13 febrúar 2026
/
Föstudagspóstur 13. febrúar 2026
Heil og sæl.
Árlega öryggisráðstefnan í München hefst í dag í 62. skiptið og stendur fram á sunnudag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækir ráðstefnuna ásamt fylgdarliði frá utanríkisráðuneytinu og sendiráði Íslands í Berlín. Þar mun ráðherra taka þátt í ýmsum tvíhliða fundum sem og flytja opnunarávarp á hringborði um öryggismál á norðurslóðum.
Í gær, fimmtudag, fór fram varnarmálaráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Fæling og varnir Atlantshafsbandalagsins, Atlantshafstengslin, öryggismál á norðurslóðum, aukin framlög til varnarmála og áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru mál í brennidepli á fundinum. Þar að auki var fundað í hópi ríkja sem styðja við varnarbaráttu Úkraínu (UDCG). Þar greindi utanríkisráðherra frá áframhaldandi varnartengdum stuðningi Íslands við Úkraínu.
View this post on Instagram
Þriðjudaginn sl. skrifaði ráðherra undir samning við UNESCO sem framlengir stöðu GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu sem svokölluð Category 2 stofnun, þ.e. stofnun sem starfar undir merkjum UNESCO. GRÓ var komið á fót árið 2020 og var fyrsti samningurinn til sex ára. Í nýjum samningi er staðan endurnýjuð til árra ára, eða allt fram til ársins 2034.
Á þriðjudaginn flutti ráðherra einnig opnunarávarp á málþingi um einföldun Evrópuregluverksins, áhrif hennar á EES-samninginn, íslenskt atvinnulíf og eftirlit ESA með Evrópuregluverkum. Málþingið var haldið í samstarfi við Íslensk-evrópska verslunarráðið, Félag atvinnurekenda, sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA).
Á mánudaginn tók ráðherra þátt í netviðburði um utanríkisstefnu Íslands, Athlantshafstengslin og þróun alþjóðamála á vegum sendiráða Íslands í Washington D.C. og Ottowa og Íslandsstofu. Yfir 150 gestir frá viðskiptaráðum Íslands og Bandaríkjanna, annars vegar, og Kanada, hins vegar. Ráðherra flutti ávarp og svaraði spurningum áhugasamra gesta.
Á mánudaginn fundaði ráðherra einnig með Amy Pope, yfirmanni Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM), sem er stofnun Sameinuðu þjóðanna. Pope var stödd hér á landi í boði dómsmálaráðherra, hverrar ráðuneyti sinnir faglegu samstarfi við stofnunina.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Á framkvæmdastjórnarfundi UNICEF flutti Ísland ræðu um afstöðu norrænu ríkjanna varðandi UN80 og sameiginlega ræðu ríkjanna í stjórnarnefnd UNICEF, sem Ísland situr í.
Iceland is honoured to serve in the role of Vice-President on @UNICEF_Board for WEOG, and appreciates the excellent cooperation with @UNICEF & member states during this session 🇺🇳
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 13, 2026
🇮🇸PR delivered the following statement on behalf of the Bureau 🇪🇪🇪🇷🇩🇴🇮🇸🇴🇲 ➡️https://t.co/BfldRXBCIV pic.twitter.com/MAdkx67MCR
At the #UN80 segment during the @UNICEF_Board, Iceland delivered a statement on behalf of the #Nordics 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 12, 2026
Emphasizing that reform must enable @UN to act as one coherent system with clearer leadership, fewer overlaps & stronger collective results
➡️ https://t.co/sIgRGRb2G3 pic.twitter.com/rDvZPPveBO
Genf, fastanefnd Íslands gagnvart Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf
Ísland flutti ávarp fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkja um hið hrikalega mannúðarástand sem nú ríkir í Súdan með sérstaka áherslu á El Fasher.
Today at the @UN_HRC, Iceland delivered a statement on behalf of the Nordic-Baltic States on the severe human rights and humanitarian situation in Sudan, with a focus on El Fasher. Full statement 👇 https://t.co/pcFxqrLfUN pic.twitter.com/wc4yAwG6tB
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) February 9, 2026
Sudan faces one of the world’s most severe humanitarian crises. Today, @UN_HRC, 🇮🇸 on behalf of Nordics & Baltics, underlined need for accountability & unhindered access to El Fasher & other areas. Breaking the cycle of violence & impunity is vital to prevent further catastrophe.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) February 9, 2026
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Helsinki, sótti höfuðborg Lettlands heim í vikunni og ræddi m.a. við Edgars Rinkēvičs, forseta Lettlands.
Sendiherra fór einnig í vinnuferð til Vilnius, höfuðborgar Litháens, þar sem hann opnaði sýningu í tilefni 35 ára sjálfstæðisafmælis Litháens. Sýningin varpar ljósi á lykilhlutverk Íslands í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna, en Ísland var fyrsta landið til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra.
Svo er gaman að segja frá því að sýningin Ripples: Shifting Realities in the Arctic var formlega opnuð í Norræna húsinu í Reykjavík í síðustu viku. Sýningin er framhald af Arctic Blue sem var sýning sem fyrst var opnuð í Gallerie Käytävä sem er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki. Sýningarstjóri er Ásthildur Jónsdóttir. Áhugasamir í Reykjavík geta því sótt sýninguna í Norræna húsinu en hún stendur til 26. apríl 2026.
Kaupmannahöfn
Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, flutti opnunarávarp á opnun sýningar Egils Sæbjörnssonar, MY FRIEND THE ART, laugardaginn sl. á Norðurbryggju. Þetta er fyrsta einkasýning Egils og fyllir hún bæði sýningarrými hússins. Fjöldi gesta lagði leið sína á opnunina.
Í dag opnar sýningin Emerging Moments eftir íslensku listakonurnar Elísabetu Olku og Ingunni Fjólu Ingþórsdóttir í Davis Gallery. Sendiherra mun flytja þar opnunarávarp.
Lilongwe
Sendiráðið okkar í Malaví stóð fyrir opnunarviðburði á nýju þróunarsamvinnuverkefni sem leggur áherslu á nútímavæðingu nauðsynlegs tækjabúnaðar fyrir veðurathugunarstöðvar og viðvörunarkerfi í ýmsum héröðum Malaví. Verkefninu er ætlað að vernda líf fólks með eflingu viðvörunarkerfa svo íbúar, og þá sérstaklega bændur og fjölskyldur þeirra, geti búið við meira öryggi. Núverandi tækjabúnaður veldur því að einungis 60% veðurspáa í Malaví reynast réttar. Markmiðið er að nútímavæðing geri spálíkön nákvæmari. Veðurstofa Íslands og Veðurstofa Noregs taka þátt í verkefninu sem sérstakir ráðgjafar. Verkefnið er samstarfsverkefni á vegum UNDP í Malaví.
Sendiráð Íslands tók einnig þátt í vettvangsferð fyrir alþjóðlega samstarfsaðila Malaví í þróunarsamvinnu sem skipulögð var af World Food Programme Malaví, en á þessi tími árs er skilgreindur sem "lean season" eða "magurt tímabil" þar sem matarbirgðir eru litlar og enn langt í næstu uppskerur. Sendiráðið, auk annarra samstarfsaðila Malaví í þróunarsamvinnu, gáfu birgðir af maís og öðrum næringarríkum mat sem World Food Programme kemur til með að dreifa til fjölskyldnaum landið.
Ottawa
Sunnudaginn sl. stóð sendiráðið okkar í Kanada fyrir sameiginlegum norrænum viðburði í samstarfi við sendiráð annarra Norðurlanda í tengslum við Vetrarhátíð landsstjóra Kanada sem haldin er í Rideau Hall, landsstjórahöll Kanada. Í norræna "þorpinu" á vetrarhátíðinni gafst gestum tækifæri að kynnast íslenska hestinum, hlusta á norrænt tónlistafólk t.a m. hina íslensku og kanadísku Lindy Vopnfjörð.
Stokkhólmur
Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Svíþjóð, stóð fyrir móttöku í embættisbústaðnum í samstarfi við Íslandsstofu fyrir fulltrúa íslenskra fyrirtækja og íslenska frumkvöðla sem staddir voru í borginni vegna Tech Arena 2026 ráðstefnunnar. Þetta er í fyrsta skiptið sem sameiginleg íslensk sendinefnd frumkvöðla og fyrirtækja í tæknigeiranum tekur þátt í ráðstefnunni.
Meira verður það ekki í bili,
Upplýsingadeild.