12 desember 2025

/

Föstudagspóstur 12. desember 2025

Heil og sæl. 

Á alþjóðlegum degi mannréttinda, 10. desember, var opinn viðburður í Norræna húsinu á vegum utanríkisráðuneytisins, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi þar sem afstaða mannréttinda í heiminum var til umræðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fjallaði um áherslur Íslands í mannréttindamálum undir yfirskriftinni Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á Alþjóðavettvangi. Þann sama dag gaf utanríkisráðuneytið út samantekt um áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum á alþjóðavettvangi, en Ísland hefur tekið að sér sífellt stærra verkefni á því sviði undanfarin ár. 

 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Utanríkisráðuneytið (@utanrikisthjonustan)

 

Nýja-Delí og Kathmandu

Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands í Nýju-Delí, afhenti forseta Nepals, Ramchandra Paudel, trúnaðarbréf sitt í Kathmandu í gær, en Benedikt gegnir sendiherrastöðu einnig gagnvart Nepal.

Í tilefni fullveldisdags Íslendinga bauð sendiráð okkar í Nýju-Delí samstarfsaðilum og Íslandsvinum í fullveldisveislu á mánudaginn, 8. desember. Í ávarpi sínu fjallaði sendiherra um aukið samstarf milli Íslands og Indlands og um þau tækiferi sem felast í nýju fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Indlands sem tók gildi á árinu.  

 

 

 

Vínarborg

Ráðherrafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fór fram í Vínarborg á dögunum og sótti Helga Hauksdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni og sendiherra okkar í Vínarborg, fundinn í fjarveru utanríkisráðherra. 

 

 

Þórshöfn

Starfsfólk okkar í Þórshöfn gerði vel við gesti sína í jólamóttöku aðalræðisskrifstofunar í Þórshöfn síðastliðinn sunnudag. Sólrún Ásta Haraldsdóttir, söngkona, tróð upp og meira að segja lagði íslenskur jólasveinn leið sína til Færeyja til þess að kæta krakka.

 

 

París

Sendiherra okkar í París, María Jónsdóttir, flutti ávarp á opnunarviðburði í lok síðustu viku vegna nýrra verkefna íslenska fyrirtækisins Kerecis í Frakklandi. Í ávarpi sínu lagði sendiherra áherslu á sterk tengls milli Íslands og Frakklands á sviði viðskipta og menningar. 

Í gærkvöldi var frumsýnd fyrir fullum bíósal ný mynd Hlyns Pálmasonar Ástin sem eftir er

 

 

Tókýó

Sendiherra Íslands í Japan, Hreinn Pálsson, afhenti Naruhito, keisara Japans, trúnaðarbréf sitt í síðustu viku. 

 

Fyrr í dag, föstudag, var Hiroyuki Abe, borgarstjóri Tama-borgar, sæmdur Heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar fyrir framlag sitt til tvíhliða samskipta Íslands og Japan. Sendiherra afhenti heiðursmerkið og gaf einnig eintak af íslenskri kennslubók fyrir grunnskóla sem ber heitið Ég þori! Ég get! Ég vil! í japanskri þýðingu. 

 

 

Varsjá og Kænugarður

Sendiherra okkar gagnvart Úkraínu, Friðrik Jónsson og Hermann Örn Ingólfsson, varaskrifstofustjóri, utanríkisráðuneytinu, sóttu Kænugarð heim í vikunni og tóku þátt í fundi skrifstofustjóra frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum sem fara með málefni austur-Evrópu. 

Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi, á fundi skrifstofustjóra frá NB8-ríkjunum sem fara með málefni austur-Evrópu.

Ragnheiður Kolsöe, varamaður sendiherra, flutti ávarp í vikunni á opnunarviðburði verkefnis á vegum Uppbyggingarsjóðs EES sem styður við borgaralegt samfélag (e. EEA Civil Society Fund). Í ávarpi sínu lagði Ragnheiður áherslu á mikilvægi sjóðsins sem miðar að því að styðja við aðgerðir í þágu lýðræðis, mannréttinda, félagslegs réttlætis og loftslagsverndar. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Ambasada Islandii w Polsce (@icelandinpl)

 

Í lok nóvember tók Ragnheiður einnig þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um þvingunaraðgerðir (e. Sanction Summit) sem fór fram í Kænugarði. 

 

 

Washington D.C.

Sendinefnd Alþingismanna sótti þingmannaráðstefnu á vegum Atlantshafsbandalagsins um samstarf sem haldin var í Washington í vikunni. Sendiherra okkar í Bandaríkjunum, Svanhildur Hólm Valsdóttir, sótti ráðstefnuna og studdi við vinnuferð þingmannanna. 

 

The parliamentary delegation from #Iceland here at the Transatlantic Forum with Rep. Rick Larsen, H.E. Iztok Mirosic, Ambassador of 🇸🇮Slovenia to the 🇺🇸US, and 🇮🇸Amb. Svanhildur Hólm Valsdóttir. pic.twitter.com/VzwaOCRTTF

— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) December 11, 2025

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Ísland og Búrkína Fasó skipulögðu viðburð með UNFPA sem fór fram fyrir helgi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Viðburðurinn var haldinn í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi gegn konum og fjallaði um gervigreind og tæknilausnir í baráttunni gegn kynfæralimlestingum kvenna og stúlkna. Fastafulltrúi okkar, Anna Jóhannsdóttir, flutti þar opnunarávarp. Upptöku fundarins er hægt að nálgast hér

 

Iceland & Burkina Faso teamed up with @UNFPA to hear from experts on using AI to #EndFGM
Iceland is proud to have supported the @GPtoEndFGM since its establishment & pleased to have a dialogue on how AI can be a force for change #16DaysOfActivism 🇺🇳🇧🇫🇮🇸
📄https://t.co/C9g1YIwdLJ pic.twitter.com/b8a1fOMFXJ

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) December 5, 2025

 

Every girl that has had to endure FGM is one girl too many.

Excellent discussion on using AI to #EndFGM, with insights on how digital tools can transform the landscape of FGM prevention and response.

Let’s unlock the potential of AI to keep girls free from harm.#16Days pic.twitter.com/6cK6PsRZDl

— UNFPA Executive Director (@unfpachief) December 5, 2025

 

Anna flutti einnig ávarp fyrir hönd Íslands í umræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um samþykkt ályktunar um hafið og hafrétt.  

 

Iceland 🇮🇸 delivered a statement at #UNGA 🇺🇳 debate on omnibus res. #oceans 🌊 and #LawOfTheSea sustainable #fisheries 🐟 and #BBNJ “🇮🇸 continues to reaffirm its unwavering support for the integrity and universality of the UNCLOS” #SDGs @undoalos See: https://t.co/7rha0ScqfO pic.twitter.com/nIUhI7WEO4

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) December 8, 2025

 

Ottawa

Nýr sendiherra Íslands í Ottawa, Auðbjörg Halldórsdóttir, ásamt sendiherrum Norðurlanda, hittu Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, Anita Anand, utanríkisráðherra, og Virgina Mearns, sérstökum erindreka Kanada í norðurslóðarmálum, í vikunni. 

 

 

Kaupmannahöfn

Kvikmynd Hlyns Pálssonar, Ástin sem eftir er, var frumsýnd á sérstakri hátíðarsýningu í Grand Teatret í Kaupmannahöfn í vikunni. Sendiherra okkar þar í landi, Pétur Ásgeirsson, ávarpaði gesti fyrir sýningu og bauð sendiráðið síðan upp á léttar veitingar að sýningu lokinni. 

 

Helsinki

Elísabet Gunnarsdóttir, safnstjóri listasafns ASÍ, leit við í Gallerie Käytävä, sem er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki, í vikunni og skoðaði nýjustu sýninguna Hér né þar (e. Here nor There) eftir Öldu Rose Cartwright. Hægt er að hlusta á stutt viðtal við listakonuna hér fyrir neðan. 

 

 

 

Brussel

Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar sem fram fór í síðustu viku var síðasti fundur undir formennsku Íslands en Ísland hefur gengt formennsku í bæði fastanefnd EFTA (e. EEA Standing Committee) og í sameiginlegu EES-nefndinni (e. EEA Joint Committee), undanfarna sex mánuði. Á fundinum voru 69 ákvarðanir samþykktar um upptöku 142 gerða í EES-samninginn, hvorki meira né minna. 

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, sagði að þessu tilefni að sá fjöldi gerða sem nú væru teknar upp „sýni fram á árangur EES-ríkjanna og Evrópusambandsins við að minnka innleiðingarhallann". Þá stýrði sendiherra einnig fundi fastanefndar EFTA.

 

 

Berlín

Menningarmál voru áberandi í vikunni en á þriðjudag fór fram árslokaviðburðurinn “Sögur” í Felleshus. Þar las Bergsveinn Birgisson rithöfundur upp úr bók sinni Kolbeinsey í þýðingu Eleonoru Gudmundsson, sem er lektor í íslenskum fræðum við Vínarháskóla, og svaraði spurningum gesta. Húsfyllir var og boðið upp á léttar veitingar á eftir. Bókabúðin Pankebuch var eins og oft áður með bókastand með íslenskum bókum til sölu.

Kvöldið eftir var svo komið að íslensku stuttmyndinni “0” eftir Rúnar Rúnarsson leikstjóra. Myndin var sýnd í samvinnu við Compass Films, framleiðslufyrirtæki myndarinnar, og var leikstjórinn viðstaddur og ræddi við áhorfendur að myndinni lokinni.  

 

 

 

Meira verður það ekki í bili. 

Bestu kveðjur, Uppló.