13 mars 2026

/

Föstudagspóstur 13. mars 2026

Heil og sæl. 

Við hefjum yfirferðina á dagskrá Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra. 

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars tók ráðherra þátt í sameiginlegu myndbandi utanríkisráðherra Spánar, José Manuel Albares, sem birt var á samfélagsmiðlum. Auk Þorgerðar Katrínar, utanríkisráðherra, tóku ráðherrar frá Belgíu, Kólombíu, Kosta Ríka, Dóminíska Lýðveldisinu, Frakklandi, Írlandi, Jamaíku, Líberíu, Lúxemborg, Mongólíu, Slóveníu, Suður Afríku og Úrúgvæ þátt í myndbandinu.

Þar að auki var samfélagsmiðlaefni dreift á miðlum utanríkisráðuneytisins og sendiskrifstofa Íslands. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by José Manuel Albares (@jmalbares)

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Utanríkisráðuneytið (@utanrikisthjonustan)

 

Today is International Women’s Day.

Gender equality is a cornerstone of Iceland's foreign policy. Iceland is committed to the global fight for women's empowerment, equal opportunities, equal pay, and a life free from gender-based violence.

🔗https://t.co/y7QbG6MlR3#IWD2026 pic.twitter.com/HMycxvtMFU

— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) March 8, 2026

 

On the occasion of International Women's Day yesterday, Iceland 🇮🇸 supports this statement and underscores the urgent need to protect women journalists both online and offline.

Read the full MFC statement: https://t.co/RAa5slRl4r https://t.co/ZiA8A7SqEw

— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) March 9, 2026

 

Evrópumálin hafa verið ofarlega á dagskrá í vikunni. Á mánudaginn mælti utanríkisráðherra fyrir þingsályktun sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið á Alþingi og fundaði hún einnig með utanríkismálanefnd Alþingis í gær, fimmtudag. 

 

 

 

Ráðherra hélt til Bandaríkjanna á þriðjudag til að eiga fundi um tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna og stöðu alþjóðamála. Þar fundaði hún með Christopher Landau, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna og Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra auk Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptafullrúa Bandaríkjanna. Þar að auki fundaði hún með þingmönnum sem eiga sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. 

 

 

Í gær, fimmtudag, var tilkynnt um ákvörðun íslenskra stjórnvalda um þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag en í málinu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gasa. Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt bæði hryðuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa. Yfirlýsing um þátttöku Íslands í málinu var lögð fram fyrir dómstólnum á miðvikudag þar sem gerð er grein fyrir lögfræðilegri afstöðu Íslands. Með þessari ákvörðun tekur Ísland í fyrsta skipti þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum. 

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Hollandi með aðsetur í Brussel, lagði fram yfirlýsinguna fyrir alþjóðadómstólnum fyrir Íslands hönd. 

 

 

 

Í gær var einnig undirritað samkomulag utanríkisráðuneytisins, Bolungarvíkurkaupstaðar og varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands um veghald á Bolafjalli. Þar með hefur ábyrgð á rekstri vegarins á Bolafjalli verið flutt frá utanríkisráðuneytinu til Bolungarvíkurkaupstaðar, en utanríkisráðuneytið hefur haft á leigu landsvæði á Bolafjalli vegna reksturs ratsjárstöðvar þar frá árinu 1985. 

Á myndinni má sjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, ásamt Jóni Páli Hreinssyni, bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, og Jóni B. Guðnasyni, framkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Jóni Páli Hreinssyni, bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, og Jóni B. Guðnasyni framkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands.

 

Berlín

Í dag var haldinn sameiginlegur viðburður norrænna sendiráða í Berlín um áhrif átaka á stöðu kvenna og barna í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. 

 

Í vikunni ávarpaði sendiherra einnig gesti á sýningu á heimildarmyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" sem fjallar um Kvennafrídaginn 1975. 

 

 

Brussel

Sendiráð Íslands í Brussel stóð fyrir viðburðum í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Líkt og greint var frá í síðasta Föstudagspósti stóð sendiráðið fyrir viðburðinum „Women in Mediation: Voice from Peace and Security" á föstudaginn s.l. í samstarfi við sendiráð hinna Norðurlandanna. 

Sendiráðið skipulagði sýningu á heimildarmyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" í samstarfi við skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Brussel. Sendiherra Íslands í Brussel, Stefán Haukur Jóhannesson, bauð gesti velkomna með opnunarávarpi og eftir sýningu fóru fram pallborðsumræður um jafnrétti og um það bakslag sem hefur átt sér stað víða um heim í jafnréttismálum. 

 

 

Stefán Ásmundsson, sérlegur ráðgjafi Íslands í málefnum hafsins og fiskveiðum, var gestur sendiherra í embættisbústaðnum í Brussel og hélt þar kynningu á íslenskum sjávarútvegi. 

 

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Á mánudag var formleg opnun 70. þings Kvennanefndarinnar „Committee on the Status of Women" og fór dómsmálaráðherra fyrir sendinefnd Íslands. Þema fundarins í ár var að tryggja konum og stúlkum aðgang að réttarkerfinu. 

 

Eventful week at #CSW70 🇺🇳
Thorbjörg Sigrídur Gunnlaugsdóttir, Minister of Justice, led Iceland's delegation and delivered Iceland's statement: https://t.co/NeOxlqkCFh#SDG5#GenderEquality#ForAllWomenAndGirls pic.twitter.com/Lct1mzElnP

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) March 12, 2026

 

Anna Jóhannsdóttir, sendiherra og fastafulltrúi, tók á móti tveimur Alþingismönnum, Jóni Gnarr og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur sem stödd voru í New York til þess að taka þátt í þingi Kvennanefndarinnar. 

 

Pleased to be hosting our two members of @Althingi attending #CSW70 this week, Jón Gnarr and Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. pic.twitter.com/mR3N62AEnH

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) March 12, 2026

 

Á þinginu tók fastafulltrúi okkar þátt í pallborðsumræðum á þremur viðburðum sem fastanefnd Íslands studdi, einn á vegum UNICEF um ungligsstúlkur, annan á vegum Alþjóðabankans um konur, viðskipti og löggjöf, og þann þriðja á vegum UN Women Leaders Network um valdeflingu kvenna. Nikulás Hannigan, varafastafulltrúi, sótti sérstaklega tvo viðburði sem Ísland studdi og var þar að auki staðgengill ráðherra á tengslafundi með þróunarríkjum.

Gaman er að segja frá því að allir viðburðir sem Ísland studdi fjárhagslega voru afar vel sóttir. 

 

I emphasized the importance of improving and strengthening SRHR for adolecent girls in Iceland’s event w/#UNICEF at #CSW70. Good discussion w/ministers from Nepal & Sierra Leone pic.twitter.com/roZ1hjCzaX

— Anna Jóhannsdóttir (@annajohannsd) March 12, 2026

 

Fastafulltrúi ávarpaði einnig sérstakan fund um ofbeldi gegn konum og stúlkum og lagði þar áherslu á stefnur íslenskra stjórnvalda í jafnréttismálum og aðgerðir stjórnvalda til að uppræta kynbundið ofbeldið. 

 

At #CSW70 High-Level meeting on #VAWG, 🇮🇸 highlighted measures to improve response and support survivors of #GBV.
"Ending GBV is not beyond our reach. But it will not happen by chance. It will only happen if we choose-deliberately and collectively-to act."https://t.co/Y7kQvrQnxj pic.twitter.com/iC9j14Ttbj

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) March 12, 2026

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna í Genf

Á mánudag stóð fastanefndin fyrir hliðarviðburði á vetrarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í samvinnu við Úkraínu og Eistland um vernd úkraínskra barna. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, erindreki Evrópuráðsins í málefnum úkraínskra barna, hélt þar framsöguræðu. 

Á miðvikudag stóð Ísland fyrir hliðarviðburðinum „Every Call Matters: Strengthening Child Protection through Child Helplines and International Standards" í samstarfi við alþjóðlegu samtökin „Child Helpline International". Á viðburðinum var fjallað um mikilvægi hjálparlína fyrir börn og hvernig alþjóðlegir staðlar geta styrkt gæði, aðgengi og áreiðanleika í þeirri þjónustu sem hjálparlínur veita. 

Fastanefndin tók þátt í samningaviðræðum um ályktun um réttindi barnsins.

Í tilefni af vetrarlotunni, sem oft er kölluð barnalotan, og áherslum Íslands í málefnum barna bauð fastanefndin börnum á vegum ráðgjafarhóps barna og ungmenna hjá umboðsmanni barna á samráðsfund í utanríkisráðuneytinu í síðustu viku. 

 

 

#TeamIceland thanks you @thordiskolbrun for your valuable participation in a full day of important discussions on protecting Ukrainian children.#IcelandHRC https://t.co/u1KMREpAU9

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 11, 2026

 

Fastafulltrúi okkar og sendiherra, Einar Gunnarsson, ávarpaði mannréttindaráðið í vikunni fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í umræðum t.a m. um öryggi barna og um mannúðarástandið í Venesúela. 

 

At #HRC61 in dialogue on violence against children, the Nordic-Baltic countries #NB8 stressed that every child has the right to be protected from violence, including online. Children’s rights, safety and privacy must remain central to digital governance. Full statement👇 pic.twitter.com/FAoo0XXnrw

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 10, 2026

 

At #HRC61 in dialogue with the Fact-Finding Mission, the #NB8 countries expressed concern over the human rights situation in Venezuela, including arbitrary detentions and restrictions on civil society. We urged full cooperation with the FFM and respect for fundamental freedoms. pic.twitter.com/hyky7gilKr

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 13, 2026

 

Freetown

Sendiráð Íslands í Freetown, Síerra Leone, stóð einnig fyrir sýningu á heimildarmyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í vikunni. 

 

Inspiring to mark #IWD2026 with young women & girls & partners for the screening of the film “The Day Iceland Stood Still”. A powerful reminder of how collective action can drive real change for #GenderEquality.@Purposeful_org #WomensDay pic.twitter.com/yYGZWISMBa

— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) March 8, 2026

 

Kampala

Sendiráð Íslands í Kampala, Úganda, tók þátt í lokaathöfn þjálfunarinnar „Gender and Development" sem var skipulagt af jafnréttisdeild Makerere háskólans í samstarfi við Jafnréttisskóla GRÓ.

Jafnréttisskóli GRÓ er einn fjögurra skóla sem starfa sem hluti af GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. 

 

 

Lilongwe

Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe, Malaví, tók á móti Henry D. Mukhuna, sérstökum ráðgjafa malavískra stjórnvalda um framgang stjórnarsáttmála Malaví. 

 

 

Madríd

Sendiráð Íslands í Madríd skipulagði viðburð í vikunni í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna þar sem heimildarmyndin „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" var sýnd.

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands á Spáni, flutti opnunarávarp og eftir sýningu áttu sér stað pallborðsumræður um jafnréttismál þar sem m.a. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, leikstjóri og framleiðandi heimildarmyndarinnar, tók þátt. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nuuk

Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk vekur athygli á umsóknarfresti í Grænlandssjóðinn sem er ætlað að efla samskipti Íslands og Grænlands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, menningarviðburða, íþróttaviðburða o.fl. 

Umsóknarfrestur er 22. apríl. 

 

 

Nýja Delí

Vika íslensks sjávarfangs eða „Iceland Seafood Week" fór fram í síðustu viku á veitingastaðnum DEL í Roseate House í Nýju Delí þar sem Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari utanríkisráðuneytisins, bauð upp á íslenskt sjávarfang sem hluti af kynningarátaki á íslenskum útflutningsvörum. 

 

 

Sendiráðið sóð einnig fyrir umræðufundi í embættisbústaðnum í Nýju Delí þar sem fulltrúar íslenskra og indverskra ferðaþjónustufyrirtækja komu saman og ræddu viðskiptatækifæri á Íslandi. 

 

 

Tvö ár eru nú liðin frá því að fríverslunarsamningur EFTA og Indlands var undirritaður og í tilefni þess var birt ávarp eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, sem fjallaði um árangur fríverslunarsamningsins. 

 

 

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands í Kanada, fór ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda til Whitehorse í Yukon fylki í sameiginlega heimsókn í tilefni af Vetrarleikum Norðurslóða „Arctic Winter Games". Þar fundaði sendiherra með fulltrúum fylkjastjórnar Yukon fylkis, bæjarstjóra Whitehorse og fulltrúum frumbyggjaþjóða Kanada. Einnig átti sendiherra samtöl við kandaíska þingmenn sem sóttu vetrarleikana þar í bæ. Þar að auki stóðu norrænu sendiherrarnir fyrir opnum viðburði um varnar- og öryggismál Norðurslóða.

 

 

París

María Mjöll Jónsdóttir afhenti í gær Alberti II. fursta af Mónakó trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Mónakó með aðsetur í París. Á fundi sínum ræddu þau m.a. um norðurslóðamál, málefni hafsins og Smáþjóðaleikana sem fara fram í Mónakó á næsta ári. 

 

Ravie d’avoir présenté mes lettres de créance à S.A.S. le Prince souverain de Monaco et d’avoir échangé sur nos liens d’amitié, l’Arctique, les océans et les Jeux des petits États, qui se tiendront à Monaco en 2027. pic.twitter.com/iefkOvO2YC

— Maria Jonsdottir (@mariamjolljons) March 12, 2026

 

Sendiherra flutti ávarp fyrir hönd Íslands á viðburði UNESCO á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ísland gegnir formennsku vinahóps UNESCO um jafnrétti kynjanna ásamt Brasilíu en eitt forgangsverkefni stofnunarinnar er jafnrétti kynjanna. 

 

"In a time of growing backlash against women’s human rights and freedoms, we must defend the progress that has been so hard-won".

Iceland's 🇮🇸 intervention at @UNESCO's event with experts, leadership and Member States for #IWD2026

🔗https://t.co/e4Jp59MxUM#GenderEquality pic.twitter.com/46mKyi0Yhf

— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) March 9, 2026

 

Stokkhólmur

Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Svíþjóð, tók á móti gestum frá Norræna félaginu í Uppsala í embættisbústaðnum í vikunni. Sendiherra var með kynningu um Ísland og stefnur íslenskra stjórnvalda og ræddi við gesti um málefni Íslands og utanríkismál. 

 

 

Varsjá

Ragnheiður Kolsöe, staðgengill sendiherra í Varsjá, heimsótti Kharkiv í Úkraínu ásamt sendiherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Þetta er í fyrsta skiptið sem sendiherrar NB8 ríkjanna svokallaðra heimsækja borgina í sameiningu, en borgin liggur mjög nálægt víglínunum. Hópurinn fundaði með fulltrúum borgaryfirvalda, úkraínska hersins, og skoðaði m.a. kennslustofur sem settar hafa verið upp í neðanjarðarbyrgjum fyrir börn og háskólanemendur. 

 

 

 

 

Friðrik Jónsson, sendiherra, var viðstaddur komu Karls Gústafs Svíakonungs og Silvíu drottningar til Varsjár í vikunni ásamt öðrum sendiherrum. 

 

Vínarborg

Sendiráð Íslands í Vín stóð einnig fyrir sýningu á heimildarmyndinni „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist" í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í vikunni. Sýningin fór fram í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna í Vín með stuðningi fastanefndar Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í Bín. 

Helga Hauksdóttir, sendiherra og fastafulltrúi, bauð gesti velkomna með opnunarávarpi. 

 

 

Ekki verður það meira í bili, 

Upplýsingadeild.