20 mars 2026

/

Föstudagspóstur 20. mars 2026

Heil og sæl. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var í Brussel í vikunni þar sem hún og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins (ESB), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál. Með samstarfsyfirlýsingunni er áréttaður pólitískur vilji Íslands og ESB um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Yfirlýsingin er ekki skuldbindandi og felur ekki í sér kvaðir um framlög eða þátttöku Íslands í verkefnum ESB. 

Í tilefni af undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar birti ráðherra grein um stöðu alþjóðamála og öryggis- og varnarmál í Vísi.

Á fundi sínum með Kaja Kallas ræddu þær m.a. málefni Úkraínu, stöðu mála í Mið-Austurlöndum, viðbrögð við fjölþátttaógnum og þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB. 

Ráðherra fundaði einnig með Maroš Šefčovič, viðskiptamálastjóra ESB, annars vegar, og Marta Kos, stækkunarstjóra ESB, hins vegar, þar sem staða mála í alþjóðaviðskiptum, framkvæmd EES-samningsins og þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu voru í brennidepli.

Sameiginlega fréttatilkynningu Íslands og ESB á ensku má lesa hér

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgerdurk)

 

Grateful for a chance for a quick catch-up with @MartaKosEU. Informed her of government decision to propose a referendum on resumption of Iceland’s accession negotiations. If the people of 🇮🇸 say yes we will enter talks & fight vigorously for a good outcome for Iceland & Europe. https://t.co/RUvrThMoSP

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) March 18, 2026

 

Í Brussel fundaði ráðherra með varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO), Radmila Shekerinska, um undirbúning fyrir leiðtogafund bandalagsins í Ankara í júlí næstkomandi, öryggi og varnir á norðurslóðum og nýja árvekniaðgerð bandalagsins, Arctic Sentry, sem og aukið samstarf NATO og ESB undanfarin ár. 

 

Good meeting at NATO HQ with @DepSecGenNATO Radmila Shekerinska. I briefed her about Iceland´s new defence & security policy, unanimously adopted by parliament. 🇮🇸 is a committed NATO Ally & welcomes increased focus on the Arctic. Support for Ukraine remains of utmost importance. pic.twitter.com/h0Z65lJWEY

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) March 18, 2026

 

Glad to welcome 🇮🇸 Foreign Minister @thorgkatrin to #NATO. We discussed NATO’s deterrence and defence & the importance of the High North.

Iceland is a strong Ally, making important contributions to our collective security and providing steadfast support to Ukraine. pic.twitter.com/EvyeNYnkJB

— Radmila Shekerinska (@DepSecGenNATO) March 18, 2026

 

Einnig er vert að vekja athygli á því að ráðherra mætti í viðtal hjá Euronews í fréttaþættinum Europe Today þar sem hún var spurð út í stöðu alþjóðamála, samband Íslands og Evrópusambandsins, viðskiptamál, varnar- og öryggismál o.fl. 

 

 

Ráðherra tók þátt í ársfundi Samorku sem átti sér stað á þriðjudag. Í ávarpi sínu fjallaði hún því um mikilvægi aðgerða til þess að tryggja öryggi innviða á Íslandi, t.a m. orku- og veituinnviði og aðgerðir gegn fjölþáttaógnum í ljósi aukinnar spennu í alþjóðakerfinu og átaka í heiminum. Einnig lagði ráðherra áherslu á að efling áfallaþols er sameiginleg ábyrgð og verkefni samfélagsins í heild sinni og því væri mikilvægt að tryggja náið samstarf við einkaaðila og fyrirtæki í öryggismálum. Þema ársfundarins í ár var uppbygging á óvissutímum og efling áfallaþols innviða.

Millilandaráð Viðskiptaráðs Íslands fundaði í húsakynnum utanríkisráðuneytisins á mánudag með það að markmiði að styrkja tengsl utanríkisráðuneytisins og hinna ýmissa viðskiptaráða. Þorgerður Katrín tók vel á móti fulltrúum millilandaráðsins og flutti ávarp á fundinum. 

 

Fastanefnd Íslands ganvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf

Fastafulltrúi okkar og sendiherra, Einar Gunnarsson, ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, NB8 ríkjanna svokallaðra, sem kölluðu eftir friðsamlegri og diplómatískri úrlausn á stríðinu í Íran, að borin sé virðing fyrir alþjóðalögum og að saklausir borgarar njóti verndar. Einnig lýstu NB8 ríkin yfir alvarlegum áhyggjum sínum yfir drápum íranskra yfirvalda á mótmælendum, fjöldahandtökum og fjölgun aftaka í Íran.

 

Today, #NB8 expressed grave concern over killings of protesters, mass arrests & rising executions in Iran. The ongoing armed conflict deepens an already severe human rights crisis. We call for de-escalation, return to dialogue, protection of civilians & full respect for int’l law pic.twitter.com/O8k64BGZAh

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 16, 2026

 

Helsinki

Harald Aspelund, sendiherra, var staddur í Tallinn, Eistlandi, í vikunni þar sem hann fundaði með Marko Mihkelson, formanni utanríkismálanefndar eistneska þingsins, ásamt sendiherra Noregs.

 

 

Kampala

Starfsfólk sendiráðs Íslands í Kampala heimsótti Namayingo-hérað í austurhluta Úganda til að kynna sér árangurinn af STOP-verkefninu, þriggja ára verkefni sem Ísland hefur fjármagnað í gegnum Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2024. Markmið verkefnisins er að vinna gegn fæðingarfistli og styðja við konur sem þjást af þeim sökum til að fóta sig á ný í samfélaginu.

Liður í heimsókninni var að afhenda bæði búnað og lækningatæki af ýmsu tagi á aðalheilsugæslustöð hérðasins þ.á m. ómskoðunartæki, en þetta er eina ómskoðunartækið í héraðinu sem telur 250 þúsund íbúa. 

 

 

Kaupmannahöfn

Sendiráðið tók á móti nemendum Menntaskólans í Reykjavík í vikunni. Sigfús Kristjánsson, sendiráðsprestur, og Sigurlína Andrésdóttir, sérfræðingur, kynntu hlutverk utanríkisþjónustunnar og sendiráðsins fyrir hópnum. 

 

Pétur Ásgeirsson, sendiherra, sótti ráðstefnu Mannréttindastofnunar Danmerkur í vikunni og tók þátt í málstofu um stöðu mannréttinda á Grænlandi. 

 

 

Lilongwe

Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe, Malaví, fór í vettvangsferð til Lupachi-héraðs til þess að fylgjast með framvindu íslensks þróunarsamvinnuverkefnis þar sem ný heilsugæsla er í byggingu og endurbætur á grunnskóla og ungbarnamiðstöð eiga sér stað. Þar að auki verða tvær vatsnveitur settar upp sem ganga á sólarorku. 

 

 

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra okkar í Madríd, fundaði með Salvador González, forseta spænska lögmannafélagsins, í vikunni með það að markmiði að efla lagalegt samstarf milli Íslands og Spánar. Rætt var um hvernig hægt væri að styrkja tengsl íslenskra og spænskra réttarstofnana, bæta lögfræðiþjónustu og vernd fyrir íslenska og spænska borgara o.fl. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nýja Delí

Tinna Sveinsdóttir, varamaður sendiherra Íslands á Indlandi, fundaði í vikunni með háttsettum embættismönnum inverska utanríkisráðuneytisins ásamt sendiherrum annarra norðurlanda.

 

 

Rahul Chongtham, viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands á Indlandi, tók þátt í India International Film Tourism Conclave 2026 í Mumbai sem er alþjóðleg ráðstefna um kvikmyndageirann og tengsl geirans við ferðaþjónustu. Á ráðstefnunni tók Rahul þátt í pallborðsumræðum um viðskiptatækifæri fyrir erlend kvikmyndafyrirtæki á Íslandi sem fulltrúi sendiráðsins og kynningarátaksins Film in Iceland á vegum Íslandsstofu.

 

 

 

Ottawa og Washington D.C. 

Norður ameríska sjávarútvegssýningin Seafood Expo North America fór fram í Boston í vikunni og þar voru samankomnir fjölmargir fulltrúar íslenskra fyrirtækja, fulltrúar Íslandsstofu og, að sjálfsögðu, fulltrúar sendiráða Íslands í Ottawa og Washington D.C. 

Fyrir hönd íslensku utanríkisþjónustunnar sóttu Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Einar Tómasson, viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Bandaríkjunum, og Per Unheim, viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Kanada, ráðstefnuna. Þar mönnuðu þau íslenska kynningarbása og ræddu bæði við fulltrúa íslenskra og erlendra fyrirtækja. 

 

 

Osló

Starfsfólk sendiráðsins okkar í Osló studdu við heimsókn Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, til borgarinnar þar sem hún sótti fund Norrænna forsætisráðherra og forsætisráðherra Kanada. 

 

Á þriðjudaginn stóðu sendiherrahjónin Högni Kristjánsson og Ásgerður Magnúsdóttir fyrir tónleikum í embættisbústaðnum í Osló fyrir meðlimi fílharmóníu Oslóar og aðra gesti. Fenginn var strengjakvartett úr Oslóarhljómsveitinni til að flytja verk eftir Johan Svendsen og íslenskar melódíur. 

 

 

París

María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands í París, sótti keppnina Bocuse d'Or Europe sem haldin var í Marseilli í vikunni til þess að styðja Snædísi Xyza Mae Jónsdóttir, matreiðslumeistara og fyrrum þjálfara íslenska kokkalandsliðsins, en hún var fulltrúi Íslands í keppninni. Snædís náði frábærum árangri í keppninni og hafnaði í 10. sæti sem tryggði henni því þátttöku í heimsúrslitunum í Lyon á næsta ári. Bocuse d'Or er stærsta keppni evrópskra matreiðslumeistara. Snædís er einnig fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd í Bocuse d'Or Europe og þema hennar var „Fjallkonan".

 

 

Stokkhólmur

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi stóð fyrir kynningarviðburði í embættisbústaðnum ásamt norrænu samtökunum Scandinavian Cosmetics. Á viðburðinum voru íslenskar útflutningsvörur, líkt og húðvörur BioEffect, kynntar. Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra okkar í Svíþjóð, bauð gesti velkomna og fulltrúar Scandinavian Cosmetics héldu fyrirlestur um vörurnar sem voru kynntar og vísindin á bakvið framleiðslu þeirra. 

 

 

Tokýó

Hreinn Pálsson, sendiherra Íslands í Japan, flutti fyrirlestur um jafnrétti kynjanna og sögu íslenskrar jafnréttisbaráttu í háskólanum Temple University Japan Campus. 

 

 

Varsjá

Piotr Blazeusz, herstjóri og sérstakur ráðgjafi pólska hersins, var heiðursgestur á sameiginlegum sendiherrafundi norðurlanda og Eystrasaltsríkja í vikunni. 

Friðrik Jónsson, sendiherra, fór einnig til Kænugarðs í vikunni og fundaði þar með Yulia Svyrydenko, forsætisráðherra Úkraínu auk annarra fulltrúa úkraínskra stjórnvalda. Á fundum sínum ræddi sendiherra um aðgerðir úkraínskra yfirvalda til þess að efla áfallaþol nauðsynlegra innviða Úkraínu, líkt og orkuinnviða, fyrir næstkomandi vetur. 

í vikunni hófst einnig Norrænt samstarfsverkefni fyrir pólska grunnskóla sem kallast Nordic Resilience Starts at Schools. Meira en 70 þátttakendur frá pólska menntakerfinu komu saman á vinnustofu sem haldin var í danska sendiráðinu í Varsjá. 

 

Meira verður það ekki í bili, 

kveðja, upplýsingadeild.