06 mars 2026
/
Föstudagspóstur 6. mars 2026
Heil og sæl.
Vikan hefur sannarlega verið viðburðarík hjá ráðherra og starfsfólki utanríkisþjónustunnar. Hefjum yfirferðina á dagskrá Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra.
Fyrr í dag, 6. mars, samþykkti ríkisstjórn Íslands að leggja fyrir Alþingi tillögu að þingsályktunar varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í tillögunni er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram 28. ágúst nk.
Óformlegur utanríkisráðherrafundur Eystrasaltsráðsins fór fram í Varsjá á miðvikudag þar sem samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og staða mála í Mið-Austurlöndum voru efst á baugi. Ráðherra tók þátt í fundinum ásamt öðrum ráðherrum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Póllands og Þýskalands auk Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins.
Á mánudag fundaði ráðherra með þingforseta Kanada, Francis Scarpaleggia, sem var staddur á Íslandi ásamt hópi kanadískra þingmanna.
View this post on Instagram
Á föstudaginn s.l. fundaði ráðherra með Diene Keita, framkvæmdastjóra Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Á fundinum ræddu þær m.a. samstarf Íslands og UNFPA en sjóðurinn er mikilvægur samstarfsaðili Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.
Fréttir um átökin í Mið-Austurlöndum hafa líklega ekki farið fram hjá neinum en borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur unnið ötullega að því að koma öllum Íslendingum heim sem óskað hafa eftir aðstoð.
Alarmed by conflict underway in the Middle East. Iran’s authorities have shown enormous brutality against their own people & fueled regional & global insecurity. Iceland urges de-escalation, return to dialogue & diplomacy & respect for int’l law. Protecting civilians is paramount
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) February 28, 2026
Fastanefnd Íslands í Genf
Í vikunni fór vetrarlota mannréttindaráðsins á fullt skrið og tók fastanefndin þátt í fjölda samningaviðræðna en tæplega 40 ályktinar verða til umræðu í lotunni.
Fastafulltrúi Íslands gagnvart Mannréttindaráði sameinuðu þjóðanna í Genf, Einar Gunnarsson, flutti ávarp fyrir hönd Íslands þar sem mikilvægi fjölþjóðlegs samstarfs, mannréttindi og alþjóðalög voru áréttuð.
Today at @UN_HRC, Iceland underlined that as global conflicts and crises escalate and the respect for international law and institutions deteriorates, defending multilateralism and human rights is not optional - it is imperative.
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 2, 2026
👉🏼 https://t.co/TLj4kS5TUm#IcelandHRC #HRC61 pic.twitter.com/s9hJe4O17L
Í lok síðustu viku stóð fastanefndin fyrir umræðufundi um hina ömurlegu stöðu mannréttinda kvenna og stúlkna og versnandi stöðu mannréttinda almennt í Afganistan. Afganskar baráttukonur fyrir mannréttindum tóku þátt í fundinum ásamt sérstökum erindreka Sameinuðu þjóðanna í málefnum mannréttinda í Afganistan, Richard Bennett.
Iceland was honored to host a briefing with courageous Afghan women advocates & @SR_Afghanistan on systematic restrictions on the right to health & the collapse of human rights in #Afghanistan.
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) February 27, 2026
Afghan women’s voices must not only be heard - they must shape the int'l response. pic.twitter.com/EPOeyFNlpV
Í vikunni hafa Norðurlönd og Eystrasaltslönd verið með fjölda sameiginlegra ávarpa á vettvangi mannréttindaráðsins um t.a m. frið, öryggi, mannréttindi, lýðræði o.fl.
Berlín
Fjöldi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu taka nú þátt í alþjóðlegri ráðstefnunni ITB sem stendur nú yfir í Berlín. Auðunn Atlason, sendiherra, sótti ráðstefnuna og ræddi við fulltrúa fyrirtækja um viðskiptatækifæri á Íslandi.
Brussel
Í gær, fimmtudag, stóð sendiráð Íslands í Brussel fyrir norræna morgunverðarviðburðinum „Women in Mediation: Voice from Peace and Security" í samstarfi við sendiráð hinna Norðurlandanna. Viðburðurinn var haldinn í tengslum við Alþjóðlega baráttudag kvenna sem haldinn er hátíðlegur þann 8. mars ár hvert.
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Helsinki, er staddur í Tallin, Eistlandi, í dag ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda gagnvart Eistlandi til þess að sækja fund eistneskra stjórnvalda um upplýsingamál tengd varnar- og öryggismálum.
Sendiráðið stóð fyrir sameiginlegum kynningarviðburði með Icelandair fyrir fulltrúum finnskra fyrirtækja í ferðaþjónustu og fjölmiðlageiranum þar sem viðskiptatækifæri á Íslandi voru til umræðu.
Og svo má ekki gleyma að nefna að ný sýning hefur verið opnuð í Gallerie Käytävä, sem er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki. Sýningin „Land" er eftir íslensku listakonurnar Önnu Rún Tryggvadóttur, Hildi Hákonardóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur.
Kaupmannahöfn
Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, flutti ávarp um stöðu jafnréttismála á Íslandi á ráðstefnu UN Women um stöðu jafnréttismála sem haldin var í skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í dag.
Kvikmyndahátíðin Nordatlantiske Filmdage var opnuð á föstudaginn s.l. með sýningu íslensku myndarinnar „Jörðin undir fótum okkar" eftir Yrsa Roca Fannberg. Stefanía Kristín Bjarnadóttir, viðskipta- og menningarfulltrúi sendiráðsins, flutti opnunarerindi hátíðarinnar. Hátíðin stendur yfir til 9. mars.
Lilongwe
Líkt og vanalega var nóg um að vera í vikunni í tengslum við þróunarsamvinnuverkefni Íslands í Malaví. Svanhvít Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri á Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sótti Malaví heim og tók þátt í ýmsum vettvangsferðum tengdum þróunarsamvinnuverkefnum.
London
Árleg verðlaunaafhending fyrir besta fiskinn og franskar „National Fish and Chips Awards" fór fram í Bretlandi í vikunni. Tveir íslenskir veitingastaðir voru tilnefndir í alþjóðaflokki verðlaunanna og hlaut veitingastaðurinn „Fiskur og franskar Mývatn" verðlaunin. Fulltrúi sendiráðs Íslands í London sótti verðlaunaafhendinguna og óskaði vinningshöfum til hamingju. Gaman er að geta þess að Bretland er mikilvægur útflutningsmarkaður fyrir íslenskan fisk og nýtur íslenskur fiskur mikilla vinsælda meðal breskra neytenda.
Madríd
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætti landsliði Spánar í borginni Castellón á miðvikudaginn. Sendiherra lét sig að sjálfsögðu ekki vanta í stuðningslið Íslendinga á vellinum.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Nýja Delí
Vika íslensks sjávarfangs eða „Iceland Seafood Week" stendur nú yfir á veitingastaðnum DEL í Roseate House í Nýju Delí þar sem Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari utanríkisráðuneytisins, býður upp á íslenskt sjávarfang sem hluti af kynningarátaki á íslenskum útflutningsvörum.
Róm
Fyrsti stjórnarfundur ársins 2026 hjá framkvæmdastjórn Matvælaáætlunar SÞ. (WFP) var haldinn dagana 24.-26. febrúar.
Fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sóttu fundinn Berglind Bragadóttir frá fastanefnd Íslands í Róm ásamt Jónasi Haraldssyni frá skrifstofu alþjóðapólitískra málefna utanríkisráðuneytisins.
Á tvíhliðafundi með Rania Dagash-Kamara , aðstoðarframkvæmdastjóra WFP sem ber ábyrgð á tengsl við aðildarríki og nýsköpun, var farið yfir framlög Íslands til WFP og þakkaði hún sérstaklega fyrir hversu sveigjanleg framlög Íslands væru, sem væri ekki síst mikilvægt í neyðarástandi. Þá tók hún jafnframt fram að hún væri að skoða heimsókn til Íslands á árinu.
Stokkhólmur
Heimildarmyndin „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" um Kvennafríið 24. október 1975 var sýnd í húsakynnum sænska þingsins. Eftir sýningu myndarinnar ávarpaði sendiherra okkar í Svíþjóð, Bryndís Kjartansdóttir, gesti og ræddi jafnréttismál á Íslandi.
Varsjá
Ásamt því að taka vel á móti utanríkisráðherra í vinnuferð sinni til Póllands í vikunni til að sækja óformlegan fund utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins þá stóð sendiráðið einnig fyrir sýningu á listaverkum 12 íslensks listafólks í menningarhúsinu Centrum Rzeźby Polskiej w Orońsku.
Þórshöfn
Jafnréttismál voru einnig til umræðu í Þórshöfn í vikunni þar sem heimildamyndin „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" var sýnd. Jafnréttisnefnd Færeyja stóð að viðburðinum og bauð íslenska sérfræðingnum Fríðu Rósu Valdimarsdóttur til þess að flytja fyrirlestur um kvennafrídaginn.
Meira verður það ekki í bili,
Upplýsingadeild.