geothermal energy cooperation was top of the agenda in Amb. Valsdottir’s visit to Texas & New Mexico, meeting with lawmakers & officials incl. @TXsecofstate & @Morales4LtGovNM. Thx @txgeothermal & @HMPartnership for an excellent program. Looking forward to continued cooperation. pic.twitter.com/ePGoTVmKi5

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) November 21, 2025

 

London

Sendiráð okkar í London tók hlýlega á móti Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í vikunni. Í tilefni heimsóknar forseta bauð Sturla Sigurjónsson, sendiherra, til móttöku í embættisbústaðnum þar sem forseti fékk tækifæri til þess að kynnast fjölbreyttum hópi Íslendinga búsettra í Bretlandi. 

Forseti fundaði með Karli III, Bretakonungi, í Buckingham höll. Fundurinn var sá fyrsti sem þjóðarleiðtoga Íslands og Bretlands síðan Elísabet drottning heimsótti Ísland árið 1990. 

 

 

Lilongwe

Starfsfólk sendiráðs Íslands í Lilongwe, Malaví, heimsótti Linthipe þjálfunarsetrið þar sem um 80 ungmenni hljóta menntun sem fjármögnuð er í gegnum þróunarsamvinnuverkefni Íslands í Nkhotakota héraði. Einnig var opnuð ný menntamálaskrifstofa Nkhotakota héraðs, en opnun skrifstofunnar var að hluta til fjármögnuð í gegnum þróunarsamvinnuverkefni Íslands þar í landi. Davíð Bjarnason, forstöðumaður okkar þar í landi, var viðstaddur opnunina ásamt fulltrúum héraðsstjórnar og sveitarstjórnar- og uppbyggingarmálaráðuneytis Malaví. 

 

 

 

Nýja Delí

Sendiherrahjónin, Benedikt Höskuldsson og Hjördís Magnúsdóttir, opnuðu listasýninguna „Shani's Chariot" eftir íslenska listamanninn Reinar Foreman í Delí í vikunni. 

Í tilefni dags íslenskrar tungu bjó sendiráðið til stutt myndband um nokkur íslensk orð sem eru í dálæti hjá diplómötunum okkar þar í landi.

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Urban Fringe - the underground studio (@urbanfringe_undergroundstudio)

 

 

 

Stokkhólmur

Tónlistarhátíðin „Reykjavík Rising" fór fram í Stokkhólmi um síðustu helgi. 500 manns sóttu hátíðina þar sem Elín Hall, Júníus Meyvant, Vigdís Hafliðadóttir og Birkir Blær tróðu upp. Tónlistarhátíðin var skipulögð af Önnu Grétu Sigurðardóttur í samstarfi við sendiráð Íslands í Stokkhólmi. 

 

 

Varsjá

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi, tók þátt í pallborðsumræðum í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að kennsla á norrænum fræðum hóf göngu sína í Gdansk. Pallborðsumræðurnar snerust um skuggaflota Rússlands í Eystrasaltshafi og voru skipulagðar af Lech Walesa stofnuninni og Sjóhersskólanum í Gdynia. 

Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi, í pallborðsumræðum

 

Ragnheiður Kalsöe, varamaður sendiherra, sótti alþjóðlegan fund um fæðuöryggi í Kænugarði í vikunni. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, hélt þar ávarp í gegnum fjarfundarbúnað þar sem tilkynnt var um 150 milljón króna framlag Íslands til átaksins „Grain from Ukraine".

 

Sigurgeir Ómar Sigmundsson, sendiráðsfulltrúi og starfsmaður Ríkislögreglu stjóra (Frontex) tók þátt í hátíðarhöldum og fundi með forseta Póllands í tengslum við þjóðhátíðardag Póllands í síðustu viku.

 

 

Sendiherra Íslands lét sig, að sjálfsögðu ekki, vanta á úrslitaleik Íslands og Úkraínu þar sem landsliðin kepptu um sæti í HM 2026. Keppnin fór fram í Varsjá á sunnudaginn. 

 

Osló

Í tilefni dags íslenskrar tungu bjó sendiráðið okkar til flott myndand um íslensku, íslensk nýyrði og ýmislegt fleira. Þar var til dæmis áréttað að ekki öll íslensk orð enda á -ur, en það er heilmikill miskilningUR Norðmanna.

 

 

Kaupmannahöfn

Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku, tók þátt í morgunverðarfundi norænna sendiherra í Kaupmannahöfn í dag ásamt fulltrúum Eystrasaltsríkjanna, Þýskalands og Póllands. Sérstakur gestur fundarins var Anders Tang Friborg, aðalráðgjafi forsætisráðherra Danmerkur í utanríkismálum. Á fundinum tók sendiherra til máls og lýsti vonbrigðum íslenskra stjórnvalda með ákvörðun Evrópusambandsins um verndartolla á innflutning m.a. EES landanna á járnblendi til Evrópusambandsríkja. 

 

 

Helsinki

Sendiherra Íslands í Finnlandi, Harald Aspelund, tók á móti fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem sóttu frumkvöðlaráðstefnuna „Slush 2025" sem fram fór í Helsinki í vikunni. Haldinn var hliðarviðburður ráðstefnunnar í embættisbústaðnum í Helsinki þar sem Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Hefring Marine var heiðursgestur. 

 

Berlín

Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Auðunn Atlason, tók á móti stórum hópi fræðafólks sem eru í Berlín vegna „Aarhus Old Norse Mythology" ráðstefnunnar. Í embættisbústaðnum í Berlín voru haldnar pallborðsumræður um norræna goðafræði í samstarfi við Norður-Evrópustofnunar Humboldt háskólans.

 

 

Þórshöfn

Aðalræðisskrifstofa okkar í Þórshöfn stóð fyrir tveimur íslenskum bókmenntaviðburðum á Bókadögum í Norðurlandahúsinu í tilefni dags íslenskrar tungu.

Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og listakona, kynnti bókina sína, Langelstur, og ræddi við gesti um það hvernig bókmenntir geta aukið skilning og brúað bil milli kynslóða. Bókin hefur hlotið fjölda verðlauna t.a.m. bókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins. 

Aðalræðisskrifstofan stóð einnig fyrir vinnustofu fyrir börn og ungmenni þar sem Bergrún Íris aðstoðaði þau við að skapa eigin ofurhetjur og ofurhetjusögur.

 

 

Meira verður það ekki í bili, 

bestu kveðjur, Uppló.