27 febrúar 2026

/

Föstudagspóstur 27. febrúar 2026

Heil og sæl. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á mánudaginn 23. febrúar, en árleg ráðherravika mannréttindaráðsins stóð í vikunni. Í ávarpi sínu kom ráðherra á framfæri áhyggjum sínum af stöðu mannréttindamála á heimsvísu. 

Ráðherravikan markar upphaf 61. fundarlotu mannréttindaráðsins en Ísland tók sæti í ráðinu í upphafi árs 2025 og situr til loka árs 2027. Ráðherra átti einnig tvíhliða fund með Volker Türk, mannréttindaráðherra sameinuðu þjóðanna, 

 

 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 

Fjögur ár síðan allsherjarrinnrás Rússlands í Úkraínu hófst, 24. febrúar 2026. 

Á þriðjudag, 24. febrúar, flutti ráðherra ávarp á sérstökum hliðarviðburði í mannréttindaráðinu þar sem þess var minnst að fjögur ár eru frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráðinu í Genf stóð fyrir viðburðinum í samstarfi við fastanefndir Noregs og Úkraínu. Á viðburðinum flutti Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, einngi opnunarávarp. 

Ráðherra átti nokkra tvíhliða fundi t.a m. með Varsen Aghabekian, utanríkisráðherra Palestínu, sem og með nýjum flóttamannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Barham Salih.

Til þess að sýna úkraínsku þjóðinni samstöðu deildi utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur okkar samfélagsmiðlaefni um stuðning Íslands við Úktraínu. Úkraínska fánanum var flaggað við utanríkisráðuneytið og, þar að auki, voru Stjórnarráðshúsið, Harpa og ráðhús Reykjavíkurborgar lýst upp í fánalitum Úkraínu.

Af þessu tilefni var einnig birt grein eftir ráðherra birt í Vísi sem ber titilinn Að standa með Úkraínu er að standa með okkur sjálfum

Þar að auki flutti ráðherra fjarávarp á sérstökum fundi fastaráðs Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu sem haldinn var í Vínarborg þann 24. febrúar. Ráðherra ítrekaði þar stuðning Íslands við Úkraínu.

 

 

 

 

 

 

Í gær, fimmtudaginn 26. febrúar, bauð ráðherra upp á opið samtal á Egilsstöðum um utanríkisþjónustuna og hvernig hún þjónar hagsmunum Íslands, bæði heima og erlendis. Um er að ræða ferðaröð ráðherra um landið en áætlunin er að færa samtalið um utanríkismál nær almenningi og gera grein fyrir því hvernig utanríkisþjónustan beitir sér daglega á alþjóðavettvangi í þágu heimila, neytenda og fyrirtækja um land allt. 

 

Í dag fundaði ráðherra með Diene Keita, framkvæmdastjóra Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), en hún er stödd á Íslandi í vinnuferð. 

Berlín

Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Berlín, heimsótti landbúnaðarráðuneyti Þýskalands, sem einnig fer með sjávarútvegsmál, í gær og fundaði þar með Silvia Breher, aðstoðarráðherra. 

 

 

Þann 24. febrúar var viðburður haldinn við Brandenburgarhliðið í Berlín til þess að sýna úkraínsku þjóðinni samstöðu á deginum sem markaði fjögur ár af innrásarstríði Rússlands í Úkraínu. Meðal ræðumanna voru m.a. borgarstjóri Berlínar, þingmenn Bundestag, úkraínskir hermenn og sendiherra Úkraínu í Berlín. Þegar hann tók til máls fylktu sendiherrar Evrópuríkja liði honum að baki og var sendiherra Íslands þar á meðal. 

 

 

Freetown

Föstudaginn s.l. stóðu UN Women í Síerra Leone og Sendiráð Íslands í Freetown fyrir opnunarviðburði á þriggja ára samstarfsverkefni um eflingu samfélaga með jafnrétti kynjanna að leiðarljósi í opinberri stefnumótun. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við sveitarstjórnarráðuneyti Síerra Leone og jafnréttis- og barnamálaráðuneytis Síerra Leone. 

Verkefnið felst einkum í að veita stuðning til eflingu getu héraðsyfirvalda til að bæta þjónusta sína svo hún mæti betur þörfum kvenna, ungs fólks og stúlkna, þá sérstaklega jaðarsettustu hópanna.

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðukona sendiráðsins, flutti opnunarávarp.

 

 

Helsinki

Sendiráð okkar í Helsinki vekur athygli á því að íslenskir aðilar geta sótt um styrki til margvíslegra íslensk-finnskra samstarfsverkefna á sviði lista og menningar, rannsókna og nýsköpunar, félagsfræða o.fl. á vegum Kulturfonden Island-Finland. 

Umsóknarfestur rennur út þann 31. mars 2026. Áhugasamir geta kynnt sér styrkinn hér

 

 

Kaupmannahöfn

Í dag hefst kvikmyndahátíðin Nordatlantiske Filmdage haldin á Norðurbryggju og stendur yfir til 9. mars. Sýndar verða kvikmyndir frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Samalandi. Gaman er að segja frá því að sjö íslenskar kvikmyndir verða sýndar!

Sendiráð Íslands er styrktaraðili hátíðarinnar ásamt sendiskrifstofum Grænlands, Færeyja auk fjölda annarra samstarfsaðila. 

 

 

Lilongwe

Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe, var viðstaddur undirritunar viljayfirlýsingar milli Rephaiah Pharma og Háskólans í Malaví ásamt fulltrúum iðnaðar-, viðskipta-, og túristaráðuneytis Malaví í vikunni. Um er að ræða samstarfsverkefni sem utanríkisráðuneytið tekur þátt í sem miðar að því að efla lyfja- og heilbrigðisgeirann í Malaví. 

 

Þann 24. febrúar tók starfsfólk sendiráðsins þátt í samstöðuviðburði með Úkraínu ásamt sendinefnd Evrópusambandsins í Malaví og sendiráðum Noregs, Írlands og Þýskalands. 

 

 

London

Sendiráð Íslands í London tóku einnig þátt í samstöðuviðburði með Úkraínu þann 24. febrúar. Sturla Sigurjónsson, sendiherra, tók til máls ásamt sendiherrum annarra þjóða og lagði áherslu á samstöðu Íslands með úkraínsku þjóðinni. 

 

Sendiherra tók á móti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stofnanda og stjórnarformanni árlegs Heimsþings kvenleiðtoga í Reykjavík (Reykjavík Global Forum), í embættisbústaðnum þar sem hún kynnti íslensk jafnréttismál og Heimsþingið fyrir konum í leiðandi stöðum í bresku atvinnulífi. 

 

Sendiráðið og utanríkisráðuneytið vekja athygli á því að nú þurfa allir Íslendingar, sem ekki hafa dvalarleyfi í Bretlandi, að hafa fengið rafrænt ferðaleyfi (ETA) áður en ferðalag hefst óháð því hvort lokaáfangastaður sé Bretland eða um millilendingu sé að ræða. 

 

 

Madríd

Sendiherra Íslands í Madríd, Kristján Andri Stefánsson, tók þátt í samstöðuviðburði með Úkraínu í Madríd á þriðjudaginn ásamt öðrum sendiherrum. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Fastanefnd Íslands í New York

Ísland var meðflutningsaðili ályktunar Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þar sem innrás Rússlands í Úkraínu var fordæmd harðlega og þess var kallað eftir tafarlausu vopnahléi og að Rússland virði fullveldi, sjálfstæði og landamæri Úkraínu. Sem meðflytjandi greiddi Ísland að sjálfsögðu atkvæði með ályktuninni. Ísland undirritaði einnig sameiginlega yfirlýsingu 46 ríkja sem lýsti yfir samstöðu með Úkraínu. 

 

#Ukraine has endured 4 years of aggression and full-scale invasion by #Russia.
Today #Iceland co-sponsored & supported #UNGA resolution on "Lasting Peace in Ukraine" and was one of 4⃣6⃣ in joint statement with @UKRinUN.
We continue to #StandWithUkraine 💙💛 pic.twitter.com/mH0DIkaTaq

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 24, 2026

 

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhenti aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í New York í gær yfirlýsingu utanríkisráðherra Íslands sem felur í sér viðurkenningu íslenskra stjórnvalda á almennri lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag. 

Viðurkenning Íslands er liður í aukinni áherslu á þá réttarvernd sem alþjóðalög veita. 

 

Iceland 🇮🇸 has deposited at the UN 🇺🇳 a declaration recognizing the jurisdiction of the International Court of Justice @CIJ_ICJ Iceland remains unwavering in its support for the Court, the UN’s principle judicial organ @UN pic.twitter.com/TeplQDdAZ2

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) February 27, 2026

 

Ottawa

Sendiherra okkar í Kanada, Auðbjörg Halldórsdóttir, tók á móti Auði Övu Ólafsdóttur, rithöfundi, og fulltrúum kanadískra bókaútgefenda í embættisbústaðnum í lok síðustu viku. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við skipuleggjendur bókmenntahátíðarinnar Salon du Live de l'Outouais og bókaútgefendann Madrigall Canada með það að markmiði að styrkja tengsl kanadískra bókaútgefenda við sendiráðið og íslenska rithöfunda og kynna íslenskar bókmenntir fyrir Kanadabúum. 

 

 

Í vikunni fundaði sendiherra með þingforseta Kanada og öðrum fulltrúum þingsins ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda, en í næsta mánuði mun hópur kanadískra þingmanna fara í vinnuheimsóknir til Íslands og Noregs. Einnig tók sendiherra þátt í hringborði um öryggismál á vegum þingmannafélags NATO í Kanada.

 

 

Osló

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var í Noregi í síðustu viku og tók þátt í viðtali Aftenposten sem fór fram í embættisbústaðnum í Osló. Þeir sem eru sleipir í norsku geta lesið viðtalið hér.

París

Sendiherra okkar í París, María Mjöll Jónsdóttir, tók þátt í heimsókn sérfræðinga frá menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneyti Íslands til höfuðstöðva fyrirtækisins Mistral AI sem sérhæfir sig í gervigreinarlausnum sem tengjast tungumálum og þýðingartólum. Sérfræðingarnir voru staddir í París til þess að taka þátt í IASEAI 2026 ráðstefnunni. 

 

Great visit to Mistral AI's headquarters with experts from the Ministry of Culture, Innovation & Higher Education of Iceland 🇮🇸 who were in Paris for the #IASEAI26 conference at UNESCO. Thank you @MistralAI for the tour and interesting discussion on AI issues pic.twitter.com/rb0704iZOA

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) February 27, 2026

 

Sofiya Zahova forstöðukona Vigdísarstofnunar er stödd í UNESCO þessa vikuna á alþjóðlegum degi móðurmálsins og fundaði með Khaled El-Enany, framkvæmdastjóra. Þau undirrituðu nýlega samning um endurnýjun á stöðu Vigdísarstofnunar um að starfa áfram undir merkjum UNESCO næstu átta árin.

 

The Director of Vigdís International Centre Sofiya Zahova & Director-General Khaled El-Enany met to mark the renewal of the agreement for the centre as a UNESCO Category 2 Centre. Discussed cooperation, commitment to linguistic diversity & multilingualism https://t.co/6Kkvyyha3k pic.twitter.com/00Ey5PJhWO

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) February 20, 2026

 

Stokkhólmur

Sendiráðið okkar í Svíþjóð vekur athygli á því að umsóknarfrestur í sænsk-íslenska samstarfssjóðinn rennur út á morgun, 28. febrúar 2026. 

 

 

Róm

Sendiherra Íslands Guðmundur Árnason var heiðursgestur á saltfiskkeppni í Rimini. Um var að ræða samstarfsverkefni Baccalà Islandese og FIC (kokkasamtök Ítalíu) sem kynntu íslenskan saltfisk. Guðmundur er alinn upp við saltfiskverkun á Eskifirði og þekkir því vel til hefða og handverks á íslenskum saltfiski. Hann gat um það í stuttu ávarpi að það væru nú rétt um 100 ár liðin frá því að Íslendingar hófu að selja saltfisk til Ítalíu. Fyrsti ræðismaður Íslands á ítalíu var skipaður 1946, Hálfdán Bjarnason saltfiskkaupmaður í Genóa.

Sigurvegari keppninnar var Giovanni Mercante frá Vicenza og hlaut hann í verðlaun ferð til Íslands þar sem hann fær tækifæri til að heimsækja framleiðendur og kynnast íslenskri matarmenningu.

Alþjóðlegur sérfræðingafundur um fiskveiðistjórnun stóð yfir í Hörpu í vikunni þar sem 150 sérfræðingar frá 60 ríkjum komu saman ásamt fulltrúum alþjóðastofnana og annarra hagsmunaaðila. Ísland var gestgjafi fundarins. 

Fundurinn er formlegur vettvangur á vegum Sameinuðu þjóðanna og er hluti af starfi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun (FAO COFI), en Ísland gegnir formennsku í þessari undirnefnd til tveggja ára. 

Sendiráð Íslands í Róm er einnig fastanefnd gagnvart FAO.

 

Varsjá og Kænugarður

Sendiherra okkar í Póllandi, Friðrik Jónsson, sem einnig gegnir sendiherrastöðu gagnvart Úkraínu, var hluti af föruneyti Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, til Kænugarðs í tegnslum við samstöðuviðburðar og minningarathafnar þann 24. febrúar, en á þeim degi fyrir fjórum árum hófu Rússar innrásarstríð sitt í Úkraínu.

 

Forsætisráðherra fór einnig til Varsjár þar sem hún fundaði með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Sendiráð okkar í Varsjá var til halds og trausts. 

 

Vínarborg

Sendiherra Íslands í Vínarborg, Helga Hauksdóttir, tók þátt á sérstökum fundi fastaráðs Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Hofburg, Vínarborg þann 24. febrúar þegar fjögur ár voru liðin frá upphafi innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flutti fjarávarp á fundinum þar sem hún ítrekaði stuðning og aðstoð Íslands við Úkraínu. 

 

 

Washington D.C.

Tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta og stjórnmála var til umræðu á fundum sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, átti í Washington fyrri í þessari viku. Ráðuneytisstjóri fundaði m.a. með Matt Siordia, varaaðstoðarviðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, og Brendan Hanrahan, sem fer fyrir Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Ráðuneytisstjóri fundaði einnig með þingmönnum Bandaríkjaþings. 

 

 

Meira verður það ekki í bili, 

Upplýsingadeild.