23 janúar 2026
/
Föstudagspóstur 23. janúar 2026
Heil og sæl.
Ráðherra sótti fund varnarmálaráðherra Norðurlanda og utanríkisráðherra Grænlands á mánudag sem fram fór í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins (NATO). Á fundinum ræddu ráðherrarnir aukið samstarf á vettvangi NATO, öryggi á norðurslóðum og aukinn viðbúnað á Grænlandi.
Í gær, fimmtudag, flutti ráðherra munnlega skýrslu um stöðu alþjóðamála á Alþingi.
Í dag tók ráðherra þátt í sérstökum aukafundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf til að fjalla um alvarlega stöðu mannréttinda í Íran. Ráðherra ávarpaði fundinn fyrir hönd ríkjahóps um málefni Írans í ráðinu, en Ísland kallaði eftir þessum aukafundi í kjölfar víðtækra mótmæla í landinu.
An important initiative at the @UN_HRC, led by Iceland. The situation in Iran is grave — people are being killed for peacefully exercising their right to freedom of expression. This violence must end immediately. Full statement 👇
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) January 20, 2026
Genf
Í vikunni hófst 51. lota allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna (Universal Periodic Review, UPR) með kynningu á stöðu mannréttinda í Míkrónesíu og Líbanon. Ísland, sem fyrr, leggur áherslu á jafnréttismál, réttindi hinsegin fólks og afnám dauðarefsinga í tilmælum sínum til ríkja. Þá leggur Ísland einnig sérstaka áherslu á kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi kvenna.
Líkt og greint var frá hér fyrir ofan, þá ávarpaði ráðherra sérstakan aukafund Mannréttindaráðsins um alvarlega stöðu mannréttinda í Íran í dag, en Ísland kallaði eftir þessum auka fundi.
🔴 NOW at the @UN Human Rights Council in Geneva:
— UN Human Rights Council (@UN_HRC) January 23, 2026
39th special session - The deteriorating human rights situation in the Islamic Republic of #Iran.
Watch live⤵️https://t.co/Wjabe2vpR9
Helsinki
Ný sýning var opnuð á þriðjudaginn í Gallerie Käytävä sem er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki. Sýningin What the Fjord Keeps eftir Ólöfu Dómhildi Jóhannsdóttur og Gunnar Jónsson og Satu Rämö beinir athyglinni að mikilfenglegri náttúru og fjölskrúðugu dýralífi á Ísafirði og daglegu lífi heimamanna. Sýningin stendur til 26. mars 2026 og sýningarstjóri er Ásthildur Jónsdóttir. Gaman er að segja einnig frá því að starfsfólk finnskra ráðuneyta sem tilheyrir starfsmannafélagi áhugafólks á bókmenntum og listum sóttu sýninguna í vikunni.
Hafnarborgin Oulu í norður Finnlandi hlaut þann mikla heiður að vera útnefnd sem önnur tveggja Menningarhöfuðborga Evrópu (e. European Capitals of Culture) ársins 2026. Sendiherrahjónin létu sig ekki vanta á formlegri hátíð í tilefni þess í Oulu í vikunni sem opnuð var af forseta Finnlands, Alexander Stubb.
Kampala
Rúmt ár er síðan Ísland og UNICEF hófu nýtt samstarfsverkefni um stuðning við mæður á unglingsaldri til að brjótast út úr fátækt um leið og ung börn þeirra fá þjónustu sem stuðlar að þroska þeirra og framförum. Verkefnið nær til tveggja héraða í vesturhluta landsins.
Kaupmannahöfn
Sendiherra okkar í Danmörku, Pétur Ásgeirsson, sótti nýársboð grænlensku landsstjórnarinnar sem haldið var á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Formaður landsstjórnar Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, flutti þar ávarp.
Lilongwe
Fjármálaráðuneyti Malaví hélt samráðsfund í tengslum við undirbúning fjárlaga fyrir fjárhagsárið 2026/2027, sem sendiráðið sótti. Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi öflugs samstarfs stjórnvalda og þróunarsamstarfsaðila til að styðja við efnahagslegar umbætur og styrkingu hagkerfisins. Tilgangur samráðsins var að safna ábendingum frá hagsmunaaðilum sem hafa áhrif á mótun og framkvæmd fjárlaganna.
Sendiráðið sótti fund í Nkhotakota með fulltrúum sveitarstjórnar héraðsins til að ræða forgangsröðun og áætlanagerð fyrir þróunarsamstarf ársins. Árið 2026 markar lok fyrsta áfanga fjögurra ára verkefnis sem miðar að því að efla grunnþjónustu í héraðinu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu, aðgang að hreinu vatni og grunnskólamenntun. Einnig hefur verið unnið að undirbúningi fyrir upphaf slíkra verkefna í þremur nýjum héruðum.
London
Íslandsstofa og Icelandic Gaming Industry (IGI), í samstarfi við sendiráð Íslands í London, stóðu fyrir viðburði þar sem íslenskum tölvuleikjafyrirtækjum og fulltrúum úr tölvuleikjageiranum gafst tækifæri að tengjast breskum samstarfsaðilum, útgefendum og fjárfestum. Sendiherra okkar í Bretlandi, Sturla Sigurjónsson, flutti opnunarávarp viðburðarins og bauð gesti velkomna.
Nýja Delí
Margt og mikið hefur átt sér stað hjá fólkinu okkar á Indlandi í vikunni. Sendiherra Íslands þar í landi, Benedikt Höskuldsson, var heiðursgestur á Academia-Industry Meet (AIM) viðburði í Nýju Delí sem er vettvangur sem tengir saman leiðandi öfl akademíunnar og atvinnulífs. Í ávarpi sínu beindi sendiherra athyglinni að auknu mikilvægi gervigreindar og fjallaði um reynslu Íslands og Norðurlanda.
Í síðustu viku lauk John Bosco starfi við sendiráð Íslands sem bílstjóri eftir tæp 19 ár. Fyrir fagmennsku sína og vel unnin störf var hann sæmdur heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar. Við óskum honum góðs gengis í framtíðarverkefnum sínum.
Sendiherra stóð fyrir kynningarviðburði á íslenskum sjávarafurðum í Mumbai í vikunni í samstarfi við kjörræðismanns Íslands, Gul Kripalani. Viðburðinn sóttu fulltrúar indverskra innflutningsfyrirtækja, verslana og veitinga- og þjónustugeirans. Samkvæmt nýjum fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Indlands munu tollar á íslenskar sjávarafurðir lækka, í skrefum, í áttina að núlli á næstu árum og því gæti Indland orðið gríðarlega mikilvægur markaður fyrir íslenskar útflutningsvörur.
Sendiráð Íslands og sendiráð Noregs í Nýju Delí skipulögðu í sameiningu málþing í gær í tengslum við indversku orkuvikunnar (e. India Energy Week). Málþingið sóttu fulltrúar atvinnulífs og sérfræðingar frá Íslandi og Noregi. Sendiherra Íslands og sendiherra Noregs ávörpuðu fundinn.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi og sendiherra, flutti sameiginlegt ávarp Norðurlanda í umræðum um umbætur á Öryggisráðinu og ríkjaskipan þess.
Today Iceland delivered a Nordic statement at the IGN on reform and membership of the Security Council. Noting that “at the heart of our engagement on Security Council reform lies our unwavering commitment to the UN Charter and to international law.” https://t.co/tvjiNCEgms #UNSC pic.twitter.com/TSXrSHQfQ3
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) January 21, 2026
Ottawa
Í vikunni heimsótti sendiherra Íslands í Ottawa, Auðbjörg Halldórsdóttir, borgina Yellowknife í Norðvesturhéröðunum, ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina. Norðvesturhéröðin eru sjálfsstjórnarsvæði innan Kanada. Norræna heimsóknin lagði áherslu á samstarf á norðurslóðum í tengslum við sameiginlegar áskoranir sem og tækifæri. Í heimsókninni funduðu sendiherrarnir með forsætisráðherra sjálfstjórnarsvæðisins, R.J. Simpson, og öðrum pólitískum leiðtogum og embættismönnum stjórnarinnar. Þar að auki funduðu sendiherrarnir með svæðisstjórn Inúíta í Tlicho, fulltrúum kanadíska hersins og viðskiptageirans. Málþing var skipulagt í samstarfi við borgaryfirvöld Yellowknife sem fjallaði um samfélagslega og efnahagslega seiglu á norðurslóðum og öryggi norðurslóða.
Osló
Sendiráðið okkar í Osló stóð fyrir frumsýningu í gærkvöld á íslensku kvikmyndinni Ástin sem eftir er (e. The Love that Remains) eftir Hlyn Pálmason í samstarfi við Another World Entertainment Norway og Norrænafélagsins.
París
Sendiráðið tók á móti fulltrúum fjárlaganefndar Alþingis í París í vikunni sem heimsóttu borgina í fræðsluferð. Þingmennirnir fengu kynningu hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) á verklagi við fjárlagagerð þjóðríkja og hittu þau sömuleiðis kollega sína í neðri deild franska þingsins. Þingmennirnir funduðu einnig með fulltrúum franska fjármálaráðuneytisins og Seðlabanka Frakklands.
María Mjöll Jónsdóttir afhenti Marcelo Rebelo de Sousa, forseta Portúgal, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Portúgal. Þar átti hún einnig fundi með fulltrúum stjórnvalda til að styrkja tengsl ríkjanna.
Tókýó
Sendiherrar Íslands í Tókýó, Hreinn Pálsson, fundaði með fyrrverandi forsætisráðherra Japans, Shigeru Ishiba, í vikunni ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda.
Sendiherra og starfsfólk sendiráðsins sóttu einnig opnunarsýningu Eirdísar Ragnarsdóttir í Tókýó sem stendur til 7. febrúar í Gallery Ether.
Washington D.C.
Tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta og stjórnmála var til umræðu á fundum sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, átti í Washington fyrr í þessari viku, en alþjóðamál komu jafnframt til umfjöllunar, málefni Grænlands og samstarf Evrópuþjóða og Bandaríkjanna.
Martin Eyjólfsson (t.h.) með Brendan Hanrahan í bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, ásamt Chellie Pingree, þingkonu frá Maine.
The Permanent Secretary and his Delegation had very good discussions with 🇺🇸Rep. John Moolenaar, with Rep. Rick Larsen, Chris Socha of the 🇺🇸Senate Foreign Affairs team and Trine Lunde and the team @WorldBank NB8. pic.twitter.com/HpKR4Xpz0H
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) January 23, 2026
MFA PermSec Martin Eyjólfsson & delegation met key interlocutors in 🇺🇸DC this week @USCongress, @StateDept @USTradeRep, thinktanks and friends.
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) January 23, 2026
Good talking to SBO Hanrahan @StateDept on the transatlantic rel’ship, Arctic, bilat issues &more. pic.twitter.com/tyQbTfLpem
Meira verður það ekki í bili,
bkv. Upplýsingadeild