Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði
Vísindasiðanefnd metur umsóknir um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði í þeim tilgangi að tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum, líkt og kveðið er á um í lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Siðanefnd heilbrigðisrannsókna á Landspítala annars vegar og Siðanefnd heilbrigðisrannsókna á Sjúkrahúsinu á Akureyri hins vegar meta rannsóknir sem gerðar eru á viðkomandi sjúkrahúsi. Ekki er heimilt að hefja vísindarannsókn á heilbrigðissviði nema vísindasiðanefnd eða siðanefnd heilbrigðisrannsókna hafi veitt leyfi fyrir rannsókninni.
Vísindi, nýsköpun og rannsóknir