12 júní 2026
/
Föstudagspóstur 12. júní 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ávarpaði málþing í Norræna húsinu á miðvikudaginn um öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu, sem Varðberg, pólska sendiráðið á Íslandi og utanríkisráðuneytið stóðu að. Málþingið markaði lok pólskrar formennsku í Eystrasaltsráðinu (CBSS) og undirbúning Íslands að formennsku 1. júlí 2026.
Fjallað var um helstu áskoranir og tækifæri á svæðinu, þar á meðal vernd mikilvægra innviða, fjölþáttaógnir, GPS-truflanir, samhæfingu öryggismála og stuðning við Úkraínu, auk kynningar á áherslum Íslands í komandi formennsku. Sjá má upptöku hér fyrir neðan.
Á mánudag opnaði ráðherra málþing um Heimsdag hafsins í Hörpu, sem haldið var í fyrsta sinn á Íslandi. Fjallað var um alþjóðlega samvinnu um vernd og sjálfbæra nýtingu hafsins og hlutverk Íslands sem hafríkis, og var jafnframt minnst á framlag nemenda í 10. bekk Árbæjarskóla sem kynntu lokaverkefni sitt um hafið og framtíð málaflokksins.
Í tilefni af Heimsdegi hafsins sendu utanríkisráðherra Íslands og utanríkisráðherrar „Græna bandalagsins“ frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á mikilvægi hafsins fyrir líf á jörðinni, loftslagsstjórnun og fæðuöryggi, auk þess sem hvatt er til aukins alþjóðlegs samstarfs um vernd og sjálfbæra nýtingu þess.
Þorgerður Katrín skrifaði grein í Bændablaðinu um möguleg áhrif aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað, með sérstakri áherslu á hvernig starfsskilyrði bænda gætu breyst.
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra, flutti erindi við European Humanities háskólann í Vilníus, Litháen, um sögu sjálfstæðis Íslands. Í erindinu fjallaði hann um helstu atburði, áskoranir og áfanga sem mótuðu leið Íslands til lýðræðis. Harald er sendiherra Íslands gagnvart Litháen með aðsetur í Helsinki.
Kaupmannahöfn
Mikil stemning ríkti í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í gær við opnun sýningarinnar Mitt á milli á 3daysofdesign listahátíðinni. Á sýningunni koma saman verk eftir Dögg Guðmundsdóttur og Dýpi sem sækja innblástur til íslenskrar náttúru
Madríd
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og Marcin Bosacki, varautanríkisráðherra Póllands tóku þátt í málþingi sem fór fram í Madríd. Þema viðburðarins var Tvö höf, ein öryggisógn: Áskoranir Evrópu í Eystrasalti og Miðjarðarhafi.
Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Póllandi 1. júlí nk. Af því tilefni stóðu sendiráð Íslands, Póllands og Eistlands fyrir viðburðinum í því skyni að efna til umræðu um helstu öryggisógnir í Evrópu frá sjónarhorni ríkja bæði í Norður- og Suður-Evrópu. Umræðan fór fram á tveimur pallborðum með þátttöku sérfræðinga og hátt settra þátttakenda frá Íslandi, Póllandi, Eistlandi, Spáni og Svíþjóð.
Kristján Andri Stefánsson sendiherra lauk viðburðinum með ávarpi um áherslur Íslands á formennskuárinu.
París
Konur sem gegna leiðtogastöðum í hinum ýmsu geirum í Frakklandi komu saman í sendiherrabústað Íslands í París og snæddu hádegisverð sendiherra, Maríu Mjöll Jónsdóttur, og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, meðstofnanda og stjórnarformanni Reykjavík Global Forum.
Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við sendiráð Íslands í Frakklandi og skapaði dýrmætt tækifæri til að skiptast á skoðunum um jafnrétti kynjanna og mikilvægi þess að efla konur til áhrifa og þátttöku í leiðandi stöðum og ákvarðanatöku á öllum sviðum samfélagsins.
Ottowa
Í þessari viku tóku sendiherra Íslands, Auðbjörg Halldórsdóttir, og Per Unheim, viðskiptafulltrúi sendiráðsins, þátt í jarðvarmaráðstefnunni 2026 World Geothermal Congress í Calgary í Alberta, ásamt nær 150 íslenskum jarðhitasérfræðingum.
Yfir 2.000 fulltrúar frá fjölmörgum ríkjum sóttu viðburðinn. Ísland var aðalsamstarfs- og styrktaraðili ráðstefnunnar og tók þátt í skipulagningu dagskrárinnar, en fjölmargar málstofur áttu sér stað með sérfræðingum frá Íslandi, Norður-Ameríku, Nýja-Sjálandi og víðar. Með þessu undirstrikaði Ísland hlutverk sitt sem leiðandi afl á sviði jarðhita.
New York
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti ávarp á fundi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í gær.
At #COSP19, Minister Ragnar Thor Ingolfsson emphasised 🇮🇸’s strong commitment to ensuring that persons with disabilities enjoy equal rights, full participation, and meaningful inclusion in society. To this end, 🇮🇸 has incorporated CRPD into domestic law. https://t.co/uGwRW0XRZP pic.twitter.com/vzYtuAmelQ
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 11, 2026
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi okkar gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti ávarp í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um átökin í Mið-Austurlöndum.
🇮🇸PR in the #UNSC on the Middle East: In the absence of peaceful resolution, we are left with confronting the devastating consequences of these conflicts, along with insecurity & destabilizing effects across the globe, especially on its poorest regions
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 11, 2026
📄 https://t.co/1QFOcfkvUK pic.twitter.com/LcjKJcPsH8
Og fyrr í vikunni greindi fastanefndin frá því að Ísland hefur formlega fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
🇮🇸 has proudly ratified the Opt. Protocol to the UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities. “By ratifying the protocol, we strengthen the legal status of people with disabilities and underline the importance of respecting their rights” #COSP19 #CRPD #UN pic.twitter.com/ZIrNoEyTZH
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 9, 2026
Tókýó
Hinsegin dagar í Tókýó eiga sér stað í júní, líkt og víða annars staðar í heiminum, og því stóðu sendiráð Íslands og Mexíkó saman að viðburðinum „Coming Out, My Story“. Ragnar Þorvarðarson, staðgengill sendiherra, tók þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum félaga- og mannréttindasamtaka, fyrrverandi þingmanni japanska þingsins og þátttakendum úr geysivinsælu Netflix-þáttunum Boyfriend. Þar deildu þátttakendur persónulegri reynslu sinni og ræddu mikilvægi jafnréttis, inngildingar og gagnkvæms skilnings.
Varsjá
Staðgenglar ráðherra og háttsettir diplómatar frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum heimsóttu Úkraínu fyrr í vikunni til þes sað ræða enduruppbyggingu landsins, Evrópusamruna, málefni barna og ýmislegt fleira.
HE Unnur Orradóttir from our Ministry for Foreign Affairs and DHoM Ragnheiður Kolsöe represented Iceland on this latest NB8 working visit to Kyiv.
— IcelandinPoland (@IcelandinPL) June 12, 2026
The NB8 Delegation was warmly received in Kyiv.
2/3 pic.twitter.com/7adHgf5bap
Á síðustu vinnustofu verkefnisins „Nordic Resilience Starts at School“ var fjallað um hlutverk skóla í uppbyggingu sterks lýðræðissamfélags.
Ásta Björg Björgvinsdóttir kennari, sem ferðaðist til Varsjá frá Reykjavík, fjallaði um starfshætti sem miða að því að efla lýðræðisleg samskipti innan skóla. Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands, tók á móti nemendum, kennurum og fulltrúum sveitarstjórna sem tóku þátt í verkefninu, fyrir hönd sendiráða Íslands og Noregs, sem stóðu að fundinum í gær.
Meira verður það ekki í bili!
Bestu kveðjur, Upplýsingadeild.