10 desember 2025

/

Ávarp utanríkisráðherra á ráðstefnunni Mannréttindi í mótvindi: Ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi

Ávarp á ráðstefnunni Mannréttindi í mótvindi: ábyrgð og áhrif Íslands á alþjóðavettvangi sem haldin var í Norræna húsinu í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins 10. desember 2025.

 

Kæru gestir,

Gleðilegan mannréttindadag!

Mannréttindi tilheyra okkur öllum. Alls staðar, á öllum tímum. Óháð trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kyni, kynhneigð, uppruna, litarhætti eða öðru. Þetta er einföld staðreynd, en hún er kjarninn í þeirri sýn sem við Íslendingar höfum viljað byggja okkar samfélag á. Og þar liggur einn af okkar stærstu styrkleikum.

Á alþjóðlegum degi mannréttinda er ljóst að þessi grundvallarréttindi eiga undir högg að sækja víða um heim og því hefur sjaldan verið mikilvægara að standa vörð um þau. Að huga að jaðarsettum hópum í okkar samfélagi.

Í tilefni dagsins hefur utanríkisráðuneytið tekið saman helstu áherslur og aðgerðir Íslands í mannréttindamálum á alþjóðavettvangi. Þessi samantekt – sem liggur hér frammi og ég hvet ykkur til að grípa eintak af – veitir innsýn í það þýðingarmikla starf sem Ísland sinnir í þágu mannréttinda. Hún undirstrikar að vernd réttinda og mannlegrar reisnar er ekki einungis siðferðileg skylda heldur lykillinn að varanlegum friði og stöðugleika í heiminum.

Vernd og efling mannréttinda fléttast inn í allt starf utanríkisþjónustunnar og eru leiðandi stef í alþjóðlegu málsvarastarfi og þróunarsamvinnu. Við Íslendingar eigum góða sögu að segja en megum ekki sofna á verðinum. Ekki þegar þær raddir sem vilja draga úr réttindum fólks verða sífellt hærri.  

Í vaxandi mæli er reynt að veikja stöðu kvenna og stúlkna, grafa undan réttindum hinsegin fólks, vega að tjáningarfrelsi og þrengja að réttindum sem hafa áunnist með áratugalangri baráttu. Þetta er ekki aðeins eitthvað sem er að gerast langt í burtu, heldur allt í kringum okkur. Jafnvel í samfélagsumræðu hér heima.  

Þess vegna þurfum við að standa saman.  

Í haust voru liðin 80 ár frá stofnun Sameinuðu þjóðanna sem lagði grunninn að því mannréttindakerfi sem við búum við í dag. Kerfi sem hefur tryggt smáum þjóðum eins og Íslandi frið og velsæld. Að virðing fyrir alþjóðalögum, lýðræði, mannréttindum og jafnræði skipti máli. Að engin manneskja – og ekkert ríki – eigi að vera skilið eftir.  

Mannréttindi eru algild og óafsalanleg. Þau tengjast innbyrðis og engin réttindi eru æðri öðrum. Að standa vörð um þessi réttindi er ekki einkamál ríkja, heldur sameiginleg ábyrgð alþjóðasamfélagsins. Allt frá inngöngu sinni í Sameinuðu þjóðirnar 1946 hefur Ísland lagt áherslu á mannréttindi í utanríkisstefnu sinni og hefur þessi áhersla vaxið frá aldamótum. 

Ísland lætur ekki sitt eftir liggja í að standa vörð um mannréttindi á alþjóðlegum vettvangi. Virðing fyrir mannréttindum er nauðsynlegur grundvöllur samfélags þar sem einstaklingar geta lifað án ótta og notið frelsis til að tjá sig, trúa og tilheyra.

Ísland sinnir þýðingarmiklu starfi í þágu mannréttinda og undanfarin ár hefur Ísland tekið að sér sífellt stærri verkefni á alþjóðavettvangi. Ísland tók fyrst sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna með stuttum fyrirvara árið 2018 og sat til loka árs 2019. Ísland var kjörið til setu í framkvæmdastjórn UNESCO fyrir hönd Norðurlandanna fyrir tímabilið 2021-2025 og tók við formennsku í Evrópuráðinu 2022 – sama ár og Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu.

Í upphafi þessa árs tókum við sæti í mannréttindaráðinu í annað sinn og stendur kjörtímabil okkar til loka ársins 2027.

Lærdómurinn sem við drögum af þátttöku okkar í þessum mikilvægu verkefnum er að Ísland getur haft áhrif langt umfram stærð með því að vera virkur og trúverðugur málsvari mannréttinda og réttlætis í heiminum. Í  utanríkisstefnu hefur Ísland staðið vörð um grundvallarmannréttindi allra – óháð þáttum sem geta skapað jaðarsetningu.

Sérstök áhersla hefur verið lögð á kynjajafnrétti, réttindi barna og ungmenna, réttindi hinsegin fólks og stuðning við lýðræði, tjáningar- og fjölmiðlafrelsi.

Að tryggja öllum sömu tækifæri, virðingu og réttindi óháð kyni er eitt stærsta réttlætismál samtímans. Án kynjajafnréttis er ekki hægt að ná fram raunverulegu samfélagslegu réttlæti eða fullu frelsi.

Vernd réttinda barna er lykilforsenda réttláts samfélags. Ísland leggur áherslu á að uppræta ofbeldi gegn börnum, tryggja öllum börnum aðgang að menntun og grunnþjónustu og að efla þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku. Og þar á ég að sjálfsögðu við öll börn – fötluð sem ófötluð. Í hvaða félagslegu aðstæðum sem þau kunna að vera í.

Virðing fyrir mannréttindum hinsegin fólks er órjúfanlegur hluti af baráttunni gegn mismunun og nauðsynleg til að tryggja jöfnuð, frið og mannlega reisn. Á alþjóðavettvangi leggur Ísland áherslu á að berjast gegn ofbeldi gegn hinsegin fólki og stuðla að lagalegum umbótum til að tryggja vernd mannréttinda hinsegin fólks.

Lýðræði og virkt réttarríki eru nátengd virðingu fyrir mannréttindum og er hvert háð öðru. Virðing fyrir tjáningar- og fjölmiðlafrelsi tryggir að borgarar geti tekið þátt í samfélaginu, dregið stjórnvöld og valdhafa til ábyrgðar og staðið vörð um réttindi sín.

Í málstofunni hér á eftir munum við heyra frá góðum gestum um mikilvægi þessara áhersluþátta, stöðu þeirra á alþjóðavettvangi og hvernig Ísland getur haft áhrif.

Við lifum nú í heimi þar sem stríðsátök og hungursneyð geisa á sama tíma og gerð er alvarleg aðför að alþjóðakerfinu. Á viðsjárverðum tímum þar sem víða er vegið að grunngildum mannréttinda er nauðsynlegt að efla og verja samstöðu ríkja um virðingu fyrir mannréttindum, fjölbreytileika og alþjóðalögum.

Þessu gerum við okkur grein fyrir í ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins en þessi nálgun endurspeglar líka gildi þjóðarinnar og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir. Því var það fagnaðarefni að geta á þessu ári lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

 

Fyrir þennan mannréttindadag hefur skrifstofa mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna talað um mannréttindi sem okkar daglegu nauðsynjar. Þetta orðalag undirstrikar að sterkt alþjóðlegt samstarf snýst ekki bara um stofnanir heldur um fólk – venjulegt fólk sem lifir frjálsara, öruggara og betra lífi þegar ríki velja samvinnu fram yfir átök, réttindi fram yfir ofríki.

Þess vegna munum við áfram vera öflugir málsvarar mannréttinda og tala fyrir framtíðarsýn sem byggir á virðingu og jafnrétti.

Þessir tímar kalla á kjark. Ekki hræðslu, heldur kjark.

Kjark til að segja: Hér stöndum við. Þetta eru okkar gildi. Og við gefum engan afslátt af þeim.

Við munum halda áfram að tala fyrir virðingu og jafnrétti. Við munum halda áfram að verja alþjóðalög. Við munum halda áfram að berjast gegn bakslagi. Sama hvaðan það kemur.

Okkar rödd er sterk. Og hún skiptir máli.