16 janúar 2026

/

Föstudagspóstur 16. janúar 2026

Heil og sæl. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði með Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, á Keflavíkurflugvelli fyrr í vikunni. Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir samstarf Íslands og Þýskalands á sviði alþjóða- og öryggismála, málefni Grænlands, Evrópumál, norðurslóðir og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Saman ræddu þau hvernig treysta megi grundvöll alþjóðasamstarfs og það alþjóðakerfi sem á að tryggja frið og öryggi. 

 

 

 

Á miðvikudaginn tók ráðherra á móti stórum hóp nemenda Verzlunarskóla Íslands sem leggja stund á stjórnmálafræði. Hópurinn spurði ráðherra spjörunum úr um stöðu heimsmála og íslensk stjórnmál, enda er af nógu að taka þessa dagana.

 

 

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að Grænland hefur verið í brennidepli undanfarna daga. Í síðustu viku birtu Norðurlönd sameiginlega yfirlýsingu um Grænland og ráðherra mætti í sjónvarpsviðtal hjá Sýn í gærkvöld og ræddi öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. 

 

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Sendiherra og fastafulltrúi okkar, Anna Jóhannsdóttir, tók sæti síðastliðinn þriðjudag í stjórnarnefndum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur að sér stjórnarsetu í stofnuninni fyrir hönd Versturlandahópsins, en áður gegndi Ísland sama hlutverki í stjórnarnefnd UN Women árið 2022.

 

Iceland is honored to serve in the role of Vice-President of the @UNICEF_Board this year.

We warmly congratulate @EstoniaUN on assuming the Presidency and our fellow Bureau members 🇪🇷🇩🇴🇴🇲

We look forward to working with you in supporting the essential mandate of @UNICEF pic.twitter.com/X25NyJUV3T

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) January 15, 2026

 

Tókýó

Í ár fögnum við 70 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japans sem og 50 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Tælands! Í tilefni þess hefur sendiráðið okkar í Tókýó blásið til tveggja samkeppna, en Tæland er eitt af sex umdæmisríkjum sendiráðsins í Tókýó.

Vegna 70 ára afmælis stjórnmálasambands Íslands og Japans er nú í gangi hönnunarsamkeppni um sérstakt merki (logo) afmælisársins sem yrði notað af sendiráðum og ráðuneytum beggja ríkja á viðburðum og í kynningum og auglýsingum. Bæði íslenskir og japanskir grafískir hönnuðir og háskólanemar í grafískri hönnun geta tekið þátt í samkeppninni.

Áhugasamir geta kynnt sér hönnunarsamkeppnina á vefsíðu sendiráðsins en umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.

Vegna 50 ára afmælis stjórnmálasambands Íslands og Tælands hefur sendiráðið efnt til ljósmyndasamkeppni í samstarfi við utanríkisráðuneyti Tælands og Konunglega ljósmyndafélag Tælands.

Hver sem er getur tekið þátt í ljósmyndakeppninni. Áhugasamir geta kynnt sér ljósmyndasamkeppnina á vefsíðu Konunglega ljósmyndafélagsins. Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar

 

 

📸 Photo Contest Alert!⁰Celebrating 50 years of Thailand–Iceland diplomatic relations⁰💰 Total prizes: 160,000 THB + exciting gifts⁰🗓 Submission: Dec 26, 2025 – Feb 27, 2026⁰Details 👉 https://t.co/Tsl8Pi7euW#PhotoContest #Iceland #RPSThailand #EmbassyofIcelandinTokyo pic.twitter.com/vuuEFn1t8h

— 駐日アイスランド大使館 | Embassy of Iceland in Tokyo (@IcelandEmbTokyo) January 7, 2026

 

Osló

Í síðustu viku tók sendiráð Íslands í Osló þátt í útgáfuhófi bókar Hallgríms Helgasonar Sextíu kíló af sólskini í norskri þýðingu Maren Barlien Guntvedt. Viðburðurinn var haldinn í nýjum embættisbústað sendiráðsins í samstarfi við Kagge Forlag og Miðstöð íslenskra bókmennta.

 

 

Ottawa

Líkt og greint var frá í desember hefur nýr sendiherra Íslands í Ottawa, Auðbjörg Halldórsdóttir, tekið til starfa og gaman er að geta nú deilt myndum frá því þegar sendiherra afhendi Mary Simon, landstjóra Kanada, trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn í Rideau Hall, landstjórahöll Kanada. 

Í vikunni tók sendiherra þátt í sameiginlegum sendiherrafundi Norðurlanda með sérstökum fulltrúa forsætisráðuneytis Kanada gagnvart Evrópusambandinu, John Hannaford, þar sem sendiherrar ræddu náið samstarf Norðurlanda og Kanada á víðsjárverðum tímum. 

 

 

Lilongwe

Starfsólk okkar í Lilongwe, Malaví, fóru í vettvangsferð til að skoða skógræktarverkefni í Mangochi héraði sem er hluti af þróunarsamvinnuverkefni Íslands þar í landi.

Starfsfólk sendiráðsins heimsótti einnig í vikunni þrjá nýja samstarfsaðila og fundaði með nýjum sýslumönnum Salima hérðas, Balaka héraðs og Machinga héraðs. 

 

 

Kaupmannahöfn

Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, opnaði sýninguna SKRIPO Í KAUPMANNAHÖFN í sendiráði Íslands þar í borg með verkum eftir íslenska tvíeykið Guðjón Viðarsson og Kára Þór Arnarsson. Sýningin er opin almenningi og geta áhugasamir sótt hana á opnunartíma sendiráðsins fram til 15. apríl. 

 

 

Helsinki

Marita Toikka, sveitarstjóra Kouvola, tók á móti Haraldi Aspelund, sendiherra Íslands í Finnlandi, sem sótti bæinn heim í vinnuferð. Sendiherra fundaði þar með sveitarstjórn sem kynnti honum fyrir ýmsum stórum uppbyggingarverkefnum á svæðinu t.a.m. uppbyggingu nýs gagnavers á vegum íslenska fyrirtækisins atNorth. 

 

 

 

Genf

Sendiherra okkar í Genf, Einar Gunnarsson, og varamaður sendiherra, Jóhanna Jónsdóttir, hafa nýlega sótt þrjá nýársviðburði á vegum Guy Parmelin, forseta Sviss, Hans-Adam II, prins af Liechtenstein, og Leo XIV páfa.

 

 

Brussel

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, kynnti starfsemi sendiráðsins og tók þátt í heimsókn allsherjar- og menntamálanefndar til Haag í vikunni þar sem þingmennirnir kynntu sér stofnanir Eurojust og Europol. 

 

 

Meira verður það ekki bili, 

Kær kveðja, upplýsingadeild.