08 maí 2026
/
Föstudagspóstur 8. maí 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flutti Alþingi skýrslu sína um utanríkis- og alþjóðamál mánudaginn 27. apríl og fóru fram umræður um hana í kjölfarið. Í skýrslunni eru verkefni utanríkisþjónustunnar og helstu atburðir á síðasta almanaksári raktir með ítarlegum hætti. Í ræðu sinni í upphafi umræðu um skýrsluna gerði ráðherra núverandi stöðu alþjóðamála að umfjöllunarefni. Á tímum þegar friðhelgi landamæra og alþjóðalög eru virt að vettugi, meðan viðskipti séu notið sem vopn og mannréttindi fótum troðin, spyrji lýðræðisríki um víða veröld sig sömu spurningar og Íslendingar, um hvernig skuli bregðast við þegar hriktir í stoðunum sem þessi ríki byggja öryggi sitt og velferð á.
Árlegur ráðherrafundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8-ríkjanna svokallaðra) var haldinn á Íslandi dagana 29. og 30 apríl með Ajay Banga, forseta Alþjóðabankans (e. World Bank). Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin mynda kjördæmi innan Alþjóðabankans og deila sæti í stjórn hans.
Þá var einnig Douglas G. Perry, flotaforingi og yfirmaður herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk, staddur á landinu í fyrstu heimsókn sinni til Íslands eftir að Norðurlöndin öll voru færð á ábyrgðarsvæði herstjórnar bandalagsins í Norfolk. Þorgerður Katrín og Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, funduðu með Douglas og ræddu m.a. árveknisaðgerð NATO, Arctic Sentry, sem miðar að aukinni samhæfingu eftirlits og viðbúnaðar á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Douglas hlaut kynningu á starfsemi og innviðum öryggissvæðisins í Keflavík.
Last week, our Commander Vice Admiral Doug Perry visited Iceland, where he met with Foreign Minister Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir @thorgkatrin, and Chief of Defence Jónas G. Allansson.
— NATO Allied Joint Force Command Norfolk - JFCNF (@JFCNorfolk) April 28, 2026
Their discussions highlighted Iceland’s vital role at the heart of the GIUK Gap, supporting… pic.twitter.com/exs8gNVMc7
Árlega sendiráðahlaup utanríkisráðuneytisins var haldið fimmtudaginn 30. apríl. Alls tóku um 50 manns þátt í hlaupinu að þessu sinni og hlaupið var á milli erlendra sendiskrifstofa í Reykjavík, samtals um 10 kílómetra leið. Um er að ræða hlaup þar sem sendiherrar og starfsfólk erlendra sendiskrifstofa á Íslandi hlaupa með starfsfólki utanríkisráðuneytisins. Sendiskrifstofurnar tóku vel á móti hlaupurunum og buðu upp á léttar veitingar, stuð og stemningu í hverju stoppi. Þetta var í fjórða sinn sem sendiráðahlaupið fór fram.
View this post on Instagram
Þann 5. maí var þess minnst að 75 ár eru liðin frá undirritun varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna vorið 1951. Af því tilefni var birt grein eftir utanríkisráðherra í Morgunblaðinu sem ber titilinn Bandamenn á umrótatímum.
View this post on Instagram
Dagana 4. til 6. maí fór fram fundur varnarmálaráðherra Norðurlandanna (e. NORDEFCO) í Þrándheimi, Noregi. Fundurinn var sá fyrsti í formennskutíð Noregs á árinu og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.
Ráðherra flutti opnunarávarp á viðburðinum Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Endurheimt vistkerfa og sjálfbær landnýting sem var á vegum GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Landgræðsluskóla GRÓ, utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands þann 7. maí. Á viðburðinum var farið yfir hvernig þekkingaruppbygging á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar hefur nýst í þróunarríkjum sem glíma við afleiðingar hnignunar vistkerfa og loftslagsbreytinga.
Að lokum vekjum við athygli á tveimur nýlegum greinum eftir utanríkisráðherra. Þann 28. apríl var greinin Frelsi kvenna er ekki vandamálið birt í Vísi og þann 30. apríl var greinin Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi birt í Morgunblaðinu.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Í ávarpi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna lagði Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands, áherslu á sameiginlega skyldu allra aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að standa vörð um frið og öryggi í Mið-Austurlöndum. Íbúar Mið-Austurlanda eiga jafnan rétt á öruggu, friðsælu og farsælu lífi líkt og aðrir.
At #UNSC last week 🇮🇸PR emphasised that the people of the Middle East deserve nothing short of peace and a prosperous future. Members of the UNSC must live up to their fundamental responsibility to maintain peace and security in this region, as elsewhere. https://t.co/6LiHXtFX6d pic.twitter.com/k1ikdVw7dn
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) May 6, 2026
Fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna
52. önnur lota allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna (e. Universal Periodic Review, UPR) hófst í vikunni og verða að þessu sinni 14 ríki til umfjöllunar. Í lotunni leggur Ísland áherslu á jafnréttismál, réttindi hinsegin fólks, kyn- og frjósemisheilbrigði og afnám dauðarefsinga.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, heimsótti Vatíkanið í vikunni og átti þar fund með Leo XIV páfa. Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands gagnvart Páfagarði en með aðsetur í Genf, var með í för ásamt Sif Gunnarsdóttur, forsetaritara. Á fundinum lagði forseti áherslu á mannréttindi, frið, réttlæti, trúfrelsi og mikilivægi alþjóðasamstarfs.
View this post on Instagram
A post shared by Permanent Mission and Embassy of Iceland in Geneva (@icelandingeneva)
Fastanefnd Íslands gagnvart Evrópuráðinu í Strassborg
Valnefnd jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur hefur tilkynnt hvaða þrjú verkefni komast áfram í lokaval verðlaunanna. Nefndinni bárust rúmlega 300 umsóknir víðs vegar að úr heiminum en 100 verkefni uppfylltu sett skilyrði.
Jafnréttisverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur eru sameiginlegt framtak íslenskra stjórnvalda og þings Evrópuráðsins og er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem hafa stuðlað að valdeflingu kvenna með einstökum hætti.
Forseti Evrópuráðsþingsins, Petra Bayr, kom til Íslands í vikunni og fundaði með valnefndinni og fulltrúum utanríkisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins. Gréta Gunnarsdóttir er fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu.
Berlín
Sendiráð okkar í Berlín og Íslandsstofa voru meðal stuðningsaðila Filmkunstfest MV kvikmyndahátíðarinnar í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern sem fór fram þriðjudaginn 3. maí. Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, flutti opnunarávarp ásamt Manuela Schwesig, forsætisráðherra Mecklenburg-Vorpommern. Íslenska hljómsveitin, LÓN flutti fagra tóna á viðburðinumog íslenskar myndir voru áberandi á dagskrá hátíðarinnar. Um er að ræða stóra kvikmyndahátíð sem laðar að meira en 17 þúsund gesti ár hvert.
Sendiráðið stóð einnig fyrir viðburði til heiðurs tónskáldsins Victor Urbancic og ljóðskáldsins Melitta Urbancic, í samstarfi við Exilmuseum Berlin. Exilmuseum Berlin skipulagði sérstaka viðburðaröð til heiðurs listafólks sem flúði ofsóknir Nasista í Þýskalandi.
Íslenski kórinn Röst frá Akranesi héldu nýlega tónleika í embættisbústaðnum í Berlín.
Brussel
Starfsfólk heilbrigðisráðuneytisins heimsóttu sendiráðið okkar í Brussel á sumardaginn fyrsta undir forystu Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra. Þar fékk hópurinn kynningu á starfsemi sendiráðsins og helstu málum á döfinni í heilbrigðismálum. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, ræddi við gesti um hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.
Helsinki
Sendiráð Íslands í Helsinki stóð fyrir klassískum tónleikum sem haldnir voru í embættisbústaðnum þar sem nemendur, þar á meðal íslenskir nemendur, við Sibelius listaháskólans í Helsinki léku listir sínar.
Anna-Kristiina Mikkonen, þingkona og formaður vinafélags íslenskra og finnskra þingmanna, funaði með Harald Aspelund, sendiherra, í vikunni.
Einnig stóð sendiráðið fyrir opnunarviðburði Jónsbókar í Finnlandi, en það er íslensk gervigreindarlausn sérstaklega hönnuð fyrir lögfræðinga.
Kaupmannahöfn
Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku, og Sigurlína Andrésdóttir, sem sér um samskipti sendiráðsins við kjörræðismenn Íslands í Danmörku, lögðu land undir fót í vikunni til að funda með kjörræðismönnum og heimsækja fyrirtæki og stofnanir víða um Danmörku.
Dansk-Islandsk Samfund hélt ársfund sinn í embættisbústaðnum í Kaupmannahöfn í vikunni. Félagið var stofnað árið 1916 og er því elsta Íslendingafélag starfandi erlendis, 110 ára.
Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, sótti alþjóðlega ráðstefnu þingforseta Evrópusambandsins og Evrópuríkja sem haldin var í Kaupmannahöfn. Með henni í för voru Pétur Ásgeirsson, sendiherra, og Jörundur Kristjánsson, sviðstjóri samskipta- og alþjóðasviðs Alþingis.
Lilongwe
Sendiráðsteymið okkar í Malaví lagði einnig land undir fót í vikunni og skoðuðu stöðu ýmissa þróunarsamvinnuverkefna Íslands þar í landi.
Og svo er gaman að segja frá því að Ascent Soccer, sem er drengja- og stúlknalið í Malaví, mun koma með lið á Rey Cup fótboltamótið í Reykjavík í júlí nk. Ascent Soccer er hluti af þróunarsamvinnuverkefni Íslands.
Madríd
Í tilefni af bókmenntahátíðinni LibroMad voru tveir viðburðir um norrænar bókmenntir skipulagðir á sérstakri „síðdegishátíð" bókabúðarinnar Grant í Madríd. Fyrri pallborðsumræðan fjallaði um „frásagnarmátt náttúrunnar í norrænum bókmenntum" í samvinnu við sendiráð Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Íberó-Amerísku stofnunar Finnlands. Íslenski rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð tók þar þátt.
Síðari pallborðsumræðan var tileinkuð Halldóri Laxness og sjálfstæðisbaráttu Íslands. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands, tók þátt í umræðunni ásamt Kristni R. Ólafssyni, rithöfundi, og Enrique Bernárdez, blaðamanni, undir fundarstjórn Öldu Ólafsson, starfsmanni sendiráðsins í Madríd. Nýlega var bókin Sjálfstætt fólk endurútgefin á spænsku af útgáfufélaginu Trotalibros.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Íslenskur saltfiskur var í kastljósinu í einum keppnislið CECBI matreiðslukeppninnar í Barselóna sem fór fram nýlega í samstarfi við Íslandsstofu. Þar kepptust nemendur 18 spænskra matreiðsluskóla við að framreiða spennandi rétti með íslenskum saltfisk. Kristján Andri, sendiherra, var þar heiðursgestur.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, heimsótti höfuðstöðvar Alþjóðaferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Madríd í síðustu viku. Sendiráðsteymið okkar þar í landi studdi vel við heimsókn ráðherrans, en hún fundaði m.a. með Shaikha N. Alnuwais, forstöðmanni stofnunarinnar.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, heimsótti Baskaland á Spáni í vikunni, en ráðherra heimsótti ýmsar menningarstofnanir, háskóla og fyrirtæki á svæðinu.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Nýja-Delí
Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, heimsótti Kohinoor Ropes fyrirtækið í Maharastra í vikunni. Fyrirtækið er meðal stærstu fyrirtækja á Indlandi sem sérhæfa sig í framleiðslu á fiskinetum, reipum og öðrum vörum fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.Hampiðjan festi nýlega kaup á meirihluta í fyrirtækinu. Samstarf indverskra og íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi endurspeglar aukin viðskiptatækifæri sem felast í fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Indlands.
Sendiráðið okkar á Indlandi tók að sér að skipuleggja sjötta viðburð UNICEF og Norrænna sendiráða. Morgunverðarviðburðurinn fjallaði um samspil orkumála og jafnréttis. Að sjálfsögðu var boðið upp á hina rammíslensku hjónabandssælu.
Osló
Sendiráðið okkar í Noregi stóð fyrir hádegisviðburði í vikunni í samstarfi við Öldu, íslenskt fyrirtæki sem býður upp á hugbúnaðarlausnir til að efla vinustaði í aðgerðum er varða fjölbreytileika og inngildingu. Viðburðinn sóttu mannauðsstjórar og -sérfræðingar frá ýmsum norskum fyrirtækjum og ræddu inngildingarmál og hvernig nýta mætti íslenskar hugbúnaðarlausnir til þess að stuðla að betra starfsumhverfi.
París
Á mánudag tók sendiráð Íslands í París á móti 17 nemendum Tækniskólans sem voru stödd í borginni vegna Erasmus+ verkefnis sem skólinn tekur þátt í. Nemendurnir fengu kynningu á utanríkisstefnu ÍSlands og starfsemi sendiráðsins og fastanefndanna í París.
María Jónsdóttir, sendiherra okkar í París, fundaði nýlega með Fabrice Le Saché, varaformanni MEDEF, eins stærsta félags atvinnurekenda í Frakklandi. Þau ræddu tækifæri til þess að efla viðskiptatengls Íslands og Frakklands frekar í ýmsum mikilvægum atvinnugreinum.
Réunion très efficace avec @f_lesache, vice-président du MEDEF, au cours de laquelle nous avons identifié plusieurs secteurs prometteurs pour renforcer la coopération franco-islandaise. Nous nous réjouissons d’accueillir prochainement une mission du MEDEF en Islande. https://t.co/1l02yxqnRA
— Maria Jonsdottir (@mariamjolljons) April 30, 2026
Peking
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, heimsótti borgina Ezhou á dögunum vegna opnunarviðburðar nýrrar kynningarherferðar um íslenskan lax á vegum íslenskra og kínverskra fyrirtækja. Íslenskur lax er eftirsótt útflutningsvara og fjallaði sendiherrann um tækifæri til aukinna viðskipta milli Íslands og Kína í ávarpi sínu.
Róm
180. fundur stjórnar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) var haldinn 28. apríl síðastliðinn. Boðað var til þessa aukafundar vegna óskar frá 62 aðildarríkjum til að ræða þá stöðu sem upp er komin vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum, hækkunar á olíuverði og truflunar á flutningi matvæla á mikilvægum siglingaleiðum vegna átaka. Mikil áhersla var lögð á nauðsyn þess að halda siglingaleiðum opnum og að alþjóðalög væru virt.
Guðmundur Árnason, sendiherra Íslands í Róm og fastafulltrúi gagnvart FAO, flutti sameiginlegt ávarp Norðurlandanna.
Stokkhólmur
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi bauð í móttöku vegna Market Art Fair listahátíðarinnar í Stokkhólmi. Meðal gesta var sænskt og íslenskt listafólk, fulltrúar listasafna og listagallería, fulltrúar sænsks atvinnulífs og áhugafólk um listir og menningu. Að sjálfsögðu var boðið upp á íslenskar kræsingar, líkt og pylsu með öllu!
Tókýó
Hreinn Pálsson afhenti Tharman Shanmugaratnam, forseta Singapúr, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Singapúr með aðsetur í Tókýó.
Vegna 70 ára afmælis stjórnmálasambands Íslands og Japans var blásið til hönnunarsamkeppni um sérstakt merki (logo) fyrir afmælisárið sem yrði notað af sendiráðum og ráðuneytum Íslands og Japans á viðburðum og í kynningum og auglýsingum.
Alls bárust 22 tillögur frá fagfólki og nemendum í grafískri hönnun. Sigurvegari keppninnar var Gotoh Yuki-san. Við óskum henni til hamingju með sigurinn og þökkum henni fyrir fallegt logo.
Varsjá
Ragnheiður Kolsöe, varamaður sendiherra, var fulltrúi Íslands á undirbúningsviðburði vegna ráðstefnunnar um endurreisn Úkraínu sem haldin verður í Gdansk í júní. Undirbúningsviðburðurinn fjallaði um öryggis og varnarmál og hvernig hægt væri að styrkja bæði varnarsamstarf sem og stuðla að aukinni enduruppbyggingu í Úkraínu, en fjölmargar úkraínskar borgir hafa gjöreyðilagst í innrásarstríði Rússlands.
40 ár eru liðin frá einu mesta og alvarlegasta kjarnorkuslysi sögunnar, kjarnorkuslysinu í Chornobyl. Í dag er um 2600 ferkílómetra svæði í kring um Chornobyl kjarnorkuverið lokað almenningi, en starfsemi við að halda því öruggu er viðvarandi. Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá slysinu var haldinn minningarathöfn við Chornobyl sem og sérstakur viðburður í Kænugarði um stuðning við orkubúskap Úkraínu. Úkraína, líkt og kom fram hér að ofan, þarf á verulegum stuðningi að halda vegna linnulausra árása Rússa á orkuinnviði landsins.
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu með aðsetur í Varsjá, var fulltrúi íslenskra stjórnvalda á fundinum og minningarathöfninni.
Þórshöfn
Hannes Heimisson, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum, átti fund í vikunni með lögmanni Færeyja, Beini Johannesen. Tilefni fundarins voru almenn samskipti landanna og samstarf á komandi mánuðum.
Meira verður það ekki í bili,
kveðja, upplýsingadeild.