06 febrúar 2026
/
Föstudagspóstur 6. febrúar 2026
Heil og sæl.
Ný stefna í varnar- og öryggismálum var samþykkt einróma á Alþingi á þriðjudaginn. Þingsályktun utanríkisráðherra er byggð á skýrslu þverpólitísks stýrihóps sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, skipaði í fyrra og var kynnt í september.
Á þriðjudag átti ráðherra einnig fund með sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, Oleksiy Havrysh, sem sótti Ísland heim í vinnuferð en hann er með aðsetur í Osló.
Ráðherra flutti opnunarávarp á viðburði á Akureyri á vegum GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu um starfsemi og markmið Sjávarútvegsskóla GRÓ. Viðburðurinn Frá þekkingu til áhrifa: mannauðsuppbygging til sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi fór fram í Háskólanum á Akureyri á miðvikudag og var haldinn í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. í tilefni viðburðarins var einnig birt grein eftir ráðherra í Vísi um árangursríkt starf sjávarútvegsskólans.
Í gær, flutti ráðherra einnig opnunarávarp á morgunverðarfundi Keystrike og Íslandsstofu í tilefni UT-messunnar, en það er árleg ráðstefna um tölvu- og tæknimál.
Einnig átti ráðherra símafund í gær með utanríkisráðherra Tyrklands, Hakan Fidan, þar sem ráðherrarnir ræddu sameiginleg hagsmunamál sem og vaxandi tvíhliða samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu. Á fundinum greindi Hakan Fidan frá áformum tyrkneskra stjórnvalda um að koma á fót sendiráði hér á Íslandi síðar á þessu ári.
Gaman er að segja frá því að ráðherra verður í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV í kvöld kl. 20.00 ásamt öðrum góðum gestum.
Undanúrslitaleikur Evrópumóts karla í handknattleik
Karlalandslið Íslands og Danmerkur í handbolta mættust á föstudaginn síðastliðinn og skiljanlega var rafmagnað andrúmsloft í sendiráðum okkar í Berlín og Kampala þar sem Íslendingar og Danir deila skrifstofuhúsnæði.
Hér má sjá sendiherra okkar í Berlín, Auðunn Atlason, og Thomas Østrup Møller, sendiherra Dana. Og nú er spurt - hvor sigraði í Berlín?
View this post on Instagram
A post shared by Dänische Botschaft in 🇩🇪 (@daenische_botschaft)
Af myndinni að dæma virðist hafa verið stuð í Kampala þegar starfsfólk sendiráðanna tveggja komu saman fyrir leikinn.
Brussel
Stefán Haukur Jóhannesson afhenti í gær, 5. febrúar, Guillaume, stórhertoga Lúxemborgar, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Lúxemborg með aðsetur í Brussel við hátíðlega athöfn. Fyrir 20 árum afhendi Stefán Haukur trúnaðarbréf sitt föður Guillaume, Henri, fyrrum stórhertoga, trúnaðarbréf sitt á sama stað.
Sendiherrahjónin, Stefán Haukur og Halldóra Hermannsdóttir, buðu til myndlistasýningu í embættisbústaðnum í Brussel í lok síðustu viku. Til sýnis voru verk eftir Þóru Sigurðardóttur en í sýningunni Tímateikningar vinnur listakonan með teikningu og rými, hversdagslegt efni og endurtekningu. Einnig eru til sýnis verk eftir Sigurð Atla Sigurðsson, olíumálverk eftir Kjarval, skúlptúr eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur, ásamt myndbandsverki eftir Fritz Hendrik Berndsen.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Anna Jóhannsdóttir, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, flutti ávarp fyrir hönd Íslands á stjórnarfundi Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) þar sem hún áréttaði mikilvægi stofnunarinnar og stuðning íslenskra stjórnvalda við störf Mannfjöldasjóðsins, en stofnunin siinnir mikilvægri vinnu í þágu kynjajafnréttis víða um heim.
🇮🇸 PR @annajohannsd delivered a statement at the @UNFPA Executive Board meeting today, acknowledging the life-saving services provided by UNFPA & the importance of its normative role. Both are central to promoting gender equality & achieving the SDGs.
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 4, 2026
📄 https://t.co/VtLXg3Ihvh pic.twitter.com/DH3w00GYpd
Freetown
Sendiráð Íslands í Síerra Leóne tók þátt í athöfn í dag í tilefni af alþjóðlegum degi um afnám kynfæralimlestinga kvenna og stúlkna. Forstöðumaður sendiráðsins okkar, Ásdís Bjarnadóttir, hélt erindi af þessu tilefni þar sem hún áréttaði grunngildi utanríkisstefnu og þróunarsamvinnu Íslands um mannréttindi og jafnrétti kynjanna.
Iceland is proud to support nationally led efforts in partnership with @UNFPASierraleon to accelerate efforts towards ending FGM through prevention, survivor-centered services, data and evidence, and initiatives that empower adolescent girls and engage men and boys. (2/2) #EndFGM pic.twitter.com/jl9DmeL4fy
— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) February 6, 2026
Genf
Á föstudaginn sl. lauk 51. lotu allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna (UPR). Ísland tók þátt í öllum úttektum lotunnar og lagði fram tilmæli um kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi, kynjajafnrétti, réttindi hinsegin fólks, afnám dauðarefsinga, og að kynbundið og kynferðislegt ofbeldi verði gert refsivert í samræmi við alþjóðlega staðla.
Helsinki
Sendiráðið okkar tók viðtöl við listafólkið sem stendur fyrir sýningunni What the Fjord Keeps í Gallerie Käytävä sem er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki.
Kampala
Gleðin var í fyrirrúmi þegar fulltrúar Íslands í Kampala og utanríkisráðuneytis heimsóttu Kikuube-hérað í vesturhluta Úganda í vikunni. Þar sem aðgangur að leikskólum í Úganda er takmarkaður, þá sérstaklega í héröðum líkt og Kikuube, var Leikskóli á hjólum stofnað sem liður í samstarfsverkefni Íslands og UNICEF um stuðning við mæður á unglingsaldri og börn þeirra. Verkefnið er afar vel heppnað og því var ákveðið undir lok nýðliðins árs að framlengja verkefnið til fjögurra ára.
Hægt er að horfa á Youtube myndband um leikskólann á hjólum hér fyrir neðan.
Kaupmannahöfn
Anita anand, utanríkisráðherra Kanada, ræddi utanríkis- og norðurslóðastefnu Kanada á kynningarfundi í Kaupmannahöfn í gær í tengslum við opnun aðalræðisskrifstofu Kanada í Nuuk. Gaman er að segja frá því að ný skrifstofa Kanada í Nuuk verður hýst í húsnæði aðalræðisskrifstofu Íslands, en Ísland og Kanada skrifuðu undir samkomulag þess efnis í fyrra. Sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, ræddi við Anita Anand á viðburðinum um samstarf Íslands og Kanda og um málefni Grænlands.
Morten Dahlin, ráðherra Danmerkur sem fer með málefni sem tengjast samstarfi Norðurlanda, hélt kynningarfund fyrir norræna sendiherra í Kaupmannahöfn í gær. Á fundinum tilkynnti ráðherrann og fulltrúi Færeyja, Gunnar Holm-Jacobsen, helstu áherslur í sameiginlegu forsæti Danmerkur og Færeyja í Norræna ráðherraráðinu.
Lilongwe
Sendiráðið okkar í Malaví fjallaði um framgang ýmissa samstarfsverkefna í þróunarsamvinnu Íslands í landinu m.a. uppbyggingu og endurnýjun tveggja heilsugæslustöðva í Nkhotakota héraði sem munu, samanlagt, veita 15 þúsund manns aðgang að bættri heilbrigðisþjónustu.
Madríd
Sendiherra okkar á Spáni, Kristján Andri Stefánsson, ræddi NATO og málefni Íslands og norðurslóða í útvarpsviðtali Radio5 í vikunni - enda sleipur í spænskunni!
View this post on Instagram
A post shared by Cinco continentes 🗺️ (@cincocontinentesrne)
Nýja Delí
Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands í Nýju Delí, var viðstaddur undirritunar samstarfsyfirlýsingar í gær milli fylkisstjórnar Himachal Pradesh fylkis og íslenska jarðhitafyrirtækisins Geotropy vegna jarðhitauppbyggingar í fylkinu.
Nemendur Raisina House Foreign Policy Winter School heimsóttu sendiráðið í vikunni og ræddu við sendiherra um ýmis málefni t.a m. öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, samstarf Íslands og Indlands og aukin viðskiptatækifæri milli ríkjanna.
Ottawa
Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra okkar í Kanada, tók þátt í stórum sendiherrafundi sem skipulagður var af Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, á mánudaginn. Þar ræddi ráðherra við sendiherrana um ýmsar áskoranir sem steðja að Kanada sem og tækifæri til að efla samstarf milli Kanada og annarra ríkja.
Sendiherrar Norðurlanda funduðu einnig sameiginlega með formanni utanríkismálanefndar kanadíska þingsins í vikunni.
Osló
Sendiráðið stóð fyrir viðburði fyrir norsk og íslensk fyrirtæki í samstarfi við Icelandair og Norsk-íslenska viðskiptaráðsins í embættisbústaðnum í Osló. Markmið viðburðarins var að kynna Ísland fyrir norskum fyrirtækjums sem einstakan áfangastað sem er tilvalinn fyrir alþjóðlegar ráðstefnur, viðburði og fundi.
Hafliði Halldórsson, frá Íslensku lambakjöti, bauð - að sjálfsögðu! - gestum upp á gómsætt íslenskt lambakjöt.
Varsjá
Fyrsti ársfundur Uppbyggingarsjóðs EES og Noregs vegna verkefna í Póllandi átti sér stað í vikunni. Eftir ársfundinn voru fimm af átta verkefnasamningum undirritaðir, sem er gleðiefni.
Meira verður það ekki í bili,
Upplýsingadeild.