30 janúar 2026

/

Föstudagspóstur 30. janúar 2026

Heil og sæl. 

Þegar Föstudagspósturinn fór út í síðustu viku var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, að ávarpa sérstakan aukafund Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf til að fjalla um alvarlega stöðu mannréttinda í Íran. Aukafundurinn var kallaður til að frumkvæði Íslands í kjölfar víðtækra mótmæla í landinu undanfarið og harkarlegra viðbragða stjórnvalda í landinu við þeim. 

Mannréttindaráðið samþykkti harðorða ályktun, sem Ísland að sjálfsögðu greiddi atkvæði með. Í ályktuninni fordæmir mannréttindaráðið ofbeldisfull viðbrögð yfirvalda við mótmælunum sem hófust 28. desember sl.

Í ályktun sinni endurnýjaði mannréttindaráðið umboð óháðrar rannsóknarnefndar um Íran til tveggja ára. Rannsóknarnefndin var stofnuð haustið 2022 og var í síðustu viku falið að hefja tafarlaust rannsókn á mannréttindabrotum og alþjóðlegum glæpum í tengslum við mótmælin. 

Auk ávarps utanríkisráðherra átti Ísland aðild að sameiginlegu ávarpi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Permanent Mission and Embassy of Iceland in Geneva (@icelandingeneva)

 

Föstudaginn sl. var birt sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þar sem árásir rússneskra hersveita á úkraínskar borgir, íbúabyggðir og mikilvæga innviði eru harkalega fordæmdar. Utanríkisráðherrarnir kölluðu eftir því rússnesk yfirvöld hættu tafarlaust öllum hernaðaraðgerðum gegn orkuinnviðum og vatnsveitum Úkraínu og áréttuðu að aðgerðirnar væru brot á alþjóðlegum mannréttinalögum og gætu líklega verið stríðsglæpir. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að rússnesk yfirvöld yrðu dregin til ábyrgðar vegna brota á alþjóðalögum. Utanríkisráðherranir undirstrikuðu samstöðu sína með Úkraínu og úkraínsku þjóðinni. 

Á miðvikudag, 28. janúar, var birt sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherra Íslands og tíu annarra utanríkisráðherra þar sem framganga ísraelskra stjórnvalda í garð Sameinuðu þjóðanna var harðlega fordæmd eftir að vinnuvélar ísraelskra stjórnvalda jöfnuðu höfuðstöðvabyggingu Palestínumannaaðstoðarinnar (UNRWA) í Jerúsalem við jörðu. Um er að ræða foræmalausa aðgerð gegn eina af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Undir yfirlýsinguna skrifuðu utanríkisráðherrar Belgíu, Bretlands, Danmerkur, Frakklands, Írlands, Íslands, Japan, Kanada, Noregs, Portúgal og Spánar. 

Í gær, fimmtudaginn 29. janúar, stóðu utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og Varðberg fyrir fjölmennum opnum fundi um áfallaþol Íslands í nýrri heimsmynd. Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnastjóri á varnarmálaskrifstofu, kynnti áfangaskýrslu stjórnvalda sem byggir á sjö grunnviðmiðum Atlantshafsbandalagsins um áfallaþol. 

 

 

Berlín

Sendiherra okkar í Þýskalandi, Auðunn Atlason, fór í vinnuheimsókn til Prag í síðustu viku, en hann gegnir einnig sendiherrastöðu gagnvart Tékklandi. Þar fundaði hann með fulltrúum tékkneska utanríkisráðuneytisins og fulltrúum efri deilar tékkneska þingsins. 

 

 

Á þriðjudag var opnuð ljósmyndasýning Ragnars Axelssonar, RAX, í Fellashus að viðstöddum tæplega 300 gestum þ.m.t. ljósmyndaranum sjálfum og sýningarstjóranum Einari Geir Ingvarssyni. Sýningin ber yfirskriftina Arctic Heroes - Untold Stories og eru myndirnar allar frá Grænlandi. Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, heimsótti sýninguna í leiðsögn ljósmyndarans. Kristjana Rós Gudjohnsen, sviðsstjóri skapandi greina hjá ÍSlandsstofu, var við opnunina og fundaði með sendiráðinu daginn eftir um áherslur í menningarkynningu og viðskiptum. 

 

 

Brussel

Sendiráð Íslands í Brussel stóð fyrir sýningu á íslensku kvikmyndinni Danska konan eftir Benedikt Erlingsson á Polarise Nordic Film Nights kvikmyndahátíðinni í Brussel í samstarfi við nokkra svæðisbundna dreifingaraðila. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, ávarpaði gesti fyrir sýninguna. 

 

 

Sendiráðið tók þátt í fundi vinnuhóps ráðs Evrópusambandsins um EFTA-samstarfið og samskipti Íslands og ESB fyrr í vikunni. Sendiherra flutti skýrslu þar sem lögð var áhersla á sterkt og traust samstarf Íslands og ESB sem byggir á sameiginlegum gildum t.a.m virðingu fyrir lýðræðinu, réttarríkinu og mannréttindum. 

 

 

Helsinki

Varnarmálaráðherra Finnlands, Antti Häkkänen, stóð fyrir hádegisfundi með sendiherrum með aðsetur í Helsinki til að ræða öryggis- og varnarmál. Sendiherra okkar þar í landi, Harald Aspelund, sótti fundinn. 

 

 

Kampala

Sendiráðið okkar í Kampala, Úganda, deildi áhugaverðu kynningarmyndbandi á vegum UNICEF Uganda þar sem fjallað er um samstarfsverkefni Íslands og UNICEF um stuðning við mæður á unglingsaldri sem eiga fötluð börn í héruðunum Kyegegwa og Kikuube. Gaman er að segja frá því að þetta vel heppnaða verkefni var framlengt til fjögurra ára svo fleiri mæður og fleiri börn njóta áframhaldandi stuðnings til að bæta líf sitt. 

 

 

Kaupmannahöfn og Stokkhólmur

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sótti fyrsta leik íslenska handboltalandsliðs karla gegn Ítalíu á Evrópumótinu í handbolta ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku, og Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Svíþjóð, létu sig að sjálfsögðu ekki vanta á leiknum. 

 

 

Sendiráðið okkar í Kaupmannahöfn kallar eftir hugmynd að sýningu í sendiráðinu fyrir hönnunarhátíðina 3daysofdesign, sem fer fram í júní 2026. Sýningunni er ætlað að vekja athygli á íslenskri hönnun, hugviti og nýsköpun og ná til fagfólks, fjölmiðla og almennra gesta. Opið er fyrir innsendingar á hugmyndum til kl. 16, fimmtudaginn 12. febrúar. Áhugasamir geta kynnt sér umsóknarferlið HÉR

 

 

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi stóð fyrir umræðufundi í sendiráðinu fyrir meðlimi áhugafólks um samfélagsmál og stjórnmál í vikunni. Sendiherra okkar þar í landi, Bryndís Kjartansdóttir, hélt fyrirlestur um Ísland og ýmis málefni sem tengjast íslenskri pólitík og utanríkismál. 

 

 

Lilongwe

28 sérfræðingar í Malaví hafa útskrifast úr Landgræðsluskóla GRÓ - Þekkingamiðstöðvar þróunarsamvinnu frá því Malaví tók fyrst þátt sem samstarfsríki. Landgræðsluskólinn er hýstur í Landbúnaðarháskóla Íslands gegnir mikilvægu hlutverki í þróunarsamvinnu Íslands á eflingu sérþekkingar á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar. 

Í tilefni heimsóknar forstöðumanns Landgræðsluskóla GRÓ, Guðrúnar Guðjónsdóttur, og Gunnhildar Guðbrandsdóttur, verkefnastjóra, til Malaví bauð sendiráðið útskrifuðum nemendum Landgræðsluskólans þar í landi í viðburð til þess að styrkja tengsl milli fyrrum nemenda og gefa þeim tækifæri til að deila reynslu sinni á náminu.

 

Fyrr í vikunni hélt fjármála- og efnahagsráðuneyti Malaví, sem einnig fer með það hlutverk að stuðla að aukinni dreifstýringu, fund ásamt samstarfsaðilum í þróunarsamvinnu. Erla Hlín Hjálmarsdóttir, aðstoðarmaður forstöðumanns sendiráðsins sótti fundinn og lagði m.a. áherslu í ávarpi sínu á mikilvægi dreifstýringar sem tæki til að stuðla að aukinni efnahagslegri uppbyggingu. Einnig lagði hún áherslu á náið og gott samstarf milli Íslands og Malaví í þróunarsamvinnu.

 

Starfsfólk sendiráðsins fóru einnig í vettvangsferð í vikunni til að skoða uppbyggingu tveggja miðstöðva fyrir fórnalömb heimilisofbeldis, en uppbygging miðstöðvanna er hluti af samstarfsverkefni Íslands og Malaví. 

 

 

Madríd

Sendiherra stóð fyrir móttöku í embættisbústaðnum í vikunni fyrir fulltrúa íslenskra og spænskra fyrirtækja í ferðamannageiranum í tengslum við Fitur ferðamannaráðstefnunnar í Madríd. Í ræðu sinni lagði sendiherra áherslu á mikilvægi samstarfs milli Íslands og Spánar í ferðamennsku. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Sendiherra og eiginmaður hans, Davíð Samúelsson, mættu í árlega móttöku Felipe IV, Spánarkonungs, í konungshöllinni í Madríd fyrir sendiherrafrá 128 ríkjum. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nuuk

Menningarnótt Nuuk átti sér stað laugardaginn sl. og í stóð Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk fyrir opnun sýningarinnar The Marble Effect of Glacier Clay from Iceland and Greenland" eftir íslensku listakonurnar Antoníu Bergþórsdóttur og Írisi Maríu Leifsdóttur. í húsnæði ræðisskrifstofunnar. 

Nýja Delí

India Energy Week 2026 átti sér stað í vikunni og í tilefni ráðstefnunnar stóð sendiráð Íslands fyrir málþinginu India-Iceland Cooperation in the Energy Sector  eða Samstarf Indlands og Íslands í orkumálum. Shri Hardeep Singh Puri, gas og olíumálaráðherra Indlands, var með opnunarávarp á viðburðinum. Sendinefnd íslenskra fyrirtækja tók þátt í viðburðinum.

Benedikt Höskuldsson, sendiherra, fjallaði um tækifæri til aukins samstarfs milli Íslands og Indlands í sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda.

 

Sendiherra óskaði Indverjum til hamingju með 77. lýðveldisdag Indlands á Instagram og Facebook í vikunni. 

 

 

Ottawa

Sendiráð allra Norðurlanda héldu í sameiningu málþing um norðurslóðarmál í samstarfi við Global Affairs Canada, Háskólans í Ottawa og Norrænu ráðherranefndina. Utanríkisráðherra Kanada, Anita Anand, hélt ávarp á viðburðinum ásamt fjölda annarra fulltrúa kanadískra héraðsstjórna, stofnana, samtaka Ínúíta, og kanadíska utanríkisráðuneytisins. 

 

 

Tokýó

Nú er loksins hægt að fá íslenskt vatn í Japan! 

 

 

Varsjá

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Varsjá, tók þátt í árlegri minningarathöfn í Auschwitz-Birkenau til heiðurs fórnarlamba helfararinnar þann 27. janúar. 

 


 

Þórshöfn

Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins var haldin í Þórshöfn í vikunni en hana sótti sendinefnd íslenskra þingmanna og sérfræðinga. 

 Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins 2026

 

Meira verður það ekki í bili, 

Upplýsingadeild.