12 september 2025
/
Forsætisráðuneytið
Fundur ríkisstjórnarinnar 12. september 2025
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:Félags- og húsnæðismálaráðherra
1) Svar stjórnvalda til eftirlitsstofnunar EFTA vegna kvörtunar Viðskiptaráðs Íslands um ólögmæta ríkisaðstoð vegna almennra íbúða
2) Frumvarp til laga um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
3) Frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (hunda- og kattahald)
4) Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar)
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
1) Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025-2029
2) Tillaga að nýju landsákvörðuðu framlagi (NDC) undir Parísarsamningnum
3) Möguleg hnignun veltihringrásar Atlantshafsins, AMOC
Dómsmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögreglulögum, almennum hegningarlögum, lögum um fullnustu refsinga, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda (upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.)
2) Frumvarp til laga um sýslumann
3) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar)
4) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/993 (rekstur líkhúsa)
Innviðaráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun ) - endurflutt
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Frumvarp til laga um verðbréfun
2) Frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar
3) Frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði
4) Áherslur í ríkisrekstri 2026
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.