27 mars 2026

/

Föstudagspóstur 27. mars 2026

Heil og sæl. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sótti Portúgal heim í byrjun vikunnar þar sem hún fundaði með Paulo Rangel, utanríkisráðherra Portúgal, annars vegar, og með Nuno Melo, varnarmálaráðherra, hins vegar. Tvíhliða samskipti Íslands og Portúgal, mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu, staða mála í Mið-Austurlöndum, og samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundum ráðherranna í Lissabon á mánudag. 

Þorgerður Katrín þakkaði starfsbróður sínum sömuleiðis fyrir framlag Portúgal til loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, en flugher Portúgal hefur staðið vaktina hérlendis í tvígang, árin 2021 og 2022. 

 

 

O MNE @PauloRangel_pt recebeu a sua homóloga islandesa 🇮🇸 @thorgkatrin para uma visita oficial. Na agenda, o aprofundamento das relações bilaterais entre dois países atlânticos, laços transatlânticos, NATO, Ucrânia e Ártico — uma visita crucial para alinhamento estratégico. pic.twitter.com/5Ubb0X3vi4

— Negócios Estrangeiros PT (@nestrangeiro_pt) March 23, 2026

 

Thank you @NunoMeloMDN for your warm hospitality and fruitful meeting, as well as the very informative visit to the Lisbon naval base, which highlighted our shared Atlantic interests. pic.twitter.com/Op3vncuoAY

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) March 23, 2026

 

 

Á miðvikudag kom ráðherra fyrir utanríkismálanefnd Alþingis og var umræðuefnið þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Um opinn fund var að ræða og hægt er að horfa á upptöku af fundinum á vef Alþingis.

 

 

Ráðherra hélt síðan til Þýskalands í tveggja daga vinnuferð. Fyrsta stopp hennar var í Hamborg þar sem hún opnaði nýja skrifstofu kjörræðismanns Íslands, Dr. Hans Henning Hoff, og heimsótti Alþjóðahafréttardómstólinn (e. ITLOS), fyrst utanríkisráðherra Íslands.Þar fundaði hún með Tómasi H. Heiðar, forseta dómstólsins. 

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið í Evrópuferð undanfarna daga og haldið fimm tónleika í Þýskalandi og Sviss. Gaman að segja frá því að ráðherra var heiðursgestur tónleikanna í Hamborg sem haldnir voru í glæsilegu tónlistarhöllinni Elbphilharmonie í gærkvöld. 

Þorgerður Katrín hélt síðan til Berlínar í morgun þar sem hún mun funda með Gunther Krichbaum, Evrópumálaráðherra Þýskalands, og Anton Hofreiter, formanni Evrópumálanefndar þýska sambandsþingsins. 

 

 

Berlín

Þetta hefur verið annasöm vika hjá starfsfólki okkar í Berlín. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, leiddi samráð við Þýskaland um varnarmál ásamt Dr. Jasper Wieck, skrifstofustjóra í þýska varnarmálaráðuneytinu.  Í tilefni samráðsins stóð sendiráð Íslands í Berlín fyrir málþingi um öryggismál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, í samstarfi við sendiráð Danmerkur, Kanada og Noregs, auk þýska varnarmálaráðuneytisins og með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Yfirmenn stefnumála í varnarmálaráðuneytum skipuleggjendanna ræddu hvaða leiðir væru helst færar til að bregðast við breytingum á öryggi svæðisins. 

 

 

Hópur slenskra rithöfunda sótti hina risastóru bókamessu í Leipzig í vikunni auk þýðenda og ritstjóra. Í meira en 20 ár hafa Norðurlöndin haldið úti sameiginlegum norrænum kynningarbás á bókamessunni og það var að sjálfsögðu gert aftur í ár. Miðstöð íslenskra bókmennta og Íslandsstofa tóku einnig þátt í því að kynna land, þjóð og íslenska bókmenntahefð, en íslenskar bækur njóta mikilla vinsælda á meginlandi Evrópu (og víðar!). 

 

 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Dänische Botschaft in 🇩🇪 (@daenische_botschaft)

 

Brussel

Ísland, Noregur og Evrópusambandið eru nú ekki einungis samstarfsaðilar á jörðu niðri heldur nú út í geimnum líka! Ísland og Noregur undirrituðu í gær aðild ríkjanna að tveimur áætlunum Evrópusambandsins er varða fjarskipti um gervihnattakerfi. Aðildin mun tryggja aðgang að öruggum tengingum um gervihnetti fyrir stjórnvöld og mikilvæga innviði. 

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra okkar í Brussel, undirritaði samninga þess efnis í gær fyrir Íslands hönd, ásamt Cecilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, sem undirritaði sambærilega samninga við sama tækifæri. Andrius Kubilius, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins sem fer með málefni varnarmála og geimsins, undirritaði 

 

 

Welcoming onboard GOVSATCOM and IRIS²🛰️🛡️ Iceland and Norway!#EUSpace

🔗https://t.co/Bdj5K6V3Gp https://t.co/orp45o8o1h

— EU Defence and Space (@defis_eu) March 26, 2026

 

Sendiherra heimsótti einnig Alþjóðlega sakamáladómstólinn í Haag í vikunni og fundaði þar með Tomoko Akane, forseta dómstólsins, Sovaldo Zavala Gilera, dómritara, og Nazhat Khan, varasaksóknara. 

 

 

Sendiráð Íslands og sendiráð Noregs stóðu síðan fyrir 25 ára afmælisviðburði þátttöku Íslands og Noregs í Schengen samstarfinu. Viðburðurinn var haldinn í sendiráði Noregs. 

 

 

Freetown

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Síerra Leóne, UNICEF, deildi flottu myndbandi í vikunni þar sem fjallað er um árangursríkt þróunarsamvinnuverkefni Íslands og UNICEF þar í landi. Verkefnið snýr að því að tryggja aðgang fólks í afskekktum samfélögum að hreinu og öruggu vatni. 

 

Proud to partner with the GoSL & @UNICEFSL to ensure that hard-to-reach communities enjoy the right to access clean & safe water 🇮🇸🇸🇱#SDG6#WorldWaterDay https://t.co/ywJFbiqanV

— Iceland in Sierra Leone (@IcelandinSalone) March 25, 2026

 

Genf

Líkt og kom fram hér að ofan hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið á ferð og flugi um Þýskaland og Sviss og í tilefni af tónleikum hljómsveitarinnar í Genf, Bern og Zurich, bauð Sendiráð Íslands meðlimum hljómsveitarinnar í móttöku að loknum tónleikum í Zurich. Ásamt meðlimum 

 

Einar Gunnarsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), sótti fjórtánda ráðherrafund stofnunarinnar sem haldinn er í Kamerún þessa dagana.

 

Svo deildi sendiráðið flottu kynningarmyndbandi á Instagram þar sem Gréta Dögg, nemandi við lagadeild Háskóla Íslands, segir frá reynslu sinni af samstarfsverkefni utanríkisráðuneytisins, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, og stjórnmálafræðideildar HÍ í byrjun mars. Gréta tók þátt í störfum fastanefndar Íslands í Genf í yfirstandandi fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Permanent Mission and Embassy of Iceland in Geneva (@icelandingeneva)

 

Helsinki

Starfsfólk sendiráðs okkar í Helsinki studdi við heimsókn Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, sem sótti borgina heim vegna leiðtogafundar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force - JEF) ásamt leiðtogum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Bretlands og Hollands. 

 

 

Það er einnig alltaf nóg að gera í menningarmálum hjá sendiráðinu. Í vikunni kom hópur starfsfólks finnskra ráðuneyta sem tilheyra bóka og menningarfélagi finnska stjórnarráðsins. Harald Aspelund, sendiherra, og Ásthildur Jónsdóttir, sýningarstjóri Gallerie Käytävä (sem er staðsett í embættisbústaðnum) kynntu störf sendiráðsins og ræddu við hópinn um núverandi sýningu íslensku listakonunnar Önnu Rúnar Tryggvadóttur sem var sjálf viðstödd.

 

 

 

Kampala

Sendiráð okkar í Kampala, Úganda, greindi frá góðum árangri verkefnisins Heroes sem er sameiginlegt verkefni íslenska sendiráðsins og sendiráðs Hollands um kyn- og frjósemishelibrigði. Framlag Íslands beinist að því að bæta aðgengi að vatni, hreinlætis- og salernisaðstöðu, efla þolendur kynbundins ofbeldis með verknámi og þjálfun, og bæta aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum um kyn- og frjósemisheilbrigði. 

Í vettvangsferð til Kalangala-héraðs varð starfsfólk sendiráðsins sjálft vart við jákvæð áhrif verkefnisins. 

 

 

Kaupmannahöfn

Hópur nemenda Verzlunarskóla Íslands heimsótti sendiráðið í gær sem þátttakendur í Nordplus-samstarfsverkefni með öðrum verslunarskólum á Norðurlöndum. Nemendurnir vinna saman að þróun viðskiptahugmynda, heimsækja fyrirtæki og sækja fyrirlestra úr atvinnulífinu. Stefanía K. Bjarnadóttir, menningar- og viðskiptafulltrúi sendiráðsins, kynnti starfsemi sendiráðsins og hlutverk þess í að efla viðskiptatengsl Íslands og Danmerkur. 

 

Í tilefni af Norðurlandadeginum bauð Norðurlandaráðið sendiherrum og fulltrúum Norðurlanda í Kaupmannahöfn til morgunfundar sem Pétur Ásgeirsson, sendiherra, sótti. 

 

 

Lilongwe

Það er gleðiefni að geta sagt frá því að útskrifaðir nemendur úr öllum fjórum GRÓ skólunum ákváðu, á viðburði sem haldinn var í Lilongwe í gær, að hefja undirbúning að stofnun „alumni" félags. Þetta er í fyrsta sinn sem útskrifaðir malavískir nemendur úr öllum skólunum fjórum komu saman. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við nemana sjálfa, sendiráðs Íslands og GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Á viðburðinum kynntu útskrifaðir nemar starf skólanna fjögurra í Malaví auk þeirra tækifæra og áskorana sem nú eru til staðar innan þeirra geira sem þau starfa við. 

 

Sendiráðið greindi einnig frá vettvangsferð í mismunandi héröð til þess að meta árangur skógræktar sem er hluti af íslensku þróunarsamstarfsverkefni í Malaví, en meira en 540 þúsund tré hafa verið gróðursett með það að markmiði að 

Sendiráðið tók einnig þátt í opnunarviðburði á vegum Go Fund A Girl Child í Mangochi-héraði. 

 

 

London

Í vikunni fór fram sameiginleg alþjóða- og öryggismálaráðstefna Bretlands, Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Aurora Forum í London. Sturla Sigurjónsson, sendiherra, tók þátt í pallborðsumræðum og hringborðsumræðum ásamt ráðuneytisstjórum og aðstoðarráðherrum ríkjanna þar sem stuðningur við Úkraínu, samstaða innan Evrópu og öryggi á norðurslóðum voru í brennidepli. Sendiherra átti einnig fund með Stephen Doughty, aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands, um tvíhliða málefni Íslands og Bretlands. 

 

 

Madríd

Sendiráðið okkar í Madríd tók á móti kjörræðismönnum Íslands á Spáni fyrir stuttu. Þetta var fyrsta sameiginlega heimsókn kjörræðismanna okkar þar í landi frá opnun sendiráðsins. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra, fór yfir helstu markmið og verkefni sendiráðsins. Þurý Björk Björgvinsdóttir, deildarstjóri borgaraþjónustudeildar ráðuneytisins, hélt síðan fræðsluerindi. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Utanríkismálanefnd spænska þingsins bauð sendiherrum Íslands, Noregs, Finnlands og Svíþjóðar á fund í vikunni.

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Sendiherra tók einnig á móti hópi nemenda Menntaskólans í Reykjavík sem stunda spænsku nám. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nýja Delí

Benedikt Höskuldsson, sendiherra okkar á Indlandi, flutti ávarp og tók þátt í panelumræðum á inversku loftslagsráðstefnunni India Climate Week þar sem hann fjallaði um reynslu Íslendinga af sjálfbærum orkugjöfu. 

 

 

Hér í Reykjavík fór fram samráðsfundur Íslands og Indlands þar sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, fundaði með Sibi George, skrifstofustjóra málefna Evrópu í indverska utanríkisráðuneytinu. Fundurinn fór fram á mánudag og var hluti af reglulegu samráði ríkjanna tveggja. Samskipti Íslands við Indland hafa aukist til muna undanfarin ár og nokkuð verið um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja á indverskri grundu eftir að fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna við Indland tók gildi.

 

Ottawa

Ísland og Kanada höfðu einnig pólitískt samráð í vikunni og snerist samráðið um alþjóða-, öryggis-, og varnarmál. Sendinefndir ríkjanna funduðu í húsakynnum utanríkisráðuneytisins í Reykjavík og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands, sótti fundinn. Hermann Ingólfsson, varaskrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, leiddi samráðið fyrir hönd Íslands og Gallit Dobner, skrifstofustjóri málefna norðurslóða, Evrasíu og Evrópu, fór fyrir sendinefnd Kanada. 

 

 

Osló

Sendiráð Eistlands í Osló tók á móti norrænum og baltneskum sendiherrum í Osló ásamt formanni utanríkis- og varnarmálanefndar Stórþingsins, Pere C. Frølich, og ræddu stöðu utanríkismála og stríðið í Úkraínu. 

 

Áhugasamir sem eru sleipir í norsku geta lesið grein á heimasíðu fílharmóníu Oslóar um viðburð sendiráðs Íslands með fílharmóníunni. 

 

 

París

Íslenskar kvikmyndir og íslenski kvikmyndageirinn verða í kastljósi athyglinnar í borginni Vannes, sem liggur suðvestur af París, á evrópskri kvikmyndahátíð sem ber nafnið European Cinema Meetings. Sendiráð Íslands í París er stuðningsaðili hátíðarinnar, en hátíðin stendur yfir til 29. mars. 

 

 

Sendiráðið er einnig stuðningsaðili Music & Cinema Marseille, sem fer fram milli 30. mars og 4. apríl. Stuttmyndin Memory Traces eftir Grímu Irmudóttir var valin til þess að vera meðal 300 annarra kvikmynda á hátíðinni. 

 

 

Stokkhólmur

Prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands, Gavin Lucas, hlaut í vikunni virðulegu Gad Rausing verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á sviði hugvísinda við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi. Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, afhenti verðlaunin, og Bryndís Kjartansdóttir, var viðstödd athöfnina. Það er alltaf gaman að geta sagt frá afrekum íslenskra ríkisborgara. 

 

Sendiráðið stóð fyrir útgáfuhófi sænskrar þýðingar á bók Önnu Maríu Bogadóttur, Jarðsetning eða Jordfästning í samstarfi við Sveriges Arkitekter BTH og Arkitektur Förlag. Á viðburðinum áttu sér stað umræður milli höfundar og Dan Hallemar frá útgáfufyrirtækinu Arkitektur Förlag. 

Þýðendur bókarinnar eru Sara Lindberg og John Swedenmark.

 

 

Tókýó

Nemendur Minerva háskóla og félagar frá NHK menningarmiðstöð heimsóttu sendiráð Íslands í Tókýó í vikunni. Hreinn Pálsson, sendiherra, og starfsfólk sendiráðsins tóku vel á móti gestum og kynntu störf sendiráðsins og fluttu fyrirlestra um Ísland, íslenska menningu, stjórnmál, mannréttindi, jafnréttismál, matarmenningu og margt fleira. 

 

 

Varsjá

Ragnheiður Kolsöe, staðgengill sendiherra, tók þátt í fundinum Ukraine Donor Platform sem var haldinn í 16. sinn í Borodianka, nálægt Kænugarði, í vikunni. Fundurinn er haldinn til þess að aðstoða ríkisstjórn Úkraínu við að samhæfa alþjóðlegar aðgerðir í þágu uppbyggingar í Úkraínu. Borgin Borodianka varð fyrir valinu enda varð borgin fyrir mikilli eyðileggingu við upphaf allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu árið 2022. Verið er að endurbyggja borgina og það með alþjóðlegri aðstoð. 

 

Sendiráðið deildi einnig myndum sem teknar voru á vinnustofu fyrir fulltrúa pólskra grunnskóla og sveitarstjórna sem haldin var sem hluti af norrænu samstarfsverkefni. 

 

 

Fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf

Nú fer 61. vetrarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna að ljúka og í vikunni átti sér stað fjöldi sameiginlegra ávarpa Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Hér eru nokkur dæmi, áhugasamir geta kynnt sér fleiri ávörp á X reikningi fastanefndarinnar. 

 

At the #HRC61 urgent debate the Nordic-Baltic countries #NB8 strongly condemn Iran’s military strikes against third states not involved in armed hostilities and call on the Iranian regime to end violence and repression against its own people
statement➡️https://t.co/alj43xU4T0 pic.twitter.com/Oj7I1iWr5T

— Sweden in Geneva (@SwedenGeneva) March 25, 2026

 

#HRC61: Children and education should never be victims of war.
🇮🇸 and 🇳🇴 are deeply alarmed by the attack on the school in Minab - and by the humanitarian crisis spreading across Middle East.

Full statement:
https://t.co/JkaiHdev3D pic.twitter.com/GZ5K2dqwgZ

— Norway in Geneva 🇳🇴 (@NorwayInGeneva) March 27, 2026

 

At #HRC61 dialogue on the @OHCHR update on Ukraine, Mr. @BudrysKestutis Minister of Foreign Affairs of 🇱🇹 on behalf of the Nordic-Baltic states #NB8 strongly condemned RU war against UA, underlying that 2025 was the deadliest year for civilians in 🇺🇦
➡️https://t.co/Egrcj4ilUK pic.twitter.com/mQlroRrw1w

— Lithuanian Permanent Mission in Geneva (@LtGva) March 26, 2026

 

Ísland kallaði eftir því að Ísrael virði alþjóðlegar skuldbindingar sínar og virði skilyrði friðarsamkomulagsins um óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar að Gaza. 

 

https://t.co/6KEM5XKUG0

— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 24, 2026

 

Meira verður það ekki í bili, 

Föstudagspósturinn snýr aftur eftir páska. 

Upplýsingadeild.