28 nóvember 2025

/

Forsætisráðuneytið

Fundur ríkisstjórnarinnar 28. nóvember 2025

Eftirfarandi mál voru á dagskrá ríkisstjórnarinnar í dag:

Forsætisráðherra
Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, og lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011 (handhafalaun, forsetaritari o.fl.)

Utanríkisráðherra
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979 (afmörkun landgrunns)

Félags- og húsnæðismálaráðherra
Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks

Dómsmálaráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sameining atvinnu- og dvalarleyfa)
2) Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

Heilbrigðisráðherra
1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar og lögum um ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar)
2) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörk á beitingu nauðungar)

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
1) Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna til að efla íslenska menningu og íslenska tungu
2) Frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun

Innviðaráðherra
Frumvarp til laga um breytingar á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur)

Fjármála- og efnahagsráðherra
Hjöðnun verðbólgu úr 4,3% í 3,7%

Nánari upplýsingar veita hlutaðeigandi ráðuneyti.