15 maí 2026

/

Föstudagspóstur 15. maí 2026

Heil og sæl,

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði í vikunni með Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi, um stöðu mála í Úkraínu og staðfastan stuðning Íslands. Sendiherrann tók síðan þátt í opnum fundi í Háskóla Íslands.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, var í Ankara, Tyrklandi, í vikunni þar sem Ísland og Tyrkland áttu sitt fyrsta tvíhliða pólitíska samráð. Martin ræddi við Mehmet Kemal Bozay, varautanríkisráðherra Tyrklands og skrifstofustjóra Evrópumála, um samstarf ríkjanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins. Fyrirhugað er að Tyrkland opni sendiráð í Reykjavík á næstu misserum. 

Reglulegt samráð Íslands og Bretlands á embættismannastigi um alþjóða- öryggis- og varnarmál átti sér stað í húsakynnum utanríkisráðuneytisins í Reykjavík við lok síðustu viku. Tvíhliða samskipti Íslands og Bretlands, staða alþjóðamála, vaxandi samstarf á sviði varnarmála, svæðisbundið samstarf, málefni Úkraínu og ástand í Mið-Austurlöndum var til umræðu. Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri Alþjóðamálaskrifstofu, og Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, leiddu samráðið fyrir Íslands hönd.

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna funduðu um málefni Vesturbakkans og Austur-Jerúsalem við lok síðustu viku. Ísland og Liechtenstein voru með sameiginlegt ávarp á fundinum þar sem m.a. aðgerðarleysi ísraelskra stjórnvalda á tímum mikillar ofbeldisöldu landtökufólks gegn Palestínumönnum var harðlega gagnrýnd, enda grefur aðgerðar- og refsileysi verulega undan réttarríkinu og friði á svæðinu. 

 

#UNSC met in an Arria format to discuss the West Bank, including East Jerusalem
In a joint statement with Liechtenstein, we highlighted grave developments on the ground & stressed that ongoing settler violence, met with impunity, continues to undermine rule of law in the region pic.twitter.com/SNiTVAYKzM

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) May 8, 2026

 

Berlín

Sendiráð Íslands stóð fyrir „íslensku svæði" á Superbooth 2026 hátíðinni sem fór fram í Berlín í síðustu viku. Superbooth er hátíð tileinkuð raftónlistargeiranum og hefur verið haldin árlega í tíu ár. Að þessu sinni voru fimm íslensk fyrirtæki þátt. Auðunn Atlason, sendiherra, mætti á hátíðina og bauð einnig fulltrúum íslenskra og þýskra fyrirtækja og öðrum hagsmunaaðilum í mótttöku í embættisbústaðnum. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Botschaft von Island (@botschaft_island)

 

Eyjólfur Ármansson, innviðaráðherra, sótti Berlín heim í síðustu viku.

 

 

Kampala

Eitt af þeim nýju verkefnum sem sendiráð Íslands í Kampala styður við er menntaverkefni með alþjóðlegu félagasamtökunum VVBO. Verkefnið hófst fyrir alvöru í vikunni þegar yfir sjö hundruð kennarar komu saman í Loro-kennaraháskólanum, en verkefnið miðar að því að bæta grunnhæfni grunnskólabarna í héruðunum Amolatar og Kwania við Kyogavatn, einkum lesskilning og stærðfræðikunnáttu. Hátt í þúsund kennarar í 107 grunnskólum fá þjálfun í svonefndri UCatchUp-aðferð.

 

Sendiráð Íslands í Kampala hefur frá árinu 2019 átt í farsælu samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, ás viði vatns- og hreinlætismála á flóttamannasvæðum í fimm héruðum í norðurhluta Úganda. Hér má sjá starfsfólk okkar heimsækja Terego til að kynna sér árangurinn af verkefninu. Milli 2019 og 2025 hefur vatns- og hreinlætisstaða tekið stakkaskiptum í 69 skólum og 17 heilsugæslustöðvum, sem samanlagt veita um 124 þúsund manns þjónustu, þar af 74 þúsund börnum. 

 

 

Kaupmannahöfn

Fjöldi gesta lagði leið sína í sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn vegna sýningarinnar Póstkort fyrir Seyðisfjörð sem samanstendur af 289 póstkortum til Seyðisfjarðar, gerð af 150 listamönnum frá 20 löndum. Sýningin stendur til 5. júní. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn / Islands Ambassade i København (@icelandindk)

 

Sendiráðið okkar í Kaupmannahöfn vakti einnig athygli á því að Biskup Íslands auglýsir nú starf sendiráðsprests í Kaupmannahöfn laust til umsóknar. Starfið er eitt af störfum sérþjónustupresta Þjóðkirkjunnar. 

 

Sýning Þórarins Inga Jónssonar Milli himins og hafs var opnuð í síðustu viku í Nordatlantisk Hus í Óðinsvéum. Þetta er fyrsta einkasýning Þórarins í Danmörku og samanstendur hún af súrrealískum málverkum. Pétur Ásgeirsson, sendiherra, flutti opnnarávarp. 

 

 

Lilongwe

Satu Santala, framkvæmdastjóri Norræna þróunarsjóðarins (NDF), flakkaði um Malaví í vikunni ásamt starfsfólki sendiráðs Íslands til þess að skoða framgang þróunarsamvinnuverkefna sem tengjast veðurathugunarstöðvum þar í landi, en verkefnin snúast m.a. að því að bæta búnað og áreiðanleika þeirra.

 

Teymið okkar í Malaví tók einnig þátt í samráðsfundi Mannréttindanefndar Malaví með hagsmuna- og samstarfsaðilum til þess að ræða saman stöðu mannréttindamála í landinu í ljósi nýlegrar skýrslu um aðgang fatlaðs fólks að opinberri þjónustu í Malaví. 

 

 

London

Karl III Bretakonungur setti breska þingið með hefðbundinni viðhöfn í lávarðadeildinni og flutit þar ræðu þar sem hann gerði grein fyrir áformum ríkisstjórnarinnar. Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands, var þar viðstaddur sem fulltrúi Íslands. 

 

 

Karl III, Bretakonungur, hélt einnig árlega garðveislu sína við Buckingham-höll fyrir sendiherra og starfsfólk sendiráða. Sturla Sigurjónsson, sendiherra, Ragnhildur E. Árnórsdóttir, sendiráðunautur, og Brynja Jónsdóttir, sendiráðsritari, voru þar stórglæsilegir gestir.

 

 

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Madríd, fundaði með Eloísa del Pino, forseta spænska rannsóknarráðsins (Consejo Superior de Investigaciones Científicas). Á fundinum voru þau sammála því að efla vísindalegt samstarf milli Íslands og Spánar einkum á sviðum endurnýjanlegrar orku, málefna Norðurslóða, og eldfalla- og jarðfræði. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands í Ottawa, tók þátt í viðburði á vegum sendiskrifstofu Möltu, sendiráðs Kólombíu, sendiráðs Spánar og mannréttindasamtakanna Dignity Network Canada um mannréttindi hinsegin fólks í tilefni alþjóðlega dagsins gegn hinsegin fordómum, 17. maí. 

 

 

Peking

Íslenska listakonan Dominique Ambroise Ibsen opnaði listasýninguna Shedding í Carte Blanche galleríinu í Peking í síðustu viku undir sýningarstjórn Gu Zhenqing. Sýningin stendur til 18. júní.

Shedding - listasýning í Peking

 

Róm

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, kom í vinnuheimsókn til Ítalíu dagana 3-5. maí sl. Í heimsókn sinni átti hún fund með forseta Ítalíu, Segio Mattarella í Quirinale-forsetahöllinni, ásamt Guðmundi Árnasyni, sendiherra Íslands í Róm. Forseti átti einnig einkafund með Leó IIV páfa í Vatíkaninu. Á lokadegi heimsóknar sinnar fundaði forseti með Carl Skau, starfandi forstjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), þar kynnti hún sér starfsemi stofnunarinnar sem Ísland styður ötullega. 

 

Stokkhólmur

Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á handritasýningunni Heimur í orðum í Eddu, Háskóla Íslands, frá 12. maí til 8. nóvember. Tvö handritanna koma frá Uppsala universitetsbibliotek: Uppsala-edda, eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, og handrit Grettis sögu frá 15. öld. 

 

 

Tókýó

Hreinn Pálsson, sendiherra Íslands í Tókýó, tók þátt í viðburðinum Ísland og bókmenntir - þjóð bókaunnenda (Iceland and Literature - A Nation of Book Lovers) sem var haldinn í Suginami menntaskólanum í Tókýó í vikunni. Þar ræddi sendiherra við borgarstjóra Suginami, Satoko Kisimoto, og aðra gesti um íslenskar bókmenntir og hvernig bókmenntir hafa mótað íslenskt samfélag í árhundruði. 

 

Friðrik Jónsson, matreiðslumeistari utanríkisráðuneytisins, reiddi fram ljúffenga íslenska rétti á sérstökum viðburði tileinkuðum íslenskri matargerð þar sem lögð var áhersla á hafið, eldfjöllin og jöklana. Japönskum fjölmiðlum var boðið á viðburðinn til þess að kynnast íslensku sjávarfangi, lambakjöti, skyri og vatni. 

 

 

Varsjá

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Varsjá, mætti á leiðtogafund Norðurlanda og Búkarest níu ríkjanna (B9) sem haldinn var í Búkarest í vikunni. Foresti Rúmeníu, Nicusor Dan, og forseti Póllands, Karol Nawrocki, voru gestgjafar fundarins og sérstakir gestir fundarins voru Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, og Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu. 

 

 

á meðan sendiherra var í Búkarest undirritaði hann einnig samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Rúmeníu hins vegar. Samstarf Íslands og Rúmeníu innan Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni frá fyrri sjóðstímabilum, til dæmis á sviðum jarðvarma, rannsókna, menntunar og menningar. 

 

Svo er gaman að segja frá því að nokkrar íslenskar heimildarmyndir eru meðal þeirra 150 mynda sem eru nú í sýningu á Millennium Docs Against Gravity heimildarmyndahátíðinni í Póllandi. Sendiherra hitti m.a. Berg Bernburg, leikstjóra íslensku heimildarmyndarinnar Storm Alerts.

 

 

Vín

Öryggissamvinnustofnun Evrópu (OSCE) hefur ákveðið að virkja Moscow Mechanism sem er öflugt tól stofnunarinnar sem er hannað til þess að bregðast við alvarlegum brotum á mannréttindum og lýðræðisreglum í aðildarríkjum stofnunarinnar. Ísland er meðal þeirra 41 ríkja sem greiddu atkvæði með virkjun kerfisins til þess að hefja rannsókn á aðgerðum rússneskra yfirvalda til þess að innræta og hervæða úkraínsk börn í Rússlandi og á hernumdum svæðum í Úkraínu. Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Vín og fastafulltrúi Íslands gagnvart Öryggissamvinnustofnunar Evrópu (OSCE) staðfesti atkvæði Íslands.

 

OSCE Permanent Council, invoked the #MoscowMechanism to investigate Russia's heinous acts of indoctrination and militarization of Ukrainian children in 🇷🇺 and in the occupied territories of 🇺🇦
Iceland 🇮🇸 is among 41 OSCE states invoking the #MoscowMechanism. pic.twitter.com/92v9ywpOgC

— Iceland in Vienna 🇮🇸 (@IcelandVienna) May 15, 2026

 

Washington D.C. 

Sendiráð Íslands í Washington D.C. tók þátt í listasýningunni "Fashioning Power, Fashioning Peace" í Woodrow Wilson House í síðustu viku. Á sýningunni var fatnaður Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, sem hún var í þegar hún tók á móti Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, árið 1986. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Iceland in US (@icelandinus)

 

Meira verður það ekki í bili!

bestu kveðjur, upplýsingadeild.