05 desember 2025

/

Föstudagspóstur 5. desember 2025

Heil og sæl.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, opnaði nýtt sendiráð Íslands á Spáni með formlegum hætti í Madríd á fullveldisdegi Íslendinga, 1. desember 2025. Í tilefni fullveldisdagsins var einnig birt grein eftir ráðherra í Morgunblaðinu.

Vegna opnunarinnar var haldin sérstök ráðstefna í spænska utanríkisráðuneytinu með þátttöku José Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar. Einnig fórum fram pallborðsumræður um utanríkispólitísk málefni með þátttöku ráðherranna beggja, sem og pallborðsumræður um aukin viðskiptatengsl Íslands og Spánar, en sérstök viðskiptasendinefnd á vegum Íslandsstofu var í föruneyti ráðherra á Spáni.

Ráðherra átti einnig tvíliða fund með aðstoðarefnahags- og viðskiptaráðherra Spánar, Maria Amparo López Senovilla.

 

 

 

 

Á miðvikudaginn 3. desember sótti ráðherra reglubundinn fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel

 

Another fruitful @NATO Foreign Ministerial meeting concluded. Always a pleasure to welcome 🇮🇸FM @thorgkatrin and her entourage @IcelandNATO pic.twitter.com/9dbosRbO98

— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) December 3, 2025

 

 

Þaðan hélt ráðherra til Berlínar þar sem hún átti tvíhliðafund í dag með Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands. Í kjölfar fundarins var boðað til blaðamannafundar.

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 

 

¡Hola España!

Það gleður okkur að geta nú greint frá fréttum og störfum nýs sendiráðs í Madríd! Líkt og kom fram hér að ofan var mikið húllumhæ á mánudaginn. Fyrir öll sem ekki eru sleip í spænsku þá fjallaði sendiherra Íslands á Spáni, Kristján Andri Stefánsson, um sterk og margra alda gömul viðskiptatengsl Íslendinga og Spánverja í myndbandi sem sendiráðið birti af tilefni opnunarinnar.

Einnig voru birt myndbönd af utanríkisráðherra Spánar, José Manuel Albares, annars vegar og af framkvæmdastjóra Iceland Seafood, Magnúsi B. Jónssyni, þar sem opnun sendiráðsins er fagnað og fjallað er um sterk viðskipta-, menningar- og stjórnmálatengsl Íslands og Spánar.

 

 

 

 

París

Heimildarmynd Hrafnhildar Gunnarsdóttur og Pamelu Hogan um kvennafrídaginn 1975 var sýnd fyrir fullum sal gesta á fimmtudaginn í síðustu viku. Sendiráðið stóð fyrir sýningunni og pallborðsumræðum um stöðu jafnréttismála á alþjóðavettvangi með þátttöku jafnréttisstýru UNESCO, Begoña Lasagabaster, yfirmanni jafnréttismiðaðrar utanríkisstefnu Frakklands, Janaïna Herrera, Hrafnhildar og Maríu Mjallar Jónsdóttur, sendiherra Íslands, sem stýrði umræðunum.

Sendiherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja gagnvart Frakklandi funduðu með Fabien Mandon, hershöfðingja og yfirmanni franska hersins, í gær, fimmtudaginn 4. desember. 

Ísland og Frakkland héldu einnig í gær sinn fjórða tvíhliða samráðsfund, að þessu sinni í París, en Ragnar G. Kristjánsson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu, og Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna, leiddu samráðið fyrir hönd Íslands. Fjallað var um mikilvægi EES-samningsins og afstöða Íslands til verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna innflutnings á járnblendi var áréttuð. Einnig var rætt um öryggis- og alþjóðamál, þróun innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og víðtæk samskipti Íslands og Frakklands. Einnig var fundað með fulltrúum franska utanríkisráðuneytisins og OECD. 

 

Les ambassadeurs des pays NB8 ont rencontré le Chef d’état-major des armées lors d’une réunion organisée par 🇪🇪. De bons échanges, marqués entre autres par la solidarité au sein de l’OTAN, le soutien à 🇺🇦 et l’importante coopération entre les pays nordiques-baltes et la France. https://t.co/C5bE8DGav1

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) December 4, 2025

Sendinefndir Íslands og Frakklands í París.

 

Brussel

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, tók þátt í 64. fundi sameiginlegu EES-þingmannanefndarinnar (e. EEA Joint Parliamentary Committee) í Strassborg í síðustu viku. Alþjóðlegur óstöðugleiki, viðskiptahindranir, samstarf í geimgeiranum og þátttaka EES-EFTA ríkjanna í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins voru meðal annars á dagskrá nefndarinnar að þessu sinni.

Sendiráðið styrkti Arctic Futures Symposium sem er alþjóðleg og þverfagleg ráðstefna sem haldin var í húsakynnum EFTA skrifstofunnar í Brussel. Ráðstefnuna sótti fjöldi fræðafólks, stefnumótenda, vísindafólks og fulltrúa atvinnulífsins til þess að ræða mikilvægi norðurslóða. Auk áhugaverðra vinnustofa og fyrirlestra voru fjölbreyttar kvikmyndir frá norðurslóðaríkjum á dagskrá ráðstefnunnar, t.a.m íslenska stuttmyndin Veður ræður akri, en vit syni eftir Kötlu Sólnes.

 

 

Helsinki

Sendiherrahjónin okkar í Helsinki, Harald Aspelund og Ásthildur Jónsdóttir, buðu Íslendingum búsettum í Finnlandi á jólaball í embættisbústaðnum á fullveldisdeginum 1. desember. Jólasveinninn Stekkjastaur var heiðursgestur, en hann langt ferðalag til þess að gleðja íslensku börnin þar í borg. Þar var dansað í kring um jólatré og boðið upp á ýmsar jólakræsingar.

Þann sama dag voru opnaðar tvær nýjar sýningar í Gallerie Käytävä sem er staðsett í embættisbústaðnum. Sýningarnarnar In Here nor There eftir Öldu Rose Cartwright og Fire and Form eftir Sigurborgu Stefánsdóttur standa yfir út janúar 2026.

Þriðjudaginn 2. desember undirritaði sendiherra nýtt samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021 - 2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Litáens hins vegar. 

 

 

 

Þórshöfn

Það var hátíð í bæ þegar kveikt var á Reykjavíkurtrénu í Þórshöfn laugardaginn 29. nóvember. Þar hélt Sanna Magdalena, borgarfulltrúi, ávarp ásamt Elsu Berg, borgarstjóra Þórshafnar. 

 

 

Washington D.C

Sendiherra okkar í Bandaríkjunum, Svanhildur Hólm Valsdóttir, tók þátt í pallborðsumræðum á vegum Alþjóðamálastofnunar (IPDGC) George Washington Háskólans í Washington D.C. þar sem hún fjallaði um störf sín sem sendiherra og sterk tengsl milli Íslands og Bandaríkjanna á sviði menningar og viðskipta. 

 

We had the honor to host Her Excellency Svanhildur Hólm Valsdóttir, Ambassador of Iceland to the United States of America. Her Excellency reminded us that learning about each other's cultures and collaborating helps to bring the best public diplomacy. @ElliottSchoolGW @IERES_GWU pic.twitter.com/ymIx4bgqVW

— IPDGC (@IPDGC) December 4, 2025

 

Osló

Jóladagatal sendiráðsins í Osló hófst fyrsta desember. Á hverjum degi fram að jólum mun sendiráðið deila Jólabókaflóðinu með frændfólki okkar í Noregi og vekja athygli á íslenskum bókum.  - flott framtak! JULEBOKSKRED!

Högni S. Kristjánsson, sendiherra okkar í Osló, undirritaði fyrir hönd Íslands loftferðasamning milli Íslands og Lýðveldisins Kóreu í Osló í gær, fimmtudaginn 4. desember. Með samningnum er komið á skýrum og heildstæðum reglum sem auðvelda þróun flugsamgangna milli ríkjanna og styðja við áframhaldandi eflingu viðskiptatengsla.

 

Freetown

Undanfarna daga hefur UNICEF í Síerra Leóne verið í vettvangsferðum og skoðað m.a. þróunarsamstarfsverkefni Íslands í strandhéraðinu Bonthe. 

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofu, tók þátt í fjölsóttum opnunarviðburði UN Women í Síerra Leóne vegna 16 daga alþjóðlegs átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem haldinn var í Freetown í síðustu viku. 

 

We continue our visit today to these hard-to-reach fishing communities in Bonthe Island to meet children and their families. In addition to WASH facilities, @MFAIceland supports ECD centres so that children could learn @IcelandinSalone pic.twitter.com/W20rcxH9rt

— UNICEF Sierra Leone (@UNICEFSL) November 27, 2025

 

The Embassy is delighted to have participated today in the launch of the 16 Days of Activism campaign in Freetown. By working togtether we can eliminate gender-based violence, both online and offline. #16Days #NoExcuse @UNWOMEN_SL @mogca_S_L pic.twitter.com/Rbguv9DhuY

— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) November 25, 2025

 

Kaupmannahöfn

Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, tók hlýlega á móti Guðrúnu Karls- og Helgudóttur, biskupi Íslands, og Bryndísi Möllu Elídóttur, prófasti, sem heimsóttu sendiráðið í dag, föstudaginn 5. desember. Þar funduðu þær með sendiherra og Sigfúsi Kristjánssyni, sendiráðspresti. Á myndinni má einnig sjá Stefaníu Kristínu Bjarnadóttur, menningar- og viðskiptafulltrúa sendiráðsins. 

 

London

Í tilefni útgáfu nýrrar bókar Gísla Pálssonar, The Last of its Kind: The Search For the Great Auk and the Discovery of Extinction, bauð sendiráðið til móttöku í húsakynnum sendiráðsins. Móttakan var haldin í samstarfi við Miðstöð íslenskra bókmennta og University College London. 

 

Lilongwe

Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiskrifstofu okkar í Lilongwe, og Erla Hlín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns, funduðu með George Chaponda, utanríkisráðherra Malaví, í gær. Á fundinum ræddu þau um náið og gott samstarf milli Íslands og Malaví, ekki síst í þróunarsamvinnu. 

Í gær tók starfsfólk sendiráðsins einnig þátt í viðburði á vegum Mannréttindastofnunar Malaví í tengslum við 16 daga alþjóðlegs átaks UN Women gegn kynbundnu ofbeldi.

 

Nýja-Delí

Í tilefni fullveldisdagsins útbjó sendiráðið myndband þar sem varamaður sendiherra, Tinna Sveinsdóttir, fjallaði um mikilvægi fullveldisdagsins í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.  

Á þriðjudaginn var blásið til jólaviðburðar í embættisbústaðnum í Nýju-Delí þar sem Hjördís Magnúsdóttir, maki sendiherra, kynnti fjölþjóðlegum hópi kvenna fyrir íslenskum jólahefðum.

 

 

Ottawa

Sendiráðið okkar í Ottawa sýndi íslensku heimildamyndina Dagurinn sem Ísland stöðvaðist í samfélagsmiðstöðinni Rockcliff Park. Þar hélt nýr sendiherra Íslands þar í landi, Auðbjörg Halldórsdóttir, opnunarávarp og bauð gestum síðan upp á íslenskt jólaglögg. Viðburðurinn var fjölsóttur og var skipulagður í samstarfi við vinafélags Íslands "Friends of Iceland".

 

Nuuk

Jóladagatal aðalræðisskrifstofu okkar í Nuuk er nú í gangi, en á hverjum degi fram að jólum mun sendiskrifstofan deila fróðleiksmolum um Grænland og sögu þess. Í dag var fjallað um Qassiarsuk sem við þekkjum betur sem Bröttuhlíð, bæ Eiríks rauða í Eystribyggð á Grænlandi.

 

 

Meira verður það ekki í bili. 

Bestu kveðjur, Uppló.