23 september 2025
/
Forsætisráðuneytið
Fundur ríkisstjórnarinnar 23. september 2025
Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:Félags- og húsnæðismálaráðherra
1) Svæðisskipulag og vaxtamörk höfuðborgarsvæðisins
2) Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn send í samráðsgátt
Dómsmálaráðherra
Stefna stjórnvalda ásamt áætlun um aðgerðir gegn peningaþvætti, fjármögnun og útbreiðslu gereyðingarvopna
Atvinnuvegaráðherra
1) Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga. Til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.
2) Drög að frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.
Fjármála- og efnahagsráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.) – endurflutt mál
2) Frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2024
3) Janúar-júní uppgjör 2025
Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.