20 febrúar 2026
/
Föstudagspóstur 20. febrúar 2026
Heil og sæl.
Líkt og greint var frá í síðasta Föstudagspósti þá sótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, öryggisráðstefnuna í München sem átti sér stað síðustu helgi. Samskipti Evrópu og Bandaríkjanna voru í brennidepli á ráðstefnunni, líkt og í fyrra, en einnig öryggismál á norðurslóðum, allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu og fleira.
Ráðherra tók þátt í nokkrum hringborðsumræðum, t.d. um konur, frið og öryggi, um öryggismál á norðurslóðarmálum og öryggismál á hafi. Hún sótti fjölmarga fundi t.a m. fund varnarmálaráðherra JEF-ríkjanna, svokölluðu, sem og fund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) með utanríkisráðherra Úkraínu. Einnig áttu sér stað fjöldi tvíhliðafunda með ráðherrum og framkvæmdastjóra ESB.
Nánari upplýsingar um þátttöku ráðherra í öryggisráðstefnunni, viðburði og tvíhliða fundi með þátttöku ráðherra í frétt utanríkisráðuneytisins frá 15. febrúar 2026.
View this post on Instagram
A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)
Eftir öryggisráðstefnuna hélt ráðherra áleiðis í opinbera vinnuheimsókn til Japans sem lauk í dag með heimsókn til borgarinnar Nagasaki. Þar fundaði hún með borgarstjóra Nagasaki og lagði blóm á minnismerki um fórnarlömb kjarnorkuárásarinnar á borgina fyrir rúmum 80 árum og hitti eftirlifendur. Í gær fundaði hún með varnarmálaráðherra Japans, Shinjiro Koizumi, utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, og þjóðaröryggisráðgjafa japönsku ríkisstjórnarinnar. Þá fundaði ráðherra einnig Yoko Kamikawa, þingkonu og fyrrum utanríkisráðherra Japans, auk annarra. Ráðherra flutti enn fremur fyrirlestur í Tókýóháskóla og tók þátt í samtali við háskólanema.
Einnig var opnuð ný áritanamiðstöð í sendiráði Íslands í Tókýó fyrir skammtíma Schengen-áritanir til Íslands. áritanamiðstöðin hóf störf 1. febrúar síðastliðinn.
View this post on Instagram
A post shared by Japan Ministry of Defense/Self-Defense Forces (@modjapan_en)
#茂木外務大臣 は、#アイスランド のソルゲルズル・カトリン・グンナルスドッティル外務大臣と会談を行いました。 pic.twitter.com/DJUYjm9Rok
— 外務省 (@MofaJapan_jp) February 17, 2026
Berlín
Felleshus, sameiginleg sendiráðsbygging Norðurlanda í Berlín, iðaði af lífi á viðburði sem haldinn var fyrr í vikunni tengdum Nordic Film Music Days í Berlín.
Genf
Einar Gunnarsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart alþjóðastofnunum í Genf, átti samráðsfund með frjálsum félagasamtökum í Reykjavík í vikunni um setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025-2027. Ungmennafulltrúi Íslands á sviði mannréttinda, Þórhildur Davíðsdóttir Söebech, tók einnig þátt í fundinum og sagði frá reynslu sinni af þátttöku í starfi mannréttindaráðsins.
View this post on Instagram
A post shared by Permanent Mission and Embassy of Iceland in Geneva (@icelandingeneva)
Helsinki
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, fór í opinbera heimsókn til Finnlands í síðustu viku í boði forseta finnska þingsins, Jussi Halla-Aho. Með forseta í för voru Sigríður Á Andersen, formaður þingflokks Miðflokksins, Dagur B. Eggertsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis, og Jörundur Kristjánsson, sviðsstjóri samskipta- og alþjóðasviðs Alþingis.
Sendiherra okkar í Finnlandi, Harald Aspelund, og sendiráðsteymið okkar tóku vel á móti föruneyti Alþingis og studdu við heimsóknina.
View this post on Instagram
A post shared by Permanent Mission and Embassy of Iceland in Geneva (@icelandingeneva)
Kaupmannahöfn
Það voru fleiri á ferðinni í vikunni. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, flutti ávarp á ferðamálaviðburði sem sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn stóð fyrir í samstarfi við Íslandsstofu. Viðburðurinn var haldinn fyrir íslenska og danska ferðaþjónustuaðila með það að markmiði að styrkja viðskiptatengsl milli landanna á sviði ferðaþjónustu. Sendiherra, Pétur Ásgeirsson, ávarpaði gesti ásamt Þorleifi Þór Jónssyni, viðskiptastjóra ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.
View this post on Instagram
A post shared by Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn / Islands Ambassade i København (@icelandindk)
Svo heimsóttu fulltrúar frá Listskautadeild Skautafélags Reykjavíkur sendiráðið. Fulltrúarnir voru stödd í borginni til þess að taka þátt í Flyver Cup en tæplega 50 íslenskir iðkendur tóku þar þátt. Gaman að þau skulu hafa heimsótt sendiráðið.
Lilongwe
Pálína B. Matthíasdóttir, deildarstjóri yfir tvíhliða þróunarsamvinnu heimsótti Malaví vikunni til þess að taka þátt í verkefnaundirbúningi vegna samstarfs við þrjú ný héruð í Malaví, þ.e. Machinga, Balaka og Salima. Héraðsnálgun Íslands er máttarstólpi þróunarsamvinnu Íslands og Malaví og myndi útvíkkun hennar til þriggja nýrra héraða marka upphaf nýs kafla í samstarfinu. Einnig var ferðin nýtt til eftirlits með samstarfsverkefnum Íslands og Matvælastofnunar SÞ og Barnahjálpar SÞ á sviði neyðaraðstoðar. Neyðarástandi var lýst yfir í Malaví í nóvember sl. vegna fæðuóöryggis og veitir verkefni Barnahjálparinnar 42 þúsund börnum í héruðunum Neno og Mwanza næringaríkar máltíðir og heilbrigðisstuðning.
Sendiráðið stóð einnig fyrir fundi með fulltrúum stjórnvalda í Malaví um ýmis þróunarsamvinnuverkefni milli Íslands og Malaví t.a m. Basic Services Programme.
Madríd
Sendiherra Íslands í Madríd, Kristján Andri Stefánsson, heimsótti höfuðstöðvar Samtaka Atvinnurekenda í Madríd La Confederación de Empresarios de Madrid í lok síðustu viku.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Sendiherra sótti einnig útgáfuhóf skálsögunnar Islandia eftir höfundinn Manuel Vilas.
New York - Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum
Ísland skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu 85 ríkja sem kallar eftir afnámi hernáms Ísraels á Vesturbakkanum, tveggja ríkja lausninni, og að virðing sé borin fyrir alþjóðalögum.
#Iceland joined this statement, calling for an end to Israel's occupation, respect for international law and the implementation of the Two-State Solution, where democratic, independent and sovereign #Israel and #Palestine live side by side in peace 🕊 https://t.co/QzTkbR9Ee4 pic.twitter.com/if0lWCOxgX
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 17, 2026
Nýja Delí
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, var staddur í Indlandi í vikunni þar sem hann tók þátt í alþjóðlegu gervigreindarráðstefnunni AI Impact Summit sem haldin var í Nýju Deli.
View this post on Instagram
A post shared by Embassy of Iceland - New Delhi (@icelandinindia)
Oslo
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fundaði með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í Osló í vikunni þar sem þau ræddu m.a. öryggismál á norðurslóðum, EES-samstarfið, öryggi og samvinnu í Evrópu, stuðning við Úkraínu og ástandið í Miðausturlöndum.
Stokkhólmur
Í gær tók sendiráðið okkar í Stokkhólmi á móti Félagi íslenskra kvenna í sænsku atvinnulífi (FÍKA) sem hélt sinn fyrsta fund ársins í sendiráðinu. FÍKA er vettvangur fyrir íslenskar konur sem starfa á sænskum vinnumarkaði og vilja efla tengsl, deila reynslu og styðja hver aðra í starfi.
París
Nordic Visions kvikmyndahátíðin er nú í fullum gangi í París en sendiráðið okkar þar er meðal styrktaraðila hátíðarinnar ásamt öðrum Norrænum sendiráðum.
Sendiherra mætti einnig á áhugaverðan fyrirlestur í síðustu viku eftir François-Xavier Dillmann, prófessor, þar sem hann fjallaði um rannsókn sína á fyrstu tilraun Norðmanna að leggja Ísland undir sig á söguöld.
Varsjá
Gaman er að segja frá því að opnað hefur verið fyrir umsóknir um samstarfsstyrki Uppbyggingarsjóð EES fyrir pólskar menningarstofnanir og listafólk. En markmið styrkjanna er að skapa samstarfstækifæri milli aðila og stofnana frá Póllandi, Noregi, Íslandi og Liechtenstein.
Róm
Ársfundur Alþjóðaþróunarsjóðs landbúnaðarins (IFAD) var haldinn dagana 9-12 febrúar sl. Ísland hefur átt aðild að IFAD frá árinu 2001. Nú er unnið að endurnýjun samstarfs Íslands og IFAD þar sem lögð eru drög að því að stofnunin geti fengið til liðs við sig sérfræðinga frá Íslandi hvort sem er á sviði landbúnaðar, jarðræktar eða sjávarútvegs. Ennfremur hefur verið afráðið að Ísland styðji stofnunina sérstaklega til verkefna á sviði jafnréttismála, þar sem sérstaklega verði horft til valdeflingar stúlkna og kvenna í fæðukerfum. Í því sambandi verður kannað hvort færi sé á því að tengja skóla GRÓ við starfsemi IFAD á vettvangi. IFAD hefur ekki, fremur en aðrar stofnanir sem sinna marghliða þróunaraðstoð farið varhluta af því að framlögin hafa snarlega lækkað. Nú fer í hönd undirbúningur á því að auka stofnfé sjóðsins á 14. fjárhagstímabili hans frá stofnun, IFAD 14, sem tekur til áranna 2028-2030.
Guðmundur Árnason, sendiherra og fastafulltrúi, sótti ársfundinn fyrir Íslands hönd.
Meira verður það ekki bili,
Upplýsingadeild.