28 nóvember 2025

/

Föstudagspóstur 28. nóvember 2025

Heil og sæl. 

Ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) í síðustu viku um að beita Ísland og hin EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verndarráðstöfunum var ofarlega á dagskrá ráðherra í vikunni. Á mánudag fundaði hún með Samtökum atvinnulífsins um verndartolla um járnblendi og flutti einnig munnlega skýrslu um sama efni á Alþingi á þriðjudag. 

Ráðherra fundaði með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO) á öryggissvæðinu í Keflavík í gær, fimmtudaginn 27. nóvember, en Rutte var í sinni fyrstu vinnuheimsókn til Íslands sem framkvæmdastjóri bandalagsins. Á öryggissvæðinu gafst Rutte tækifæri að kynna sér uppbygginguna á svæðinu og vinnu íslenskra stjórnvalda við að móta varnar- og öryggisstefnu. Á sameiginlegum fundi forsætisráðherra, utanríkisráðherra og framkvæmdastjórans, sem fram fór í Reykjavík, var staða mála í Úkraínu og stuðningur íslenskra stjórnvalda til landsins rædd. Framkvæmdastjóranum var einnig boðið í stutta þyrluferð með Landhelgisgæslunni og utanríkisráðherra þar sem hann fékk mikilvæga innsýn inn í báráttu Íslendinga við náttúruna og margvíslegar áskoranir sem henni fylgja. 

Ráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvík í gær ásamt Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, og Halldóri K. Hermannssyni, hafnarstjóra Reykjaneshafnar. Um er að ræða stækkun á olíubirgðarstöð Atlantshafsbandalagsins í Helguvík, sem felur í sér byggingu nýs 390 metra viðlegukants og birgðageymslu fyrir skipaeldsneyti. Uppbyggingin er samstarfsverkefni íslenskra stjórnvalda og Atlantshafsbandalagsins sem fjármagnar framkvæmdirnar, en áætlað er að fjárfesting bandalagsins geti numið allt að tíu milljörðum króna. 

 

 

 

Very pleased to be in Reykjavík and see Prime Minister @KristrunFrosta and Foreign Minister @thorgkatrin

Iceland is a highly valued member of #NATO and a staunch supporter of #Ukraine

Your strategic position underpins security for North America & Europe and your resilience &… pic.twitter.com/cXKGvSj0YL

— Mark Rutte (@SecGenNATO) November 27, 2025

 

 

Kaupmannahöfn

Jólatónleikar íslensku kóranna í Kaupmannahöfn fóru fram laugardaginn 22. nóvember í Kristjánsborgarhallarkirkju í samvinnu við sendiráð Íslands. Heiðursgestur tónleikanna var H.H. Benedikte prinsessa og bauð sendiherra, Pétur Ásgeirsson, af því tilefni til móttöku í Kongelogen þar sem m.a. Bertel Haarder, fyrrverandi ráðherra, og sendiherrar annarra ríkja voru viðstaddir.

Blómastígvel prinsessunnar vöktu athygli á viðburðinum sem og athygli spænsku pressunnar, en fjölmiðilinn HOLA! fjallaði um þátttöku prinsessunnar og stígvélaval hennar. Sendiherra var glæsilegur í tauinu eins og sjá má.

 

 

Tókýó

Rut Einarsdóttir, starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Tókýó, flutt fyrirlestur á Wakamachi ungmennaráðstefnunni um hlutverk íslenskra ungmennafélaga í hagsmunagæslu og stefnumótun á Íslandi. Fjöldi fulltrúa japanskra ungmennaráða og ungmennafélaga sóttu ráðstefnuna og hlýddu á fyrirlesturinn. 

 

 

Berlín

Sendiráðið okkar í Berlín hélt upplestur föstudaginn 21. nóvember í Felleshus með Ragnari Helga Ólafssyni rithöfundi og samtal hans við þýðanda bókarinnar "Bókasafn föður míns" og þýskan útgefanda. 

Sendiherra lét sig ekki vanta á opnunarleik HM kvenna í handbolta þar sem Ísland og Þýskaland mættust í Stuttgart. 

 

Vínarborg

Sendiherra okkar í Vínarborg og fastafulltrúi Íslands gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), Helga Hauksdóttir, heimsótti höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel ásamt öðrum sendiherrum og fastafulltrúum til þess að kynna sér samstarfsfleti ÖSE og NATO og meginverkefni stofnananna beggja um þessar mundir.

 

Lilongwe

Reinar Frauenfeld, svæðisstjóri verkefnaþjónustuskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNOPS), fundaði með Davíð Bjarnasyni, forstöðumanni sendiráðsins í Lilongwe, og starfsfólki sendiráðsins til þess að ræða þróunarsamvinnuverkefni og samstarf við UNOPS.

Einnig tók sendiráðið á móti sérlegum ráðgjafa forseta Malaví sem ber ábyrgð á eftirliti með skilvirkri og gegnsærri framkvæmd stefnuskrár ríkistjórnarinnar. 

Starfsfólk sendiráðsins fór einnig í heimsókn til feminísku grasrótarsamtakanna „Go Fund a Girl Child“ í Mangochi héraðinu, en sendiráðið hefur styrkt samtökin í tengslum við „the Empower2Transform“. Verkefnið sem hefur það markmið að mynda örygg rými fyrir stúlkur og ungar konur til þess að læra, undir leiðsögn kvenna, um mikilvæg málefni líkt og kyn- og frjósemisheilbrigði, mannréttindi, jafnrétti kynjanna, heilbrigð samskipti innan ástarsambanda, fjármálalæsi og margt fleira.

 

 

 

Nýja-Delí

Sendiherra okkar á Indlandi, Benedikt Höskuldsson, sótti 8. SaGAA ráðstefnuna (Science and Geopolitics of Arctic-Antarctic) sem fram fór í Nýju-Delí í vikunni. Þar komu saman vísinda- og fræðafólk, stefnumótendur og fulltrúar atvinnulífsins til að ræða áskoranir, tækifæri og stefnumótun varðandi loftslagsbreytingar, pólitíska og efnahagslega þróun og samvinnu.

Sendiherra tók þátt í pallborðsumræðum um sjálfbærni þar sem hann fjallaði um stefnur íslenskra stjórnvalda og lagði áherslu á mikilvægi vísindalegs samstarfs og að sjálfbærni sé samþætt í alþjóðlega stefnumótun. 

 

 

Samfélagsmiðlaherferð

Sendiskrifstofur Íslands taka nú þátt í 16 daga átaki UN Women á samfélagsmiðlum gegn kynbundnu ofbeldi sem hófst þann 25. nóvember og stendur fram til 10. desember.

Ásamt því að deila samfélagsmiðlaefni um stefnur íslenskra stjórnvalda hafa sumar sendiskrifstofur okkar tekið þátt í ýmsum viðburðum tengdum alþjóðlega átakinu.

Hér eru nokkur dæmi: 

 

 

We joined the launch of the 2025 #OrangeTheWorld campaign at @UN_HRC as we mark #16DaysOfActivism.
Iceland 🇮🇸 puts the fight against gender-based violence at the top of our agenda. We have criminalized digital violence - and we keep working every day because there is #NoExcuse. pic.twitter.com/hUvf6doo6Z

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) November 25, 2025

 

 

 

 

UNESCO Group I wore orange for the International Day for the Elimination of Violence against Women. Unite with us in our fight against gender-based violence both online and offline. #16days

UNESCO's action against GBV👉https://t.co/gwMiPjyFbZ pic.twitter.com/aADbq8anrF

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) November 25, 2025

 

Eliminating gender-based violence, both online and offline, is a top priority for 🇮🇸

We have already criminalised digital violence by law and will continue to be a strong and a reliable advocate for stronger laws protecting women and girls worldwide from online abuse. #NoExcuse pic.twitter.com/JK8G0bxyvo

— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) November 25, 2025

 

Meira verður það ekki í bili, 

bestu kveðjur. Uppló