19 desember 2025
/
Föstudagspóstur 19. desember 2025
Heil og sæl.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði á föstudaginn í síðustu viku með Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Ragnhildi Helgadóttur, rektor Háskóla í Reykjavík, um samstarf við uppbyggingu sérþekkingar á málefnasviðum þróunarsamvinnu. Á fundinum formgerðu utanríkisráðherra og rektorar háskólanna samstarf um styrkveitingar frá utanríkisráðuneytinu til rannsóknarverkefna við að byggja upp tengls við háskóla í Afríku sunnan Sahara og styrkja þannig þekkingu á málefnasviðum alþjóðlegrar þróunarsamvinnu hérlendis.
Á sunnudag ávarpaði ráðherra Hanukkah ljósahátíð gyðinga í miðbæ Reykjavíkur og tendraði fyrsta ljósið í ljósastikunni. Ráðherra ávarpaði einnig fulla Hafnarfjarðarkirkju og flutti hugvekju í tilefni þriðja sunnudagsins í aðventu.
I strongly condemn the horrific attack on those celebrating Hanukkah at Bondi Beach in Australia. There is no place - anywhere - for antisemitism or terror. I extend my heartfelt condolences to the victims, their loved ones, and others affected.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) December 14, 2025
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi okkar gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti sameiginlegt ávarp Norðurlanda þar sem kallað er eftir því að næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna verði kona og að ný forysta Sameinuðu þjóðanna beiti sér markvisst fyrir auknum friði, alþjóðalögum, fjölþjóðahyggju og mannréttindum.
At today’s #UNSC debate on Leadership for Peace, Iceland on behalf of the Nordics 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪emphasized that the next Secretary-General must lead a UN that is fit for peace.
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) December 15, 2025
Furthermore, after eight decades, it is long overdue for a woman to lead the @UN
📄https://t.co/XcsVW8CJJM pic.twitter.com/NQ2MP0pRjG
Í gær, fimmtudag, fullgilti Ísland hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja (BBNJ-samningur). Anna Jóhannsdóttir afhenti David Nanopoulos, forstöðumanni þjóðréttarsamningadeildar lagaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, fullgildingarskjalið í New York.
Fastanefnd Íslands gagnvart Evrópuráðinu í Strassborg
Ísland var í hópi 35 ríkja sem undirrituðu samning um stofnun alþjóðlegrar skaðabótanefndar vegna Úkraínu í gær. Undirritunin fór fram á ríkjaráðstefnu á vettvangi Evrópuráðsins sem fram fór í Haag með þátttöku Volodómír Selenskí Úkraínuforseta.
Fastafulltrúi okkar í gagnvart Evrópuráðinu, Gréta Gunnarsdóttir, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.
Iceland is proud to have signed the Convention establishing a Claims Commission for #Ukraine with 34 other countries.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) December 17, 2025
Russia must be held accountable for the devastation inflicted on the people of Ukraine.
Iceland stands with 🇺🇦
➡️https://t.co/rM2AFRNiwr
Genf
Sendiráðið okkar í Genf er þessa dagana að gera upp viðburðarríkt ár sitt á samfélagsmiðlum sínum. Það hefur ýmislegt átt sér stað á árinu t.a.m heimsótti forseti Íslands Sviss í tengslum við EM kvenna í fótbolta þar sem kvennalandslið Íslands spilaði leik. Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í ágúst þar sem íslensk menning og hestamennska nutu sín fulls á alþjóðelgum vettvangi.
Áhugasamir geta kynnt sér störf sendiráðsins á árinu á samfélagsmiðlum þess næstu daga.
Amsterdam
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, afhenti í vikunni Willem-Alexander Hollandskonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Hollandi með aðsetur í Brussel. Athöfnin fór fram í Noordeinde höllinni í Haag. Ásamt sendiherra var Inga Þórey Óskarsdóttir, sendiráðsritari, með í för.
Nuuk
Starfsfólk aðalræðisskrifstofu Íslands í Nuuk var boðið í móttöku Vivien Motzfeld, utanríkis- og menntamálaráðherra Grænlands, ásamt starfsfólki annarra erlendra sendiskrifstofa þar í landi.
París
Sendiherra okkar í París, María Mjöll Jónsdóttir, fylgdi hóp íslenskra háskólanema í arkitektúr í heimsókn í Paris - Malaquais arkitektúrkóla í París, en háskólanemarnir taka þar þátt í samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Paris - Malaquais skólans.
Á föstudaginn í síðustu viku afhenti María Mjöll, sendiherra, Khaled El-Enany, framkvæmdastjóra Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), trúnaðarbréf sitt sem sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni.
Gaman er að segja frá því að sundlaugamenning Íslendinga er nú komin á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Viðurkenning þess efnis var veitt á UNESCO fundi í Nýju Delí. Vilhelmína Jónsdóttir, sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytinu, og Rachel John, viðskipta- og upplýsingafulltrúi sendiráðs Íslands á Indlandi, sóttu fundinn.
🔴 BREAKING
— UNESCO 🏛️ #Education #Sciences #Culture 🇺🇳 (@UNESCO) December 10, 2025
New inscription on the #IntangibleHeritage List: Swimming pool culture in Iceland, #Iceland🇮🇸.
Congratulations!https://t.co/xoL14QknFp #LivingHeritage pic.twitter.com/CrfLZmTX6E
Kaupmannahöfn
Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, tók þátt í hádegisverðarfundi með nýjum sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, Kenneth A. Howery, ásamt öðrum sendiherrum Norðurlandanna. Sendiherra fjallaði stuttlega um tvíhliða samstarf Bandaríkjanna og Ísland á sviði varnarmála og gerði grein fyrir samstarfi NATO-ríkjanna á norður-Atlantshafi.
Helsinki
Sendiráðið deildi viðtali við íslensku listakonuna, Sigurborgu Stefánsdóttur, þar sem hún ræddi nýju sýninguna sína sem stendur nú yfir í Gallerie Käytävä, sem er staðsett í embættisbústaðnum, undir sýningarstjórn Ásthildar Jónsdóttur.
Varsjá
Friðrik Jónsson, sendiherra, afhenti í vikunni Mikheil Kavelashvili, forseta Georgíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra gagnvart Georgíu með aðsetur í Varsjá. Athöfnin átti sér stað í forsetahöllinni í Tbilisi.
Sendiherra tók þátt í athöfn við forsetahöll Póllands til heiðurs Volodymyr Zelenskyy, forseta Úkraínu, sem kom í opinbera heimsókn til Póllands í dag. Sendiherra ræddi stuttlega við Úkraínuforseta og áréttaði stuðning íslenskra stjórnvalda við Úkraínu.
Washington D.C.
Sendiherra okkar í Bandaríkjunum, Svanhildi Hólm Valsdóttur, var boðið í móttöku á vegum öldungaþingmannanna Jeanne Shaheen og Susan Collins til heiðurs kvenkyns sendiherrum gagnvart Bandaríkjunum.
Warm thanks to 🇺🇸Senator Shaheen and 🇺🇸Senator Collins for gathering women Ambassadors in #DC for a reception. #Iceland 🇮🇸Amb. Svanhildur Hólm Valsdottir and a great group of her counterparts from other embassies in DC had the pleasure to be there. pic.twitter.com/vUvIcTkkSj
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) December 17, 2025
Nýja Delí
Líkt og greint var frá í seinasta föstudagspósti bauð sendiráð Íslands í Nýju Delí samstarfsaðilum, stjórnmálafólki, fulltrúum indversks atvinnulífs og öðrum Íslandsvinum í fullveldishátíð í tilefni fullveldisdags Íslands, mándaginn 8. desember. Á fullveldihátíðinni var lögð áhersla á íslenska matarmenningu og íslenskar afurðir líkt og lambið, laxinn og bleikjuna, en meðal markmiða hátíðarinnar var að vekja athygli á íslenskum útflutningsvörum og á þeim tækifærum sem leynast í nýjum fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Indlands.
Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari hjá utanríkisráðuneytisins, sá um kynninguna á íslenskri matarmenningu á hátíðinni.
Í vikunni stóð sendiráðið fyrir vefráðstefnu um viðskiptatækifæri vegna nýja fríverslunarsamningsins milli EFTA-ríkjanna og Indlands, í samstarfi við Íslandsstofu. Vefráðstefnan lagði sérstaka áherslu á íslenskar sjávarafurðir og möguleika inverskra fyrirtækja að bjóða upp á íslenskar gæðavörur.
Berlín
Á mánudag var haldinn síðasti viðburður sendiráðsins okkar í Berlín á þessu ári þegar Aðventa Gunnars Gunnarssonar var lesin í heild sinni fyrir fullu húsi í Felleshús, sameiginlegri byggingu Norrænna sendiráða. Viðburðurinn var haldinn í samvinnu við Skriðuklaustur fyrir austan en þetta er í 13. skipti sem Aðventa er lesin í Berlín. Þýski leikarinn Matthias Scherwenikas las söguna sem er orðin fastur hluti af jólahaldi Íslandsvina í Berlín.
Lilongwe
Erla Elín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns, tók þátt í pallborðsumræðum í vikunni á viðburði Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í tengslum við 16 daga alþjóðlegs átaks UN Women gegn kynbundnu ofbeldi. Á viðburðinum var fjallað um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi í Malaví og greindi Erla Elín frá stefnum og aðgerðum íslenskra stjórnvalda og fór yfir sögu kvennréttindabaráttunnar á Íslandi.
Ben Phiri, sveitarstjórnar- og uppbyggingamálaráðherra Malaví, tók þátt í vettvangsferð sendiráðs Íslands í Mangochi héraði í vikunni þar sem skoðuð var nýtt húsnæði fyrir kyn- og frjósemisheilbrigðisdeild.
Einnig var haldinn sameiginlegur viðburður sendiráðs Íslands og sveitarstjórnar- og uppbyggingarmálaráðuneytis Malaví vegna nýrra þróunarsamvinnuverkefna í Machinga, Balaka og Salima héröðum.
Meira verður það ekki í bili.
Kær kveðja, upplýsingadeild.